blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 4
FRETTIR LAUGARDAGUR 4.ÁGÚST2007 blaðiö Hreindýr á Arnarvatnsheiði Hreindýrskýr með kálf sást á orðið þess valdandi að kýrin leitaði ferð sinni um Arnarvatnsheiði, svo langt í vestur. Sjónarvottar vildu en ekki hefur áður sést til hrein- ekki gefa upp nánari staðsetningu dýra á því svæði. Heimildarmenn skepnanna því það yrði einungis til fréttavefjar Skessuhorns velta fyrir þess að menn freistuðust til að fella sér hvort skert búsetusvæði vegna hreindýrin. framkvæmda fyrir austan land hafi bm Nýtt altarisverk vígt í ísafjarðarkirkju á sunnudag Fuglar himinsins á loft Nýtt altarisverk í ísafjarðarkirkju verður vígt í messu á sunnudag. Höf- undur verksins er Ólöf Nordal og er það byggt á helgisögunni um lausn- arann og lóurnar. Altarisverkið samstendur af 749 leirlóum. Þær voru mótaðar í leir af sóknarbörnum fsafjarðarkirkju síðastliðinn vetur undir leiðsögn höfundarins. Hin upprunalega helgisaga er varðveitt í Bernskuguðspjalli Tóm- asar, sem ritað var seint á annarri öld af kristnum mönnum í Mesópót- amíu. Það tilheyrir svokallaðri Tóm- asarhefð innan apokrýfra rita Nýja testamentsins. Sagan finnst einnig í Kóraninum í breyttri útgáfu. Þroskahjálp smalar kerrum Skjólstæðingar Þroskahjálpar á Suðurnesjum sjá um að smala handfarangurskerrum í samstarfi við Fríhöfnina ehf. í þrjá mánuði. Er þetta hluti af tilraunaverkefni sem Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Þroskahjálp á Suðurnesjum hafa komið að samkomulagi um. Fréttavefur Víkurfrétta greindi frá þessu. Flugstöðin vill með þessu sam- komulagi auðvelda skjólstæð- ingum Þroskahjálpar á Suður- nesjum þátttöku á vinnumarkaði. Einnig sjá þeir þetta sem mögu- leika fyrir þá til að kynna sér starfsumhverfi flugstöðvarinnar sem er stærsti vinnustaðurinn á Suðurnesjum. hbv Fjögur sóttu um Hæstarétt Fjórar umsóknir bárust um embætti hæstaréttardómara, sem veitt verður frá og með 1. sept- ember. Þá lætur Hrafn Bragason af embætti fyrir aldurs sakir. Umsækjendurnir eru: Páll Sveinn Hreinsson, prófessor og deild- arforseti lagadeildar Háskóla íslands, Viðar Már Matthíasson, prófessor við lagadeild Háskóla ís- lands, Þorgeir Orlygsson, dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxem- borg og Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur. Níu tungumála leiðbeiningar Vinnueftirlitið hefur nú gefið út bækling á níu tungumálum með leiðbeiningum um vinnuvernd á íslandi fyrir erlenda starfsmenn. í bæklingnum má m.a. fá upp- lýsingar um skyldur og ábyrgð yfirmanna sem og mikilvægi persónuhlífa. Bæklinginn má nálgast á heimasíðu vinnueftir- litsins og má lesa hann á íslensku, ensku, litháisku, pólsku, rúss- nesku, serbó-króatísku, spænsku, taílensku og víetnömsku. bm Stórfelld hamingja ríkir á helgarhátíðum ■ Bannað að tjalda í Herjólfsdal ■ Öll tjaldstæði fyllast á Höfn ■ Ungmennum úthýst Eftir Björgu Magnúsdóttur bjorg@bladid.net Ofsaveður og lemjandi rigning eiga ekki við um stærstu útihátíðir helgarinnar. Veðurspá fyrir þjóðhá- tíð í Vestmannaeyjum er heldur betri en ætlað var fyrr í vikunni þó bannað hafi veri að tjalda í Herjólfsdal á fimmtudagskvöld. Þá ríkir mikil sæla á Höfn í Hornafirði þar sem hálfgert umferðaröngþveiti myndað- ist í gærmorgun þegar ákafir gestir Unglingalandsmótsins streymdu gal- vaskir að. Skiptar skoðanir eru um þá ákvörðun að banna einstaklingum undir 23 ára að tjalda á Akureyri. „Við þurftum að banna tjöldun i Herjólfsdal á fimmtudagskvöld en það voru einungis fyrirbyggjandi að- gerðir," segir Páll Scheving, sem situr í þjóðhátíðarnefnd. „Við opnuðum íþróttahúsið á fimmtudagskvöld þar sem á milli 300 og 400 manns gistu í fyrrinótt en þar kæmust leikandi fyrir tæplega 800 manns í gistingu." Það varð eins konar veðurhvellur aðfaranótt föstudags sem virtist þó ganga fljótt yfir. „Hér er sól og mér skilst að spáin sé fín fyrir helgina," segir Svava Dís Guðmundsdóttir, þjóðhátíðargestur. Þetta er hvorki hennar fyrsta útihátíð né sú siðasta. „Ég hef verið í Vestmannaeyjum nokkrum sinnum yfir verslunar- mannahelgi og sjaldan skemmt mér jafn stórkostlega, enda alltaf í góðra vina hópi.“ Hún segir þó að rigning Við öllu búnir Þessir peyjar voru kátir á leiö til Vestmannaeyja. hafi lamið svæðið hressilega aðfara- nótt föstudags en henni hafi slotað strax í gærmorgun. „Hér hefur mynd- ast mjög góð stemning og fólk byrjaði snemma að skvetta í sig,“ segir Svava. Páll segir að tjöldun hafi verið leyfð aftur í Herjólfsdal seinnipart föstudags. „Flugáætlun var sem skyldi fyrri hluta föstudags en mér skilst að flugbókanir hingað séu vel á þriðja þúsund. Þar að auki eru nokkur þúsund manns væntanlegir með Herjólfi." Öll tjaldstæði að fyllast Að sögn Ómars Braga Stefánssonar, framkvæmdastjóra Unglingalands- móts er dásamleg stemning á Höfn í Hornafirði. „Hér hefur fólk verið að streyma að, spáin er góð og keppnin er farin af stað.“ Keppendur á lands- mótinu eru tæplega þúsund en þó reikna mótshaldarar með hátt í tíu þúsund manns á svæðinu yfir helg- ina. „Tjaldstæði eru öll að fyllast og veðurspáin er að snúast okkur í hag.“ Á hátíðinni Einni með öllu á Akur- eyri var bjart yfir á föstudagsmorgun þó ekki sé bjart yfir einstaklingum 23 ára og yngri, sem hefur verið bannað að tjalda á svæðinu. Oddur Helgi Hall- dórsson bæjarfulltrúi telur það mál hið leiðinlegasta. „Það ætti auðvitað að líta á alla gesti hátíðarinnar sem au- fúsugesti, en ekki vandamál.“ Oddur telur jaðra við lögbrot að úthýsa unga VÍN UM HELGINA w Vikan fyrir verslunarmanna- r helgi er ein sú annasamasta á árinu hjá ÁTVR. ► Tæplega 35.000 ísiendingar koma í vínbúðir föstudag fyrir helgina. W í fyrra seldust um 700 lítrar af áfengi frá mánudegi til laugardags fyrir verslunar- mannahelgina. fólkinu. „Þetta er hrein mismunum og ætti að vera hlutverk hátíðarhald- ara að gæta þess að gæsla og önnur þjónusta séu nægileg fyrir gestina.“ Lækkandi barnadauði í Malaví „Upplýsingar um lækkandi barna- dauða eru kærkomnar. Þær sýna svo ekki verður um villst að ástand heilbrigðis getur batnað með sam- ræmdum aðgerðum og bættum um- hverfisaðstæðum," segir Sigurður Guðmundsson landlæknir og ráð- gjafi Þróunarsamvinnustofnunar í Malaví. f nýlegri skýrslu Save The Children er vakin sérstök athygli á því að dauðsföllum barna undir fimm ára aldri hafi fækkað mjög í Malaví á síðustu fimmtán árum. Sigurður segir það sérstaklega eftirtektarvert og ánægjulegt að ný- lega hafi komið fram upplýsingar um verulegar framfarir í Malaví á sumum sviðum heilsu og umhverfis. „Samkvæmt könnunum hefur dánar- tala nýbura, að eins mánaðar aldri, lækkað um 9%, ungbarna, að eins árs aldri, lækkað um 18% og barna undir fimm ára um 29% undanfar- inn áratug,“ segir Sigurður. Hann bendir hins vegar á að hlut- fall fæðinga sem sinnt er af mennt- uðum ljósmæðrum hafi lækkað um 6% síðustu þrjú árin og nú séu um 54% allra fæðinga sinnt af lítt þjálfuðum yfirsetukonum úti í þorp- unum. „Mæðradauði jókst verulega eða um 80% á tíunda áratugnum, liklega að mestu vegna alnæmis og hefur því miður staðið í stað síðast- liðinn áratug,“ segir hann. Hlutfall HlV-smitaðra óbreytt Sigurður segir að rúmlega 14% fullorðinna séu sýkt af HIV, og hvorki hafi orðið nein breyting þar á síðastliðinn áratug, né sé breyt- inga vænst á næstu árum. „Þessu er mjög á annan veg farið í sumum öðrum löndum, t.d. Úganda, Eþí- ópíu, Rúanda og Sambíu þar sem al- gengi HlV-sýkingar hefur minnkað verulega," segir Sigurður.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.