blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 27

blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 27
blaóió ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 35 ORÐLAUSTÍSKA ordlaus@bladid.net Ég er rosalega hrifin af framtakssömu fólki sem býður upp á flott föt og er mjög ánægð með að það sé hægt að fá svona mikið af fallegum fötum hérna heima sem eru ekki fjöldaframleidd. Gráar kápur í öllum stærðum og gerðum Allsráðandi í haust Grái liturinn verður áberandi í lékusérmeðgráatónaogvorugráar pöllunum þegar haust-og vetrarlín- haust enda klassískur litur sem fer kápur í bæði klassískum og nýstár- urnar voru lagðar. seint úr tísku. Stærstu hönnuðirnir legum sniðum einna vinsælastar á hiida@biadid.net Martin Grant Steingrá ullarkápa vakti mikla athygli á pöllunum. Maurizio Pecoraro Virkilega falleg kápa með loðskinnskraga. Calvin Klein Sýndi einfaldar og stílhrein- ar kápur. Dianne Von Furst- enberg Sýndi kjóla, jakka og kápur í flott- um gráum tónum. Behnaz Sarafpour Notaði Ijósgráan í hönnun sinni og þótti takast vel til. Neil Barret Fallegar, kvenlegar kápur voru áberandi hjá Barret. Gucci Þykkar, gráar kápur voru áberandi á pöllunum hjá Gucci, Vera Wang Fór ótroðnar slóðir og notaði dökkgrátt, ný- stárlegt efni í hönnun sinni. Topshop fargar flíkum Verslunarkeðjan Topshop þarf að farga um þúsund smekkbuxum eftir að tískumerkið Chioé vann mál gegn keðjunni, en Chloé sak- aði Topshop um að selja nákvæma eftirlíkingu af hönnun sinni. Um- rædd flík var hluti af See Crusie- línu Chloé en eftir að buxurnar komu á markaðinn hóf TopShop að selja mjög áþekkar buxur. Var fyrirtækinu gert að grciða 15 millj- ónir í skaðabætur sem og allan málskostnað. „Við ákváðum að greiða þessa sekt og fara ekki með málið lengra,“ segir Phillip Green eigandi Arcadia Group í viðtali við The Times. Christensen og Klum hjá Monsoon Ofurfyrirsætan danska Helena Christcnsen er hið nýja andlit verslunarkeðjunnar Monsoon en hún hefur einnig ákveðið að taka að sér hönnun á vistvænni haustlínu fyrir fyrirtækið. Christ- cnsenen mun kynna haust- og vetr- arlínu Monsoon og tekur þar við Liz Hurley hefurverið andlit fyrirtækis- ins undanfarin ár. Fyrirsætan Heidi Kluni hefur cinnig við enhún til með að auglýsa fyrir Accessorize-hluta keðjunnar og tekur þar við af ofur- fyrirsætunni Lily Cole. L’Oréal biðst afsökunar Snyrtivörufyrirtækið L’Oréal er í slæmurn málum eftir að hafa notað fölsk augn- hár í auglýsingu fyrir nýjan mask- ara. Fyrirtækið hefur viðurkennt að augnhár leik- konunnar Penel- ope Cruz séu ekki ekta í auglýsing- unni og hefur fyrirtækið beðist afsökunar á að hafa reynt að villa um fyrir neytendum. L’Oréal er komið í hóp með Procter & Gamble, sem í fyrra þurfti að draga til baka auglýsingu sína um sjampóið Head & Shoulders en þar var fullyrt að hárið yrði algjör- lega flösulaust eftir notkun þess og L’Oréal og Estée Lauder, sem þurftu að að draga til baka fullyrð- ingar um virkni cellulite-krems. UPPÁHALDS FLÍKIN Fer eftir skapi, stemningu og veðri Sóley Kristjánsdóttir, eða DJ Sóley, segir uppáhaldsflíkina sína vera Marjan Pejoski-jakka sem eiginmaður hennar færði henni úr Kron Kron, en verstu kaupin eru of háir hælar sem voru um tíma einu spariskórnir hennar. Hvaða flík langar þig mest í? Það sem mig langar eiginlega mest í núna er einhver flott yfir- höfn. Einhvern jakka og þá helst leð- urjakka, brúnan eða svartan. Hvaða flíkur notar þú mest af? Það er svo misjafnt. Ég er eiginlega bara mest í því sem er nýjast. En svo er ég líka alltaf að draga fram eitt- hvað sem er síðan 1996, en auðvitað notar maður mest það sem er nýjast en svo dettur það aftar þegar rnaður fær sér svo eitthvað annað. En ég er mjög dugleg að nota fötin mín og fer það eftir skapi, stemningu og veðri hverju ég er oftast í. Af hverju er mest í fataskápnum? Það er eiginlega mikið af öllu í fataskápnum mínum. En ég á rosa mikið af kjólum, bæði sparikjólum og hversdags. En ég á mjög mikið af galadóti en það versta er að maður hefur aldrei tækifæri til þess að nota það. Hverju færðu ekki nóg af? Ég fæ ekki nóg af töskum, ég á fullt af töskum og fæ aldrei nóg. Hvaða verslanir eru í uppáhaldi? Hérna heima held ég mikið upp á Kron Kron, Liborius, Trilogiu og Nakta apann. Svo versla ég einna mest í Rokk og rósum og Gyllta kett- inum. En ég er rosalega hrifin af framtakssömu fólki sem býður upp á flott föt og er mjög ánægð með að það sé hægt að fá svona mikið af fal- legum fötum hérna heima sem eru ekki fjöldaframleidd. Svo elska ég H&M og kaupi eiginlega mest þar þegar ég er erlendis. Hvað gerirðu til þess að líta vel út? Til þess að líta vel út þá set ég á mig kinnalit, það klikkar aldrei og svo skiptir góður nætursvefn ótrú- lega miklu máli. Bestu kaupin? Maður fer því miður ekki það oft í einhverja flík að hún geti talist bestu kaupin. En mér dettur helst í hug jakki sem var gjöf frá eigin- manninum. Það er Marjan Pejoski- jakki sem hann keypti handa mér í Kron Kron og ég nota bæði sem sparijakka og hversdags, en hann er úr silki með mjög flottum ermum. Verstu kaupin? Stundum dett ég í einhvern fíling, sérstaklega þegar ég er í útlöndum og kaupi eitthvað sem ég myndi í raun aldrei nota en átta mig ekkert á því fyrr en heim er komið. Ég get til dæmis nefnt svarta skó með 12 cm háum hæl sem gerðu mig 2.10 á hæð. Það voru ekki góð kaup og þeim skóm hefur verið lagt núna. hilda@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.