blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 27

blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 27
blaöiö LAUGARDAGUR4.ÁGÚST2007 27 Menningarlíf brottfluttra Kúbumanna Madríd frekar en Miami Kúbverskir listamenn sækjast í síauknum mæli eftir því að lifa og starfa í Madríd, höfuðborg Spánar, í stað þess að freista þess að koma sér á framfæri í Bandaríkjunum eða í sínu heimalandi. Kúbverskt menn- ingarlíf hefur löngum blómstrað í borgum á borð við Miami í Banda- ríkjunum, ekki síst sökum þess að fjölmargir listamenn flýja þangað undan einræðisstjórn Fidels Ca- stros. Undir stjórn Clintons Banda- ríkjaforseta voru kúbverskir lista- og fræðimenn nokkuð frjálsir til þess að ferðast til Bandaríkjanna frá sínu heimalandi, en eftir að Bush tók við stjórnartaumunum hefur mun harðari stefna verið tekin upp gagnvart kúbverskum ferða- og flóttamönnum, og eru ferðalög til Bandaríkjanna því langt frá þvi eins sjálfgefin. Að auki eru kúbversk stjórnvöld yfirleitt líklegri til þess að gefa þegnum sínum leyfi til þess að yfirgefa landið ef stefnan er sett á Evrópu í stað Bandaríkjanna. Mesta gróskan í listsköpun brott- fluttra Kúbumanna hefur því færst frá Miami og yfir í háskóla, söfn, kaffihús og tónleikahallir Spánar, ekki síst í höfuðborginni Madríd. Þar fyrir utan hefur Spánn ýmis- legt fram yfir Bandaríkin og Kúbu þegar kemur að því að koma kúb- verskri menningu á framfæri. Fyrir utan þann ótvíræða kost, að þar er spænskan opinbert tungumál, þá er Spánn lýðræðisríki þar sem mál- frelsi er ( hávegum haft, ólíkt því sem gerist í sjálfri Kúbu. Auk þess þykir ríkja þar meira umburðar- lyndi í garð mismunandi pólitískra sjónarmiða í málefnum Kúbu, ólíkt Bandaríkjunum, þar sem mikil og almenn andstaða er við sjónarmið kúbverskra stjórnarsinna. Kúbumenn í Madríd Feðgarnir Chucho Valdésog Bebo Valdés, hljóðrita djass- plötu í Madríd. Chucho á hús í Havana og starfar með Kúbverskum yfirvöldum, en sá síðarnefndi yfirgaf Kúbu árið 1960 og hefur heitið því að snúa ekki þangað aftur fyrr en landið er orðið að lýðræðisríki. Austfirskt skrímsli Sýningin „Lagarfljótsormur- inn - lifandi goðsögn" stendur nú yfir á Skriðuklaustri, og jafnframt hefur Gunnars- stofnun gefið út Austfirskar skrímslasögur í ritröðinni Austfirsk safnrit. Lagarfljótsormurinn er fræg- asta skrímsli fslands og ku hafa gert vart við sig af og til frá árinu 1345. Á sýningunni er reynt að nálgast sögur og frásagnir af orminum á skapandi hátt. Hún er hluti af verkefni sem nýtur styrks úr Nýsköpunarsjóði námsmanna og að því unnu tveir nemar, annar úr ljósmyndun við Listaháskóla fslands, og hinn úr þjóðfræði og kynjafræði við Háskóla íslands. Partur af vinnu þeirra var að safna sögum af skrímslum á Aust- urlandi í kiljuna Austfirskar skrímslasögur sem kom út um leið og sýningin var opnuð síðastliðinn miðvikudag. Listviöburðir á Akureyri Listasumar er í fullum gangi á Akureyri og verður ýmislegt að gerast þar af því tilefni um helgina. fdag klukkan 14 er opnuð sýning Örnu G. Vals- dóttur, „í hljóði" í Ketilshús- inu, og á sama tíma er sýning Dagrúnar Matthíasdóttur opnuð á Café Karólínu. Þá er einnig opnun sýningar Brynhildar Kristinsdóttur á Restaurant Karólínu. Klukkan 15.30 spilar Brassk- vintett Norðurlands á brass- bandstónleikum í Listagili og hálftíma áður opna Aðalbjörg Kristjánsdóttir, Charlotta Þorgilsdóttir, Inga Björk Harð- ardóttir, Sveinbjörg Ásgeirs- dóttir og Unnur Óttarsdóttir sýninguna „Sprotar í mynd- list“ í Deiglunni, en þær eru allar nýútskrifaðir nemendur úr Myndlistarskólanum á Akureyri. Komdu í heimsókn í sumar! Kynnist Kárahnjúkavirkjun! Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæ'mdirnar ásamt ferðamennsku og útivist norðan Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en haldið er upp á Fljótsdalsheiði. Végarður í Fljótsdal. 0piö9-17alladaga. 'kíiLisí.'uijzkííil íslensk orkumál og virkjanir - alþjóðleg fyrirmynd í umhverfismálum Kraftverk Listaverk sem sjaldan hafa komið fyrir almenn- ingssjónir - mörg hver með áhugaverða sögu sem tengist Landsvirkjun og orkumálum. Kjarval, Ásgrímur, Gunnlaugur Blöndal og fleiri. Ljósafossstöð við Sog Líf í Þjórsárdal Ómissandi viðkomustaður á leiðinni inn á Sprengisand og í Veiöivötn. Sultartangastöð ofan Þjórsárdals Heimsókn í Húnaþing Kynnið ykkur orkumál og starfsemi Blöndustöðvar (starfsmannahúsi stöðvarinnar. Blöndustöð, Húnaþingi Kynnist okkur af eigin raun Heimsækið Landsvirkjun í sumar. Stöðvarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000 Landsvirkjun Landsvirkjun býður landsmönnum að heimsækja sex stöðvar í sumar þar sem bæði er hægt að kynna sér staðreyndir um umhverfisvæna íslenska orku og skoða fjölbreyttar sýningar um menningu, list og sögu. „Hvað er með Ásum?“ Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjölskylduna. Goöastyttur Hallsteins Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings. Laxárstöövar í Aðaldal Orka í iðrum jarðar! Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið myndir frá Kröflueldum. Kynnist jarðvarma og orkuvinnslu. Kröflustöð í Mývatnssveit

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.