blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 16
FEOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
LAUGARDAGUR4.ÁGÚST2007
Ég held að þeir geirar sem taka kipp
á þessum árstíma vegi upp þann
samdrátt sem verður á öðrum sviðum.
blaöiö
Spá metsölu á tvinnbílum vestra
Allt útlit er fyrir að sala á tvinn-
bílum í Bandaríkjunum verði
meiri á þessu ári en nokkru sinni
fyrr, samkvæmt upplýsingum
bílaupplýsingaveitunnar J.D.
Power, sem spáir því að alls muni
345.000 slíkir bílar seljast á árinu,
eða 35% fleiri en í fyrra. Toyota
Prius er sem fyrr mest seldi
tvinnbíllinn.
Samkeppni á tvinnbílamarkað-
inum mun þó vaxa á komandi
árum, segir J.D. Power. Allt að
6; tvinnbílategundir verða á boð-
stólum 2010, þar af rúmlega helm-
ingurinn jeppar, og er því spáð
að þá verði seldir hátt í 755.000
tvinnbílar á ári.
mbl.is
Staöa útflutningsfyrirtækja versnar
Seðlabanki íslands birti í dag
raungengi fyrir júlí. Raungengi
í júlí mældist 113,4 stig miðað
við 111,5 í júní og hefur ekki verið
sterkara í 16 mánuði. í Hálffimm-
fréttum Kaupþings í gær sagði:
„Raungengi er vísitala sem lýsir
hlutfallslegu verðlagi hérlendis
miðað við útlönd. Hátt raungengi
eins og mælst hefur að undan-
förnu veikir samkeppnishæfni
þeirra fyrirtækja sem standa í
útflutningi." Raungengi er 16,7
prósentustigum hærra en á sama
tíma í fyrra. Frá áramótum
hefur raungengi hækkað um 12,2
prósent.
hos
Hagnaður RBS
umfram spár
Royal Bank of Scotland skilaði
3,56 milljörðum punda í hagnað á
fyrstu sex mánuðum ársins. Þessi
hagnaður er 19 prósentum meiri
en fyrir sama tímabil í fyrra. Þetta
er töluvert meira en fjármálaspek-
ingar höfðu spáð.
Borgað fyrir
hverja tösku
Breska lággjaldaflugfélagið
easyjet áformar að láta farþega
greiða sérstaklega fyrir hverja
tösku sem þeir vilja taka með
í flugferðum. Til þessa hafa
farþegar ekki þurft að greiða séu
þeir aðeins með eina tösku en
greiða þarf fyrir umframtöskur.
Þetta mun þó ekki gilda um hand-
farangur. Reuters segir regluna
taka gildi í október.
mbl.is
Hlutur LME í Stork eykst
Hlutur LME eignarhaldsfélags, sem er í eigu Landsbankans, Marels
og Eyris, í hollenska matvælafyrirtækinu Stork er nú orðinn 25,4% en
fyrir tæpum mánuði var hluturinn 19,5%. í Morgunkorni Glitnis segir
að þetta sé til marks um áhuga stærstu eigenda Marels á að eignast
Stork Food Systems, dótturfélag Stork.
Jafnframt segir í Morgunkorni að með kaupunum aukist likur á að
Marel nái Stork Food Systems út úr móðurfélaginu.
Þá hafi líkurnar minnkað á að breska fjárfestingarfélagið Candover
nái að taka yfir Stork en LME er meðal þeirra aðila sem hafa hafnað
tilboði Candover.
mbl.is
Sumarlokanir
í hámarki
■ Mörg fyrirtæki hafa lokað í lok júlí og byrjun ágúst ■ Þeir geirar
sem taka kipp vega upp samdráttinn sem verður annars staðar
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
LOKAÐ
Þótt lesendur Blaðsins taki von-
andi sem minnst eftir því, er það
ekki tekið út með sæld að vera blaða-
maður yfir hásumarið. Ástæðan er
einföld; það eru allir í sumarfríi.
Hvort sem blaðamann vantar upp-
lýsingar hjá opinberum stofnunum
eða einkafyrirtækjum, eða svör frá
ráðuneytum, kemur hann oftar en
ekki að tómum kofunum.
„Upp úr miðjum júní eru atvinnu-
greinar sem ekki tengjast ferðaþjón-
ustu mikið til á hálfri ferð og síðustu
tvær vikurnar í júlí eru sérstaklega
rólegar,“ segir Vilhjálmur Egils-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins. Skrifstofa samtak-
anna er, eins og skrifstofur margra
annarra stofnana, lokuð fram yfir
verslunarmannahelgi. „Það hefur
ekki verið kvartað yfir því - a.m.k.
ekki mikið. Enda er fólk meira eða
minna í sumarfríi hvort eð er.“
Vilhjálmur segir sum einkafyr-
►
Meðal stofnana sem gefa
starfsmönnum frí þessa
dagna eru Nýsköpunarmið-
stöðin nýstofnaða, Samtök
atvinnulífsins og Lands-
samband íslenskra útvegs-
manna.
w Hjá mörgum framleiðslu-
r fyrirtækjum, bæði í sjávar-
útvegi og iðnaði, liggur nú
starfsemi einnig niðri.
irtæki einnig loka alveg á þessum
tíma. „Það á t.d. við um mörg fram-
leiðslufyrirtæki í sjávarútvegi og
iðnaði. Eftir verslunarmannahelgi
fara hjól atvinnulífins að snúast
aftur, og þegar skólarnir byrja eftir
miðjan ágúst er allt komið á fullan
skrið.“
Breytt neysluhegðun
Ingólfur Bender, forstöðumaður
greiningardeildar Glitnis, segir
neysluhegðun fólks breytast á
þessum árstíma. „Það verður nið-
ursveifla á vissum mörkuðum en
uppsveifla á öðrum. Stórviðskipti
minnka mikið, og ekki er mikið um
flutninga fólks á milli vinnustaða.
En önnur viðskipti taka við sér, t.d.
í tengslum við ferðamennsku.“
„Ef maður lítur á Island í sam-
anburði við önnur lönd, þá er hér
á landi langt sumarfrí í skólum,
sem þýðir að fólk hefur meira svig-
rúm til að skipuleggja sumarfrí
sitt. Þannig að ólíkt því sem gerist
í Skandinaviu, dettur ekki öll starf-
semi niður hér þegar skólarnir eru í
fríi,“ segir Ingólfur
Ingólfur segist ekki telja að sam-
dráttur verði í landsframleiðslu
þrátt fyrir að stór hluti þjóðarinnar
sé í fríi. „Töluverðar tekjur verða
til vegna ferðaiðnaðar, og auk þess
eyðir fólk almennt meiri pening
þegar það er í fríi. Þannig að ég
held að þeir geirar sem taka kipp á
þessum árstíma vegi upp þann sam-
drátt sem verður á öðrum sviðum.“
________ ±
I
Kafflsala
kl. 11.30 -17
œ * œ
Kr. 1100 fyrir fullorðna Nánari
Ferjugjald, vaffla upplýsingar
og kaffi/kakó www.videy.com
Kr. 600 fyrir börn 533 5055
Ferjugjald, vaffla
og safi H : Reykjavíkurborg
MARKAÐURINN í GÆR
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 3. ágúst 2007
Viðskipti í krónum Heildar-
ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi viöskipti Tilboð í lok dags:
Félög í úrvalsvísitölu verð breyting viösk.verðs viðskipta dagsins Kaup Sala
Atorka Group hf. 9,38 ■0,74% 3.8.2007 5 485.268.578 9,38 9,45
Bakkavör Group hf. 66,90 -0,89% 3.8.2007 39 193.904.447 66,00 66,90
Exista hf. 36,35 -2,55% 3.8.2007 64 463.668.897 36,35 36,65
FL Group hf. 27,10 -3,04% 3.8.2007 40 809.078.787 27,05 27,20
Glitnir banki hf. 29,25 ■1,02% 3.8.2007 82 1.295.389.874 29,15 29,25
Hf. Eimskipafélag íslands 40,85 ■0,61% 3.8.2007 12 124.340.011 40,85 41,10
lcelandair Group hf. 28,80 ■0,52% 3.8.2007 14 130.040.835 28,70 28,90
Kaupþing banki hf. 1185,00 ■2,07% 3.8.2007 156 5.043.258.620 1182,00 1185,00
Landsbanki Islands hf. 39,70 -1,73% 3.8.2007 102 1.549.173.899 39,70 39,75
Mosaic Fashions hf. 17,20 - 30.7.2007 - - 17,30
Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 20,85 ■1,42% 3.8.2007 64 439.397.067 20,70 20,85
Teymi hf. 5,62 ■0,88% 3.8.2007 17 19.032.589 5,60 5,62
össur hf. 108,50 0,46% 3.8.2007 7 2.130.573 108,50 109,00
Onnur bréf á Aðallista
365 hf. 3,14 ■1,88% 3.8.2007 2 1.768.736 . 3,14 3,17
Actavis Group hf. 86,20 - 20.7.2007 - ' ■ -
Alfesca hf. 5,78 ■0,17% 3.8.2007 1 127.357 5,78 5,83
Atlantic Petroleum P/F 1120,00 ■0,36% 3.8.2007 1 642.992 1121,00 1126,00
Eik Banki 737,00 Ofi.7% 3.8.2007 6 6.173.297 720,00 736,00
Flaga Group hf. 1,70 . 3.8.2007 4 1.538.264 1,69 1,71
Foroya Bank 259,00 -0,38% 3.8.2007 7 4.862.627 250,00 262,50
lcelandic Group hf. 6,04 0,00% 2.8.2007 - - 5,96 6,05
Marel hf. 96,30 0,10% 3.8.2007 5 1.490.050 95,90 96,40
Nýherji hf. 20,70 - 1.8.2007 - - 21,00 21,90
TryggingamiðstMin hf. 39,80 . 31.7.2007 . - 39,80 40,20
Vinnslustööin hf. 8,50 - 25.7.2007 - -
First North á islandi
Century Aluminium Co. 3065,00 -1,76% 3.8.2007 5 46.050.000 3050,00 3094,00
HB Grandi hf. 11,00 - 18.7.2007 . . 11,80
Hampiðjan hf. 6,50 - 20.6.2007 . . 6,75
• Mest viðskipti í kauphöll OMX í
gær voru með bréf Kaupþings, fyrir
rúma 5,0 milljarða króna. Næst-
mest viðskipti voru með bréf Lands-
bankans, eða fyrir 1,5 milljarða.
• Mesta hækkunin var á bréfum
Össurar, eða 0,46%. Bréf Eik
Banka hækkuðu um 0,27%.
• Mesta lækkunin var á bréfum
FL Group, eða 3,04%. BréfExista
lækkuðu um 2,55% og bréf Kaup-
þings um 2,07%.
• Úrvalsvísitalan lækkaði um
0,74% og stóð i 8.402 stigum í lok
dags.
• fslenska krónan veiktist um
2,43 prósent í gær.
• Samnorræna OMX40-vísitalan
lækkaði um 1,44% í gær, þýska
DAX-vísitalan um 1,3% og breska
FTSE-vísitalan um 1,2%.