blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 17
blaðió
LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2007
FRÉTTIR
17
Hagnaöur Toy-
ota eykst mikið
Hagnaður japanska bílafram-
leiðandans Toyota á öðrum
ársfjórðungi nam 491,5 millj-
örðum jena, jafnvirði 260 millj-
arða króna, og jókst um 32,3%
frá sama tímabili í fyrra. Segir
Toyota ástæðuna vera góða
sölu og lágt gengi japanska
jensins.
Allt stefnir í að Toyota verði
á þessu ári stærsti bílafram-
leiðandi heims og fari fram úr
General Motors.
mbl.is
Fisher Price leik-
föng innkölluö
Leikfangafyrirtækið Mattel
hefur innkallað 83 gerðir
af Fisher-Price-leikföngum
víðsvegar um heiminn, sem
voru framleidd í Kína. Er
hér um að ræða eina og hálfa
milljón leikfanga, þar af 967
þúsund í Bandaríkjunum.
Ástæðan fyrir innkölluninni
er sú að leikföngin voru máluð
með málningu sem inniheldur
mun meira blýmagn en leyfi-
legt er.
Mikill ótti er meðal foreldra í
Bandaríkj unum vegna blýmáln-
ingarinnar en 80 prósent af
öllum leikföngum eru búin til
í Kína. Duft, sem lítur út eins
og duft eftir töflukrít, getur
komið af blýmálningunni sem
auðvelt er fyrir börn að gleypa.
Hafa sérfræðingar ráðlagt
foreldrunum sem óttast að
börn þeirra hafi komist í færi
við of mikið blýi í innkölluðu
leikföngunum að fara með þau
til læknis og í blóðprufu.
Leikfangaframlciðandinn RC2
innkallaði í júní siðastliðnum
eina og hálfa milljón tréleik-
fangalesta þar sem málningin
innihélt blý.
Hjá seljendum leikfanga hér á
landi fengust þær upplýsingar
að engin boð hefðu komið
frá Mattel um innköllun
leikfanga í Evrópu svo vitað
sé. Framleiðsla fyrirtækisins
fyrir Evrópumarkað og
Bandaríkjamarkað er aðskilin.
hbv
Dýrir föstudagar
Bresk fyrirtæki eru talin verða
af allt að fimmtíu milljónum
punda árlega vegna þess að
starfsfólk fer snemma heim úr
vinnunni á föstudögum, sam-
kvæmt niðurstöðum könnunar
sem birtar voru í dag. Helstu
afsakanirnar sem fólk gefur
fyrir því að hætta snemma eru
stuttur hádegisverður, tími hjá
lækni og fundur skammt frá
heimilinu.
mbl.is
Danske Bank gagnrýnir íslenskt hagkerfi og segir þrýsting á krónuna munu aukast
Byggist á
íslenska krónan hefur verið undir
miklum þrýstingi undanfarnar
vikur og þrýstingurinn á eftir að
aukast á næstunni, eftir því sem
segir í nýju áliti sem Danske Bank
gaf út í gær.
Sérfræðingur danska bankans,
Lars Christensen, bendir á að ís-
lenska hagkerfið sé líklega hið fyrsta
í heiminum sem byggist á skuld-
settum yfirtökum. Þessi stefna hafi
gefist vel við hagstæðar aðstæður á
fjármálamörkuðum en hætt sé við
að íslenskum fjármálafyrirtækjum
og fjárfestum geti reynst erfitt á
næstunni að að finna fjármagn
vegna erfiðleika á bandarískum fjár-
skuldsettum yfirtökum
málamörkuðum að undanförnu.
Það gæti svo, að mati danska bank-
ans, enn aukið á erfiðleika íslenskra
fjármálafyrirtækja og fjárfesta að í
september eru gjalddagar á krónu-
bréfum fyrir 80 milljarða króna og
aðra 70 milljarða í janúar.
Fjárfestar fari sér hægt
Þetta tvennt getur að mati Danske
Bank aukið þrýsting á íslensku krón-
una umtalsvert. Bankinn varar fjár-
festa við og telur rétt að þeir fari sér
hægt gagnvart íslensku krónunni
á næstunni, einkum ef ástandið á
alþjóðlegum fjármálamörkuðum
róast ekki.