blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 2
2
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR4.ÁGÚST2007
blaóið
Fjögur ný bifhjól
Fjögur ný og sérútbúin lögreglu-
bifhjól hafa verið sett út í umferð.
Standast þau allar þær kröfur sem
gerðar eru til lögreglubifhjóla í dag
og eru m.a. búin radarmælingar-
tækjum auk þess sem upptökubún-
aði verður komið fyrir í þeim síðar í
mánuðinum. Hjólin eru af Yamaha
FÍR-1300 gerðinni, vega 265 kíló og
eru 150 hestöfl. Hvert hjól kostar að
sögn Bílamiðstöðvar embættis rík-
islögreglustjóra um fimm milljónir
króna. Hjólin eru sögð mikil bylting
og hefur lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu, eftir þessa viðbót, yfir 10
bifhjólum að ráða. mbi.is
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu lokar nektardansstað
Strippið stöðvað
Veitingastaðnum Strawberries í
Lækjargötu hefur verið lokað. Lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu aft-
urkallaði í gær starfsleyfi hans þar
sem sú starfsemi sem þar fór fram
samrýmdist ekki leyfinu.
„Þarna var í gangi nektardans og
starfsemi sem gerir út á það,“ segir
Jón H. B. Snorrason, aðstoðarlög-
reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.
Hann segir að ekki hafi verið heim-
ild fyrir slíkri starfsemi samkvæmt
starfsleyfi. „Þetta kom i ljós í venju-
bundnu eftirliti sem er alltaf í gangi,“
sagði Jón aðspurður hvernig upp
komst um brotið.
I Reykjavík eru enn starfandi þrír
nektardansstaðir, Vegas, Óðal og
Café Bóhem. Samkvæmt heimildum
Blaðsins eru starfsleyfi þeirra til
athugunar í stjórnkerfinu og mun
Borgarráð Reykjavíkur að öllum Uk-
indum gefa álit sitt á þeim á næsta
fundi sínum. Einkadans hefur verið
bannaður í Reykjavík í nokkur ár.
í Blaðinu í gær kom fram að
nektardansstaðurinn Goldfinger í
Kópavogi hefði verið sviptur leyfi til
nektarsýninga.
elias@bladid.net
Saklaus af
íkveikjum
Fjórtán ára drengur, sem grun-
aður var um íkveikju á þremur
stöðum höfuðborgarinnar
aðfaranótt föstudags, er nú laus
úr haldi. Drengurinn neitaði sök
og telur lögregla að flest bendi til
þess að hann sé saklaus.
mbl.is
Stela ölllu
steini léttara
Þjófnaður virðist vera að komast
í tísku ef marka má vef lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Karl á þrítugsaldri var handtek-
inn í Kópavogi er hann ók um
vegi á stolnu bifhjóli. Þá er greint
frá því að þvottavél hafi verið
rænt úr fjölbýlishúsi miðborgar-
innar en fannst skömmu síðar í
fjölbýlishúsi í næsta nágrenni.
Þjófar þeir eru ófundnir. í
vesturborginni var brotist inn í
hjólhýsi og enn er ekki ljóst hvort
eitthvert þýfi var hirt þaðan. í
austurborginni hurfu sporlaust
tvær talstöðvar frá bensínstöð.
Skarst í andliti
Starfsmaður við Hellisheiðar-
virkjun var fluttur á slysadeild
í Reykjavík eftir að hann
hlaut höfuðáverka við vinnu-
slys. Atvikið átti sér stað í
gærmorgun. Starfsmaðurinn
var að festa stangarklemmu í
borstöng þegar svo illa vildi til
að kranamaður hífði stöngina
óvænt upp og klemman skall
í höfuð mannsins sem skarst í
andliti. Hann var þó með fulla
meðvitund þegar lögregla kom
á svæðið.
mbl.is
f mmn
Áframhaldandi
titringur
Hrina lítilla jarðskjálfta gekk
yfir svæðið í kringum Upptypp-
inga norðan Vatnajökuls í allan
gærdag.
Hrinan hófst um hálftíu um
morguninn og fjaraði ekki út
fyrr en upp úr hálffjögur. Enginn
skjálfti mældis yfir tvö stig og
er ekkert nýtt við þessa hrinu að
sögn Steinunnar Jakobsdóttur,
jarðeðlisfræðings og deildar-
stjóra eftirlitsdeildar eðlisfræði-
sviðs Veðurstofu íslands. Hún
segir skjálftana alla vera á miklu
dýpi og að hrinan staðfesti að
enn sé skjálftavirkni á svæðinu
en skjálftahrinur hafi gengið yfir
svæðið undanfarna daga.
mbl.is
Sæstrengur fremur
en vetnisflutningar
■ Orkunýting betri um sæstreng, segir orkumálastjóri
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
Þorkell Helgason orkumálastjóri
telur að ef hefja eigi útflutning á raf-
orku frá íslandi sé skynsamlegra að
leggja sæstreng og leiða rafmagnið
gegnum hann heldur en að flytja út
vetni. Væntanlega sé útflutningur
vetnis kostnaðarsamari og feli í
sér mun meira orkutap heldur en
flutningur rafmagns eftir sæstreng.
Það fáist einnig meiri hnattræn
minnkun á losun gróðurhúsaloftteg-
unda með því að senda rafmagnið
eftir streng.
Eigum að leita eftir hæsta verðinu
Vísindamenn Evrópusambands-
ins telja hagkvæmast að framleiða
vetni á íslandi, eins og Blaðið hefur
fjallað um siðustu daga. Telja þeir
að framtíðarorkuberi Evrópusam-
bandsins geti orðið vetni sem fram-
leitt væri með vatns- eða varmaorku
á fslandi.
Þorkell segir að svara þurfi því
hvaða áhugi sé hérlendis á beinum
útflutningi á orku, hvort sem er
með vetni eða í gegnum sæstreng:
„Það hlýtur að orka tvímælis að
vetnisútflutningur ætti að njóta
forgangs að hagkvæmustu raforku-
kostunum hér, eins og til dæmis
gæti fengist með djúpborun, eins
og gefið er í skyn í skýrslu Evrópu-
sambandsins. Við hljótum ávallt
að leita hæsta verðs fyrir þá orku
sem við viljum falbjóða en ekki
láta það fara eftir því til hvers hún
er notuð.“
VEÐRIÐ í DAG
Allt að 15 m/s vestast
Norðan 5-13 m/s en allt að 15 m/s vestast.
Súld með köflum norðanlands en léttir
heldur til sunnanlands. Hiti 6 til 17 stig, hlýj-
ast sunnan- og suðvestantil.
£& i ...
Vinna við sæstreng Orkumálastjóri
segir orkutap við vetnisflutning mun
meira en ef rafmagn er flutt um sæstreng
^ ii inin T" ~T T~r',irn í - t' r”~rrj
Orkutap 5-10 prósent
Þegar rafmagn er flutt eftir sæ-
streng er orkutapið Htið, að sögn
Þorkels, eða fimm til tíu prósent.
Orkutapið við útflutning á vetni er
hins vegar mun meira og gæti heild-
arorkutapið verið allt að fimmtíu
prósent á leiðinni frá virkjun á fs-
landi yfir til hafnar í Evrópu. Síðan
gæti einnig orðið verulegt orkutap
ef vetninu yrði aftur breytt í raf-
magn á áfangastað.
Ef ætlunin er ekki að breyta vetn-
inu aftur í rafmagn á áfangastað
heldur nota það beint á farartækin
þá yrði orkutapið hins vegar minna.
Engu að síður telur Þorkell að það
væri betri nýting á orkunni að flytja
hana út um sæstreng og láta hana
ÁMORGUN
Lægir síðdegis
Norðan og norðvestan 5-13 m/s en lægir
síðdegis, fyrst vestantil. Vestlæg átt 3-8
m/s um kvöldið. Rigning eða súld norðaust-
anlands fram til kvölds, en annars víða létt-
skýjað. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast sunnanlands.
SKÝRSLA ESB
►
Undanfari hennar er um-
fangsmikið rannsóknar-
verkefni sem miðar að því
að kortleggja hvernig megi
tryggja orkuöryggi Evrópu-
sambandsins í framtíðinni
með innflutningi á vetni, raf-
magni og gasi frá nágranna-
ríkjunum
►
ískýrslunni er gerð úttekt
á möguleikum á vetnisfram-
leiðslu á íslandi, í Noregi,
Búlgaríu, Alsír, Tyrklandi,
Rúmeníu og Marokkó.
þannig koma í stað rafmagns sem nú
er framleidd með jarðefnaeldsneyti.
ÚTGÁFA BLAÐSINS
Blaðið kemur næst út
miðvikudaginn 8. ágúst.
Leiðrétting
VÍÐA UM HEIM
Algarve 29
Amsterdam 21
Ankara 34
Barcelona 28
Berlln 21
Chicago 30
Dublin 19
Frankturt 22
Glasgow 19
Halifax 25
Hamborg 20
Helsinki 19
Kaupmannahöfn 19
London 25
Madrid 36
Mílanó 27
Montreal 26
Miinchen 22
New York 27
Nuuk 8
Orlando 23
Osló 22
Palma 25
Parls 23
Prag 24
Stokkhólmur 18
Þórshöfn 11
í Blaðinu sl. miðvikudag var sagt
frá nýjum veitingastað, Sjávar-
barnum, og hann sagður til húsa
á Grandavegi. Hið rétta er að
Sjávarbarinn er staðsettur að
Grandagarði 9.
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.