blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 28
28
LAUGARDAGUR 4. AGUST2007
blaöió
Stefnan Þeir sem
vita hvert þeir stefna
finna réttu leiðina.
Bjarni Ármannsson
hefur eytt drjúgum
tíma af sumrinu í
sumarbústað sínum
í Skorradal. Þar var
viðtalið við hann
tekið, eða svo allrar
nákvæmni sé gætt fór það fram í ára-
báti úti á Skorradalsvatni og Bjarni
reri allan tímann sem hann svaraði
spurningum.
Hvernig tilfinning er það að
- vera ekki lengur forstjóri Glitnis?
Fylgir því frelsistilfinning eða
finnst þér þú hafa misst völd?
„Stærsta breytingin er að allt það
mikla áreiti sem ég bjó við er hætt.
Það var alveg sama hvar ég var,
hvort sem það var í vinnunni, í flugi
* eða í fríi, fólk var að hringja og hafa
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@bladid.net
samband og var með vandamál sem
þurfti að leysa úr með hraði. Áreitið
var stöðugt. Ég bý ekki við það
lengur, í því er mikið frelsi fólgið og
ég fagna því. Hins vegar sakna ég
þess frábæra fólks sem ég vann með
í bankanum.
Þú spyrð um völd. Svokölluð
völd fólks hafa mér alltaf fundist
felast í því að hafa áhrif á samfélag
sitt. Mér finnst staða mín til þess
á engan hátt verri í dag en hún var.
Nú hef ég lika tíma til að velja við-
fangsefnin betur!“
Stærsta spurningin
Hvað œtlarðu að taka þérfyrir
hendur í nánustu framtíð?
„I einlægni sagt er ég ekki búinn
að ákveða hvað ég geri. Fjölmargir
aðilar hafa haft samband með fjölda
hugmynda. Þegar daginn fer að stytta
fyrir alvöru og þessu frábæra sumri
á íslandi að halla þá sest ég niður og
legg drög að næstu verkefnum. Sem
betur fer er opnunin og gerjunin í ís-
lensku samfélagi og á alþjóðavísu það
mikil að það er sannarlega á flestum
Fjölmargir
hafa haft sam-
band við mig
og tjáð mér umræð-
una í heitu pottunum. Ég
hef ekki horft til Bessa-
staða. Ég held að það
séu spennandi verkefni
fyrir mig í viðskiptalífinu
framundan.
stöðum þörf fyrir vinnufúsar hendur
og hugmyndaríkan huga.“
Þú œtlar aftur ífjármála
geirann?
„Ég horfi vitanlega til þess geira
því sérþekking mín, stjórnunar-
reynsla og tengslanet liggja að lang-
stærstum hluta þar. Að sama skapi
vil ég líka nota tímann sem ég hef
núna til að kynna mér betur ýmsa
þætti sem ég hef komið að en ekki
getað einbeitt mér að eins og þróun
vistvænna orkugjafa og framtíð
þróunarmála í heiminum. Þetta
eru málefni sem ég hef áhuga á. Bar-
áttan um auðlindirnar mun harðna
og ég spái því að 21. öldin verði ekki
síður róstursöm en 20. öldin. Það að
skilja þetta samhengi, ferðast um
heiminn og skilja betur ólíka menn-
ingu finnst mér vera mikilvægt verk-
efni sem ég þurfi að gefa tíma.
Ég er að spyrja sjálfan mig spurn-
inga er lúta að viðfangsefnum og
árangri. Stærsta spurningin er