blaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 30
38
ÞRIÐJUDAGUR 31. JULI 2007
blaöió
FÓLK
Þarf ekki bara
þakyfir Pollinn?
folk@bladid.net
„Jú, það væri vert að athuga það!"
Benedikt Sigurðsson, sundgarpur og
sundþjálfari, er annartveggja sem
syntu yfir Pollinn á ísafirði á föstudag,
til þess að vekja athygli á þrengslum
(Sundhöll ísafjarðar.
HEYRST HEFUR
Mikið var um dýrðir þegar KSÍ
hélt upp á sextugsafmæli sitt og
vígði jafnframt ný húsakynni
sin á Laugardalsvellinum
um helgina. Heiðursgestur
var Michel Platini. Hann hélt
skondna ræðu sem, miðað við
hreiminn, fór mestmegnis fram
á frönsku, en ekki ensku, eins
og ætlunin var. Formaðurinn,
Geir Þorsteinsson, hélt einnig
ræðu á ensku, sem og fram-
kvæmdastjórinn, Þórir
Hákonarson. Þykir
Ijóst að þeir félagar
hafi verið með
sama enskukenn-
ara og Valgerður
Sverrisdóttir,
allt mjög
harðmælt
og þjóð-
legt...
Senuþjófur veislunnar, fyrir
utan forkunnarfagrar eigin-
konur fótboltamannanna, var
hornskrifstofa formannsins,
sem er á við fjögurra herbergja
þakíbúð í Skuggahverfinu.
Eggert Magnússon, forveri
Geirs, hafði einmitt á orði þegar
skrifstofan var skoðuð: „Uss,
Geiri, það er af sem áður var!“ í
beinu framhaldi má minnast á
orð Geirs til Þorgerðar „
Katrínar, ráðherra
mennta, íþrótta og
menningarmála, sem
, fyrir hönd ríkisins
styrkti framtakið
ríflega: „Ég vil
nota tækifærið
og tilkynna
að kostnaður
fór heldur
fram úr áætl-
unum..."
Jón Axel ólafsson er með vanga-
veltur á bloggi sínu um breyt-
ingar á fréttastofu Stöðvar 2
eftir að Steingrímur Sævarr var
gerður að fréttastjóra þar. „Eins
' og einn viðmælandi Litlu frjálsu
fréttastofunnar sagði: „það er
eins og Sigmundur Ernir hafi
verið rekinn upp á við ...? Er þá
Denni undir Sigmundi? Hvað
£er í gangi? RÚ V lagði
K nýlega niður starf
forstöðumanns
J fréttasviðs, og því
er við hæfi að 365
h noti tækifærið og
■ taki það upp hjá
I sér.“ Svo mörg
I voru þau orð.“
Fanndís Friðriks-
dóttir Á heimavelli
í Kópavoginum
Blaðið/Frikki
■fÆW- n
£
Fanndís Friðriksdóttir varð markakóngur EM kvenna undir 19 ára
Kemst áfram á skapinu
og hraðanum
Fanndís Friðriksdóttir
er ung og bráðefnileg
knattspyrnukona úr
Breiðabliki. Hún varð
markakóngur Evrópu-
móts leikmanna yngri
en 19 ára á dögunum,
þrátt fyrir brösugt gengi
íslenska liðsins.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
„Ég veit ekki hvað klikkaði hjá
okkur, en úrslitin segja ekki alla sög-
una um getu liðsins. Úrslitin gefa
í raun mjög skakka mynd af spila-
mennskunni og það þykir okkur
sárast,“ segir Fanndís, en huggar
sig þó við markakóngstitilinn. Fann-
dís skoraði þrjú mörk í mótinu; eitt
gegn Danmörku og tvö gegn Þýska-
landi, sem varð sigurvegari mótsins.
Þær Ellen White frá Englandi og
Mary Laure Delie frá Frakklandi
gerðu að visu jafnmörg mörk og
Fanndís en í fleiri leikjum og þvi
hreppti Fanndís hnossið.
„Auðvitað er gaman að fá slíka við-
urkenningu. Reyndar er þetta ekki
svona gullskór eins og karlarnir fá,
heldur stytta, en það er samt fínt
KONAN
Fanndís er sautján ára
gömul
Hún er mikill Arsenal-aðdá-
andi og hennar uppáhalds-
leikmaður er Thierry Henry
Fanndís er hjátrúarfull og
sleppir því að borða endana
á banananum fyrir leiki
lika, sko. Ætli besta markið sé ekki
mark númer tvö á móti Þýskalandi.
Ég fékk sendingu inn fyrir vörnina
og náði að nýta hraðann vel. Svo
lagði ég bara boltann snyrtilega
i fjær hornið,“ segir Fanndís sem
hefur þurft að gjalda fyrir skapið
inni á vellinum.
„Ég hef nú aldrei fengið rautt
spjald í leik, ekki enn þá að minnsta
kosti! En mig minnir að ég hafi
fengið tvö gul spjöld fyrir kjaftbrúk
og þrjú fyrir brot. Maður reynir nú
að passa sig, en skapið nýtist nú líka
ágætlega, það er ekki hægt að vera
skaplaus í fótbolta.“
Fanndís fluttist frá Vestmanna-
eyjum til Hafnarfjarðar fyrir um
þremur árum. Hún hafði áður leikið
með ÍBV en ákvað að ganga til liðs
við Breiðablik.
„Vinkona mín og mömmu, Erna
Þorleifsdóttir, hafði þjálfað í Vest-
mannaeyjum en var komin í Blik-
anna. Hún spurði hvort ég vildi
ekki koma þangað og mér leist bara
vel á liðið og sló til. Reyndar erum
við heldur neðar í töflunni en við
vildum, en þetta er ungt lið sem á
framtíðina fyrir sér. Við unnum til
dæmis Val í bikarnum og lentum á
móti KR í undanúrslitum, en það
er leikur sem við ætlum okkur að
vinna einnig.“
Fanndís á ekki langt að sækja
hæfileikana, en foreldrar hennar
eru báðir þekktar íþróttamann-
eskjur. Faðir Fanndísar er Friðrik
Friðriksson, fyrrum knattspyrnu-
markmaður, og móðir hennar er
Nanna Leifsdóttir, skíðakona. Þau
búa öll í Hafnarfirði þar sem Fann-
dís er í menntaskóla.
„Ég er á viðskiptabraut í Flensborg,
hef alltaf verið lagin með tölur. Ég
hef samt ekkert ákveðið með fram-
tíðina enn þá, enda svo sem nægur
tími til stefnu. Það eru þó margir
áhugaverðir kostir í stöðunni, eins
og að fara til Bandaríkjanna á fót-
boltastyrk. Einnig væri gaman að
gerast atvinnumaður í fótbolta, en
það er of snemmt að velta þessu
fyrir sér núna,“ sagði Fanndís að
lokum.
BLOGGARINN...
Orðakosning
„Kosningu um fegursta orö íslenskrar
tungu lýkur á miðnætti næstkomandi
mánudag. Kærleikur hefur tekið nauma
forystu eftir að tjósmóðir hefur leitt, einnig
naumlega, alla keppnina. Vonir dalalæðu
fara þverrandi, þó hefég frétt afþvíað
rekin sé öflug kosningabarátta fyrirþetta
ágæta orð iþriðja sætinu, en hvort það
dugar til að breyta einhverju er álitamál,
munurinn er orðinn það mikill. “
Anna Ólafsdóttir Björnsson
annabjo.blog.is
Hvað með
þjóhnappa?
„Kannski væri nær.að forsendur í keppni
um fegursta orðið á íslenskri tungu væru
aðrar. I fyrsta lagi er orðið kærleikur kom-
ið beint úr ertendum málum(kærlighed) og
þó innihald orðsins sé fallegt þá er orðið
sjálft ekkert sérstaklega fallegt. Nær væri
að taka rammíslensk orð eins og SÍMI eða
GEYSIR eða jafnvel TÖLVA. Notum a.m.k.
íslensk orð er við kjósum fegurðardrottn-
ingu íslenskra orða en ekki einhverjar
utlendar slettirekur sem sí og æ rekast
niður í hið ylhýra. “ Bergur Thorberg
kaffi.blog.is
Megas bestur
„Núna liggja fyrir úrslit íkönnun um það
hverjir eru bestu íslensku lagahöfundarnir.
Ég einskorðaði valið við þá sem eru innan
marka rokkgeirans. Par með útilokaði
ég góða vísnasöngvahöfunda og ýmsa
sem faiia utan rokksögunnar: Atla Heimi,
Jón Múla, Jón Ásgeirsson, Hörð Torfa,
Bergþóru Árnadótturo.s.frv. [...] Þannig
líturlistinn út: 1. Megas (63,3%) 2. Bubbi
(36,3%) 3. Magnús Eiríksson (11,7%) 4.
Gunnar Þórðarson (11,3%) 5. Magnús
Þór Sigmundsson (4,7%) 6. Jóhann
Helgason (4,0%) 7. Jóhann G. Jóhanns-
son (3,0%)“ Jens Kr. Guðmundsson
jensgud.blog.is
Verð kr. 4.990. -
Úísolustaðir: Snyrtiiföfuverslunin Nana Hófagarði, Heimahornið Síykkishólmi, Esar Húsavik,
Daliikjor Búðardal. Efnalaugin Vopnalirfti. Pex Reyðarlirði, Smart Vestmannaeyjufn
Opnunartími - Mán-fös 11-18 - Lau 11-14
fyort
wwvveÁtír
oóðcvn/
ituoKungp
LtUJJTUkJ
Hamraborg 7 Kópavogi
Sími 544 4088
www.ynja.is
Su doku
6 7 8 1 5
9 3 5 2
5 9
3 1 4
9 3 1 2
7 6
5 7 4 9
6 2
8 4 5 1 3 7
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem uþþ eru gefnar.
Nei, hann er ekki með sveinspróf,
en greinilega þaulvanur smiður.
9-21
O LaughingSlock International Inc7di8l. by United Modla. 2004
HERMAIT
eftir Jim Unger