blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 8
8
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR4.ÁGÚST2007
blaöió
Danir gera grín að heimskautaleiðangri Rússa
Hefur enga þjóðréttarlega þýðingu
Færeyjar
Rússneskur
togari sökk
Rússneskur togari, Olshana,
strandaði í Tangafirði í Fær-
eyjum á fimmtudagskvöld
og sökk í gærmorgun eftir
árangurslausar tilraunir til að
ná honum á flot. Togarinn er nú
á sjötíu metra dýpi, en hann var
nýbúinn að taka olíu í Kollafirði
og var á leið til fiskiveiða þegar
hann strandaði. Um 270 tonn af
gasolíu voru í togaranum þegar
hann sökk og er talið að um
fimmtán tonn af olíu hafi lekið
úr tanki sem rifa kom á og eru
olíuflekkir á sjónum. Flekkina
hefur rekið inn á Skálafjörð,
Kaldbaksfjörð, Sundalagið og á
Kollafjörð. mbl.is
Hryðjuverk í Glasgow
Bílstjórinn
látinn
Maðurinn sem ók alelda jeppa
inn í flugstöðvarbyggingu
Glasgow-flugvallar í lok júní-
mánaðar lést af völdum brun-
asára á sjúkrahúsi í Skotlandi
í gær. Kafeel Ahmed, sem var
ættaður frá Bangalore á Ind-
landi, hlaut brunasár á níutíu
prósent 1 íkamans og var undir
stöðugu eftirliti lögreglu allt
þar til hann lést.
Ahmed kom einnig að
misheppnuðum hryðjuverka-
árásum í Lundúnum tveimur
dögum fyrr, þar sem öflugur
sprengibúnaður fannst í
tveimur bílum í miðborginni.
al
STUTT
• Gasleiðslur Rússneska gasfyr-
irtækið Gazprom hefur frestað
því að skrúfa fyrir gasleiðslur
til Hvíta-Rússlands og gefið
yfirvöldum þar í landi frest til
10. ágúst til að greiða vangoldnar
skuldir upp á andvirði um
sautján milljarða króna.
• Madeleine Lögregla í
Belgíu leitar nú karlmanns
sem sást á veitingastað í
bænum Tongeren, skammt
frá Maastricht, ásamt stúlku
sem líktist bresku stúlkunni
Madeleine McCann. Stúlkunni
var rænt í Portúgal í upphafi
maímánaðar.
Peter Taksoe-Jensen, talsmaður
danska utanríkisráðuneytisins, segir
að Danir gefi lítið fyrir en hafi nokk-
urt gaman af heimskautaleiðangri
Rússa þar sem þeir komu fyrir fána
á hafsbotni á norðurpólnum í gær,
fyrstir þjóða. „Með tilliti til þjóðréttar
hefur þetta ekki nokkra þýðingu."
Með leiðangrinum ætla rússnesk
stjórnvöld að renna stoðum undir til-
kall sitt til stórs heimskautasvæðis,
þar sem gríðarlegar olíu- og gaslindir
finnast undir hafsbotni.
Talsmaður rússnesku heimskauta-
stofnunarinnar segir leiðangurinn
geta tryggt að rússneskt yfirráðasvæði
stækki um meira en 1,2 milljónir fer-
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Bandarísk yfirvöld hafa fyrir-
skipað að allar býr í Bandaríkjunum,
sambærilegar þeirri sem hrundi
ofan í Mississippifljótið í borginni
Minneapolis á miðvikudagskvöld,
verði þegar í stað yfirfarnar í örygg-
isskyni. Að minnsta kosti fimm
manns létust þegar brúin hrundi
og átta er enn saknað. Enn eru
tíu bílar í ánni, en björgunarstarf
hefur gengið hægt þar sem grugg-
ugt fljótið hefur gert köfurum erfitt
fyrir. Tæplega áttatíu manns hafa
fengið aðhlynningu á sjúkrahúsum
vegna slyssins, aðallega vegna bein-
brota, höfuð- og hryggjarmeiðsla.
Brúarslysið er það versta í landinu
í um tuttugu ár.
Síaukinn umferðarþungi
Harry Reid, öldungadeildarþing-
maður demókrata, segir að líta beri
á harmleikinn í Minneapolis sem
ærlega áminningu. Hann segir að
víðs vegar um landið séu gallar á
vegum, brúm og stíflum sem nauð-
synlegt sé að taka til gaumgæfi-
legrar skoðunar. Robert Poole, sér-
stakur ráðgjafi samgönguyfirvalda,
segir að gæði bandarískra vega fari
hrakandi vegna síaukins umferðar-
þunga og ófullnægjandi viðhalds.
kílómetra. „Þetta er mjög mikilvægt
verkefni, þar sem bráðnun (ssins gerir
það mögulegt að vinna olíu, málm og
gas á landgrunninu. Önnur ríki, þar
á meðal Kanada, Island, Noregur, Svi-
þjóð og Finnland hafa verið að bætast
í baráttuna um þetta landgrunn."
Á fréttavef Spiegel segir að rúss-
neskir fjölmiðlar hafi greint frá því
að bandarískur leiðangur hafi lagt af
stað frá Noregi í síðasta mánuði til að
rannsaka Gakkel-hrygginn i Norður-
íshafi. Þar segir að leiðangurinn
hafi verið liður í kapphlaupi Rússa
og Bandaríkjamanna að kanna auð-
lindir á svæðinu þar nyrðra.
Gennady Zyuganov, formaður
► Brúin var byggð árið 1967
og átta akreina. Daglega
hafa um 140 þúsund bílar
farið um brúna.
► George Bush Bandaríkjafor-
seti segir stjórnvöld munu
aðstoða borgarbúa við að
endurbyggja brúna. Bush
sækir Minneapoiis heim í
dag.
þegar hún hrundi.
I skýrslu bandarískra samgöngu-
yfirvalda frá árinu 2005 voru burð-
arvirki rúmlega 75 þúsund brúa í
Bandaríkjunum sögð vera í ófull-
nægjandi ásigkomulagi. Rúmlega
600 þúsund brýr eru í Bandaríkj-
unum. Sérfræðingar telja að kostn-
aður við nauðsynlegar endurbætur
á öllum brúm landsins muni reikn-
ast á milli 3.500 og rúmlega 11.000
milljarða króna.
Dýrar endurbætur
Á vef Washington Post segir að þó
aldrei hafi meiru verið varið í sam-
göngumál í Bandaríkjunum en nú,
þá virðist það ekki vera nóg til að
halda við hraðbrautum og brúum
Kommúnistaflokksins í Rússlandi,
segir að ólíkt öðrum ríkjum þá hafi
Rússar lagalega og siðferðislega skyldu
til að rannsaka heimskautasvæðið.
„Við erum með þúsund kílómetralanga
landsins með skikkanlegum hætti.
Poole segir samgönguyfirvöld sí-
fellt vera að dragast lengur aftur
úr. „Þjóðinni vegnar vel, almenn-
ingur keyrir meira en áður og við
flytjum fleiri vörur um vegina sem
strandlengju að Norður-Ishafi. All tal
um að þetta svæði tilheyri Noregi,
íslandi, Danmörku, Grænlandi eða
Kanada er óréttlætanlegt."
hefur þau áhrif að það gengur hratt
á vegina.“
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á biadid@bladid.net
atlii@bladid.net
Fjöldi bandarískra
brúa og vega í ólagi
■ Ástand 75 þúsund brúa í Bandaríkjunum sagt ófullnægjandi ■ Verri vegir með ófull-
nægjandi viðhaldi og síauknum umferðarþunga ■ Samgönguyfirvöld dragast aftur úr
( 'N
Ftjú ofefeucr fáíð wú\zið uln/í?l af
feemcm, og vö0iA,wm fyrír bön/wpu
BabySam
Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
____www.bqbysam.is
Mikil flóð í Indlandi, Bangladess og Nepal
Tuttugu milljónir á flótta
Um tuttugu milljónir manna
hafa neyðst til að flýja heimili sín
vegna mikilla flóða í norðurhluta
Indlands, Bangladess og Nepals
síðustu vikurnar. Vegir og heilu
bæirnir hafa skolast til og hafa um
tvö hundruð manns látist af völdum
flóðanna síðustu daga. I indverska
héraðinu Assam hefur loftherinn
reynt að koma hjálpargögnum til
bágstaddra, sem þó eru af skornum
skammti. Ekkert lát virðist vera á
rigningunum og hafa fjölmargir
gagnrýnt viðbrögð stjórnvalda á
Indlandi vegna flóðanna.
Miklar rigningar hafa gengið yfir
svæðið síðustu þrjár vikurnar og
hefur yfirborð sumra fljóta hækkað
um allt að tíu metra. Þúsundir íbúa
hafa leitað upp til fjalla og blasir
mikill uppskerubrestur víða við
enda hafa um fimm milljónir hekt-
arar lands lagst undir vatn.
Frá upphafi rigningatimabilsins
í júní hafa um þúsund manns látist
af völdum flóða og aurskriðna í suð-
austurhluta Asíu. Reiknað er með að
tala látinna muni hækka enn frekar
þegar fréttir berast frá afskekktari
svæðum. Á fréttavef BBC segir að
sums staðar séu flóðin þau verstu í
manna minnum.
atlli@bladid.net