blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 26

blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 4.ÁGÚST2007 blaöiö MENNING menning@bladid.net Það þykir eðlilegt að djassleikari hafi klassískan bakgrunn líka. Það er ekkert tiltökumál lengur en var alveg óheyrt fyrir 50 árum. JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR Bjorn Thoroddsen Hann tekur þátt í blús- og djassgítarveislu ásamt fleiri islenskum gitarleikur- um og ameríska snillingn- um Larry Coryell. Söngleikur um hryðjuverk Jazzhátíð í Reykjavík hefst í lok mánaðar Veisla í vændum LÍFRÆNIR SAFAR Fæst í heilsubúðum og helstu matvörumörkuðum landsins Dreifing: Yggdrasill, S S44 4270, SuOurhrauni 12b, Garöabae Söngleikur sem fjallar á meinfyndinn hátt um hryðjuverk og Osama bin Laden hefur fengið blendin viðbrögð í Bretlandi og finnst mörgum gagnrýnendum hann smekklaus. Verkið sem heitir einfaldlega „Jihad: The Musical" sem útleggja mætti sem Söngleikurinn Heilagt stríð er sýndur á jaðarlistahátíðinni í Edin- borg í þessum mánuði. Hleypt hefur verið af stað undirskrifta- söfnun á Netinu þar sem Gordon Brown forsætisráðherra er hvattur til að fordæma þá smekklausu mynd sem dregin er upp af hryðju- verkum og fórnarlömbum þeirra í verkinu. Söngleikurinn fjallar um ungan afganskan bónda, Sayid að nafni, sem dreymir um að ná frama sem garðyrkjubóndi og selja draumsól- eyjar til Vesturlanda. Hópur hryðjuverkamanna sem hyggur á sprengjuárásir kemur í veg fyrir að áætlanir hans ná fram að ganga. Að lokum þarf smábóndinn að gera upp við sig í hvoru liðinu hann vill vera. Aðstandendur sýningarinnar hafa gert lítið úr mótmælunum og segja að það sé ekki ætlun þeirra að móðga fólk eða ganga fram af því með verkinu heldur sé þetta einfaldlega gamansöngleikur. Blásið verður til Jazzhá- tíðar í Reykjavík í lok þessa mánaðar og von er á góðum erlendum gestum á hana auk þess sem íslenskir djassarar láta Ijós sitt skína. Eftir Einar Örn Jónsson einar.jonsson@bladid.net Hátíðin hefur vakið athygli utan landsteinanna og stendur til að efla kynningarstarf erlendis enn frekar á næstunni að sögn Péturs Grétars- sonar, framkvæmdastjóra hennar. „yið erum með hjálp góðs fólks hjá Otón og víðar að reyna að vekja at- hygli til dæmis erlendra fjölmiðla- manna á þessu og reyna að fá þá til að koma og fylgjast með,“ segir hann. Þó að þekkt nöfn úr hinum alþjóð- lega djassheimi séu helsta aðdráttar- afl hátíðarinnar er íslenskum djass- tónlistarmönnum einnig gert hátt undir höfði. Pétur segir að mikil áhersla sé lögð á að fá gestina til að spila með heimamönnum. Þannig verður til dæmis efnt til djass- og blúsgítarveislu þar sem Björn Thor- oddsen og fleiri íslenskir gítarleik- arar leika ásamt ameríska gítar- leikaranum Larry Coryell. Annar Bandaríkjamaður, saxófónleikar- inn Jerry Bergonzi, leikur síðan með hljómsveit undir stjórn Eyþórs Gunnarssonar. Spilaði með Brubeck „Ég skrifaði einhvers staðar að hann væri saxófónleikari saxófón- leikaranna,“ segir Pétur um Berg- onzi. „Hann er kannski ekki eins frægur og sumir en hann er sá sem þeir frægu líta margir til. Hann er stórmerkilegur karl og spilaði meðal annars með Dave Brubeck og hljómsveit hans. Hann kom í stað- inn fyrir Paul Desmond og þegar maður pælir í því hverja Brubeck hefði getað valið þá eru það dálítil meðmæli,“ segir Pétur. Þekktasti erlendi listamaðurinn sem fram kemur á Jazzhátíð i ár er píanóleikarinn Uri Caine en tríó hans heldur opnunartónleika hátíð- arinnar í Austurbæ þann 29. ágúst. Caine hefur ekki síst vakið athygli fyrir meðferð sína á verkum gömlu meistaranna á borð við Mahler, Bach og Mozart. „Hann stígur miklu stærri skref en við þekkjum í þessu. Hann hikar ekkert við að nota þetta efni eins og við notum dans- og dægurlög í djass- músík. Hann gerir bara það sem krafa er um í dag. Það þykir eðlilegt að djassleikari hafi klassískan bak- grunn líka. Það er ekkert tiltöku- Már Magnússon kynna efni af nýjum plötum. „Sigurður Flosason kynnir nýút- komna plötu og splunkunýtt efni sem hefur ekki heyrt áður. Það heitir Bláir söngvar, bláir skuggar og þar syngja Ragnheiður Gröndal og Egill Olafsson sem eru náttúrlega tveir af okkar fremstu söngvurum," segir hann. I tengslum við tónleika Sigurðar og Agnars Más kom upp sú hug- mynd að halda svolitla kaupstefnu þar sem listamönnum og erlendum aðiljum gefst færi á að hittast og bera saman bækur sínar. Ekki er ólíklegt að bryddað verði upp á frekari nýjungum. „Ég var á djasshátíð í Noregi fyrir nokkrum árumþarsem stór hluti hátíðarinnar voru sýningar á kvikmyndum sem tengjast djassi. Mér þótti þetta alveg brilljant hugmynd. Ég er búinn að vera að vinna í því með hjálp Kvik- myndahátíðar að fá kvikmyndir til að sýna í Tjarnarbíói dagana sem há- tíðin stendur,“ segir Pétur en bætir við að fæst orð beri minnsta ábyrgð í þeim efnum. „Við höfum mikinn áhuga á að af þessu verði, ef ekki núna þá í fram- tíðinni því að það er ótrúlega mikið til af bæði dramatískum myndum og heimildarmyndum sem tengjast djassi,“ segir Pétur Grétarsson að lokum. Rúnir í silki Sigrún Lára Shanko opnar sýningu sína „Rúnir í silki“ í Listasal Saltfiskseturs íslands í Grindavík i dag kl. 16. Sigrún hefur vakið athygli fyrir silkiveggteppi sem hún byggir á íslenskum fornsögum. Að þessu sinnisýnir hún meðal ann- ars Ragnars sögu loðbrókar og er hún sögð á fimm veggteppum. Sigrún Lára hefur ekki aðeins fengist við veggteppi og á sýn- ingunni verður einnig til sýnis selskinnsjakki sem var sérhann- aður og saumaður af Eggerti feldskera og kjóll hannaður og saumaður af Hildi Bolladóttur, kjólameistara og hönnuði. Sigrún Lára Shanko hefur tekið þátt í samsýningum víða erlendis en þetta er fyrsta skipti sem hún sýnir verk sín hér á landi. Flest verka hennar hafa selst úr landi og er þau að finna í flestöllum heimsálfum. Sýningin stendur til 20. ágúst og er Saltfisksetrið opið alla daga frá kl. 11-18. íslensk þjóð- lög í útrás Tríóið „Emsemble úngút“, sem skipað er sópransöngkonunni Rósu Krist- ínu Bald- ursdóttur, Einari Sigurðssyni kontrabassa- leikara og Peter Arne- sen, píanó- leikara og tónskáldi, spilar á tónleikum í Rauða Húsinu á Eyrarbakka í kvöld klukkan 21, og á Dómó í Reykjavík á sama tíma annað kvöld. Á efnisskránni eru þjóð- lög á borð við Sofðu unga ástin mín, Krummavísur og Vísur Vatnsenda-Rósu auk laga eftir Jón Ásgeirsson, Jón Nordal, Pál ísólfsson, 12. september, Jón Múla Árnason og fleiri íslensk tónskáld. Tríóið hóf samstarf í Salzburg í Austurríki fyrir tæpum tveimur árum, en nú um mundir gefur tríóið út plötu með íslenskum þjóð- og söng- lögum í Þýskalandi. Helstu tónleikar hátíðarinn- ar tara fram í Austurbæ, í Iðnó, á Domo og á Gauki á Stöng. Ráðgert er að miðasala hefj- ist þann 13. ágúst á midi.is. Dagskrá hátíðarinnar og nánari upplýsingar má nálg- ast á jazz.is/festival. Ragnheiður Gröndal Ragnheiður og Egill Ólafsson syngja ný lög eftir Sigurð Flosason á tónleikum í Iðnó. mál lengur en var alveg óheyrt fyrir 50 árum,“ segir Pétur og bendir á að Caine valdi verkefninu og njóti virðingar bæði í heimi klassískrar tónlistar og djass. „Hann heldur áfram að vera trú- verðugur djassleikari þó að hann sé að vafstra í þessari músík líka. Það sést til dæmis á því að hann er að spila á stærstu djasshátíðum og líka á klassískum hátíðum,“ segir Pétur. Egill Ólafs og Ragnheiður Gröndal Fleiri íslenskir djassarar en Björn Thoroddsen og Eyþór Gunnarsson leika stórt hlutverk á hátíðinni í ár. Samúel J. Samúelsson býður upp á metnaðarfulla dagskrá á lokakvöld- inu og Sigurður Flosason og Agnar

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.