blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST2007 blaöiö Kukl og ketilbjöllur Um helgina verður haldin kynngimögnuð galdrasýning á Ströndum. t dag, laugardag verður Tómas Ponzi myndlist- armaður daglangt á Galdra- safninu á Hólmavík og mun hann teikna portrett af gestum og gangandi. Á morgun, sunnudag, verður kynning á íþróttinni ketil- bjöllum (e. kettlebells) en hún verður í höndum Völu Markar og Guðjóns Svanssonar frá Svanshóli. íþrótt þessi ku henta sérstaklega þeim sem hafa hug á því að styrkjast og auka á úthald sitt. Ketilbjöllukynningin verður frá kl. 14 til 16, en hún er ætluð gestum 14 ára og eldri. Bætt fjarskiptí Vestfirðinga Flutningsgeta Mílu ehf. hefur tvöfaldast svo nú batna fjar- skipti Vestfirðinga til muna og möguleikar vestfirskra fyr- irtækja stóraukast í kjölfarið, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. í fyrra var flutningsgetan aukin úr 2x155 Mbit/s upp í 622Mbit/s. STUTT • Ný stjórn TR Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur skipað fimm manna stjórn Tryggingastofnunar ríkisins. Benedikt Jóhannesson er for- maður og Karl V. Matthíasson varaformaður. Að auki voru Margrét S. Einarsdóttir, Sigríður Jóhannesdóttir og Sigursteinn Másson skipuð í stjórn TR. • Innflytjendaráð Félagsmála- ráðherra hefur skipað Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðar- mann félagsmálaráðherra, formann innflytjendaráðs í stað Sæunnar Stefánsdóttur, fyrrum alþingismanns. Amal Tamimi, starfsmaður í Alþjóða- húsi, verður varaformaður. • Flóttamannanefnd Félags- málaráðherra skipaði Guðrúnu Ögmundsdóttur, fyrrverandi alþingismann, formann flótta- mannanefndar í stað Árna Gunn- arssonar. Ingibjörg Broddadóttir, deildarstjóri í félagsmálaráðu- neyti, verður varaformaður. Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga ^Hja' HjartaHeill simi 552 5744 Giró- og kreditkortþjónusta Stuðningur við lækkun áfengisgjalda Fullfærir um að taka ákvarðanir // Stjórnmálamenn í flestum flokkum hafa undanfarnar vikur lýst yfir stuðningi við lækkun áfengisgjalda. Ágúst Ólafur Ág- ústsson, varaformaður Samfylk- ingarinnar, reið á vaðið og sagði í Blaðinu 18. júlí sl. að neyslustýring skilaði ekki árangri, og að hann vildi að áfengisgjöld yrðu lækkuð. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokks- ins, tók í sama streng tveimur dögum síðar: „íslendingar eru full- færir um að taka ákvarðanir um áfengisneyslu sjálfir, án þess að stjórnvöld stýri neyslu með háum áfengisgjöldum." Innan stjórnarandstöðunnar er einnig að finna vilja til að endur- skoðaáfengisgjöld.BæðiKatrínJak- obsdóttir, varaformaður Vinstri- hreyfingarinnar græns framboðs (VG), og Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG, lýstu því yfir í samtali við Blaðið í síðasta mánuði að þau vildu endurskoða gjöld á áfengi. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, tók í sama streng. ,,[Ég] styð það að gjöld á léttvín og bjór verði lækkuð, og ég held að stefna Fram- sóknarflokksins sé almennt í þessum anda.“ Það eru ekki bara stjórnmála- menn sem hafa lýst yfir stuðningi við lækkun áfengisgjalda. Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur sagði á blog.is 30. júlí að lækkun áfeng- isverðs yki ekki neyslu, og Erna ijálfir" Hauksdóttir, fram framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, sagði í Islandi í dag 20. júlí: „Þau Norður- lönd sem eru í Evrópusambandinu hafa lækkað sitt áfengisgjald gríð- arlega mikið, alveg upp í 50 pró- sent ... [Þ]eir áttuðu sig á því að með því að lækka áfengisgjaldið voru þeir bæði að fá kaupin heim, en ekki hinum megin við landa- mærin, og auk þess varð meira um löglega neyslu.“ hlynur@bladid.net >ýr vara Áfengisverð hér á landi er 126 prósentum yfir meðalverði í Evrópusambandinu. Blaöiö/Frikki Lög um áfengi líklega rædd á næstunni ■ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að leggi hann ekki fram frumvarp um breytingu á áfengislögum á Alþingi í haust geri einhver annar það Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Líklegt er að brey ting á lögum um áfengisgjöld verði til umræðu þegar þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kemur saman, segir Arnbjörg Sveins- dóttir, þingflokksformaður flokks- ins. „Ég geri ráð fyrir því að einhver taki þetta mál upp, enda margir sem hafa lýst yfir áhuga á brey tingu í þessum efnum.“ Arnbjörg segir að þar sem hún sé þingflokksformaður sé ólíklegt að hún taki málið sjálf upp, en að hún muni íhuga að vera meðflutningsmaður að frumvarpi um breytingu á áfengislögum verði það lagt fram. Sigurður Kári líklegur Sigurður Kári Kristjánsson, þing- maðurSjálfstæðisflokksins.útilokar ekki að hann muni leggja frumvarp um breytingu á áfengislögum fram. „Ég er að fara yfir það núna, og það skýrist á næstu vikum hvað ég geri í þessum efnum.“ Sigurður telur líkegt að leggi hann sjálfur ekki fram frumvarpið muni einhver annar gera það, og telur ekki ólíklegt að þingmeirihluti sé fyrir breytingu á umræddum lögum. „En vandinn er sá að vinnu- lagið í þinginu hefur einhverra hluta vegna verið þannig að þingmanna- frumvörp hafa sofnað i nefndum. En við sjáum til hvort nú verði breyt- ing þar á.“ Forystumenn innan allra flokka nema Frjálslynda flokksins hafa lýst yfir vilja til að endurskoða lög um áfengisgjöld, en mikil umræða um þessi mál fór af stað í síðasta mánuði í kjölfar fréttar í Blaðinu um að áfengisverð hér á landi væri 126 prósentum yfir meðalverði í Evr- ópusambandinu. Ágúst Ólafur Ág- ústsson, varaformaður Samfylking- arinnar, lýsti því meðal annars yfir að áfengisstefna undanfarinna ríkis- VILJI TIL BREYTINGA ► Verð áfengis á íslandi er 126% hærra en að meðal- tali í Evrópusambandinu. Aðeins í Noregi er áfengi dýrara. ► Áfengisgjald á íslandi er langhæst í Evrópu og þótt víðar væri leitað. ► Fimmtungur stjórnarliðsins hefur flutt þingmál um lækk- un áfengisverðs. stjórna væri gjaldþrota. Hann segist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann hafi frumkvæði að breytingu á umræddum lögum. „En ef það er þverpólitískur vilji fyrir þessum breytingum, eins og mér sýnist vera, er best að nýta sér hann.“ Ráðherra enn á sömu skoðun Þegar hefur fimmtungur stjórn- arliða lagt til að reglur og lög um áfengissölu verði endurskoðuð og í þeim hóp eru þrir ráðherrar nú- verandi ríkisstjórnar. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra er einn þeirra, en hann hafði fyrir nokkrum árum frumkvæði að frum- varpi um að lögum um áfengissölu yrði breytt. „Ég hef ekki skipt um skoðun i þessum efnum, heldur bent á hið augljósa; að sem heil- brigðisráðherra eru þessi mál ekki á mínu borði. En frumvarpið sem ég lagði fram liggur fyrir, þannig að það vita allir hvaða skoðun ég hef í þessum efnum.“ Guðlaugur segir að ekki eigi að stefna að því að áfengi verði ódýr vara. „En áfengisverð hér á landi er mun hærra en í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Það er eðlilegt að við spyrjum okkur hvort við viljum að svo sé.“ Andstaða við lækkun áfengisgjalda Lítið aðgengi og hátt verð minnka neyslu Ýmsir hafa lýst áhyggjum af þeim vilja sem virðist vera til staðar hjá þingmönnum landsins til að lækka gjöld á áfengi. Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri SÁÁ, sagði í Blaðinu 19. júlí: „Fjöl- margar rannsóknir virtra fræði- manna sýna, svo ekki verður um villst, að það eru fjórir þættir sem draga úr neyslu áfengis. Þeir þættir eru hátt áfengisgjald, tak- markaður fjöldi sölustaða áfengis, hár áfengiskaupaaldur og bann við áfengisauglýsingum." Ari telur að aukin neysla komi verst niður á þeim sem þegar eigi um sárt að binda sökum eigin áfeng- isvandamála, eða vandamála fjölskyldumeðlima. Hörður Svavarsson áfengis- ráðgjafi sagði í Kastljósi 30. júlí: „Áfengisvandi hér er í ágætum böndum og það er meðal annars vegna þess að áfengisverð er hátt og við höfum gott aðgengi að ódýrri meðferð. [...] Það er rangt [hjá Ágústi Ólafi Ágústssyni, vara- formanni Samfylkingarinnar] að þessi stefna sé gjaldþrota. Hún virkar ágætlega." Þá sagði Þorsteinn Pálsson rit- stjóri í leiðara Fréttablaðsins 23. júlí að ekki væri æskilegt að lækka áfengisverð, því þá yrði ríkið af svo miklum tekjum. „Tiu hundr- aðshlutar af heildartekjum ríkis- sjóðs af áfengi fara sennilega langt með að kosta rekstur Háskólans á Akureyri,“ sagði Þorsteinn. hlynur@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.