blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 29
blaöió
LAUGARDAGUR4.AGUST2007
29
Blaðiö/Frikki
4'
kannski gagnvart hverjum maður
ber ábyrgð. Maður ber ábyrgð
gagnvart sjálfum sér, fjölskyldu
sinni, samféiaginu sem maður býr
í og heiminum öllum. Hvernig
ætlar maður að bregðast við þess-
ari ábyrgð? Hvernig getur maður
skipt máli. Þetta er það sem ég er að
hugsa um.
Eg hugsa ekki síst um fjölskyld-
una, konuna mína og börnin okkar
fjögur. Ég var oft með samviskubit
vegna þess tíma sem ég var fjar-
verandi vegna starfs míns. Ég vil
ekki ganga svo langt að segja að
ég hafi vanrækt uppeldisstörfin
en margt hefði ég viljað gera betur
og öðruvísi. 1 starfi mínu sem for-
stjóri Glitnis var fjölskyldan ekki í
fyrirrúmi. Þau tækifæri sem ég hef
fengið núna til að kenna börnunum
að hjóla, þekkja á klukku og hjálpa
til við próflestur og fleira eru ómet-
anleg og leiða hugann stöðugt að því
að börnin manns eru það dýrmæt-
asta sem maður á.“
Það heyrast raddir sem segja
að þú eigir að stefna á Bessastaði.
Viltu verða forseti?
„Forsetaembættið er mjög mik-
ilvægt starf. í mínu minni hafa
Vigdís Finnbogadóttir og Ólafur
Ragnar sinnt því frábærlega og náð
að leggja áherslu á þá þætti sem
snerta samtíma þeirra. Ég vona
bara að núverandi forseti gefi kost
á sér áfram.
Fjölmargir hafa haft samband
við mig og tjáð mér umræðuna í
heitu pottunum . Ég hef ekki horft
til Bessastaða. Ég held að það séu
spennandi verkefni fyrir mig í við-
skiptalífinu framundan.“
Vissi ósköp fátt
Þú virkar ekki sem dæmigerður
bankamaður. Hvernig gekk þér
aðfóta þig í fjármálaheiminum í
byrjun?
„Pétur Blöndal fann mig í út-
skriftarferð tölvunarfræðinema í
Japan. Þar var ég mikið að prútta
á mörkuðum og átti frasabækur
sem ég notaði óspart og var iðinn
við að segja „allt of mikið“ á jap-
önsku. Þegar heim var komið hafði
Pétur samband við mig og sagði að
einmitt þetta element vantaði í Is-
lendinga sem hefðu svo lengi verið
fastir í viðjum sjömannanefndanna
að þeir tækju uppgefnu verði sem
sjálfsögðu. „Þú hugsar ekki þannig,“
sagði Pétur og bauð mér vinnu. „Eg
veit ekkert um fjármál og skil ekki
hvað þú ert að tala um,“ svaraði ég
og kvaddi. Svo leið ár og hann hafði
aftur samband. Þá var ég búinn að
kynnast Helgu, konu minni, og far-
Maður ber
ábyrgð gagn-
vart sjálfum sér,
fjölskyldu sinni,
samfélaginu sem maður
býr í og heiminum öllum.
Hvernig ætlar maður
að bregðast við þessari
ábyrgð? Hvernig getur
maður skipt máli. Þetta
er það sem ég er að
hugsa um.
inn að róast. Svo Pétur réð mig í fjár-
vörslu einstaklinga hjá Kaupþingi í
árslok 1990 og þar byrjaði ég í febrú-
armánuði 1991. Þá var ég tuttugu og
tveggja ára. Ég hef kunnað ákaflega
vel við mig í fjármálageiranum.“
Varfjármálaheimurinn harðari
heimur en þú áttir von á?
„Ég vissi ekkert hvernig heimur »
þetta var. Ég man að fyrsta daginn
kom oft fyrir orðið ávöxtunarkrafa.
I lok dagsins gerðist ég svo djarfur
að spyrja hvað þessi ávöxtunarkrafa
væri eiginlega. Ég vissi ósköp fátt.
En kannski er ég dæmi um að það
er viljinn og viðhorfið til vinnu sem
gildir en ekki nákvæm þekking á
staðreyndum.“
Þykja þér ekki óþœgilegar um-
ræður um starfslokasamning
þinn við Glitni ogþá peninga sem *
þú hefur eignast?
„Fólk sem hefur, með fjárfestingu
eða vinnu, aflað sér fjármuna sem
enginn venjulegur maður getur
nokkurn tíma eytt á venjulegri ævi
á ekki að krefjast sérstakrar sam-
úðar frá samfélaginu. Hins vegar
er það þannig eins og Karl Marx
áttaði sig á að fólk og fjármagn býr
til verðmæti. í nútímanum er fjár-
Nánari upplýsingan unn útsöluvönun og útsöluvenð enu á www.tekk.is
WING leöurstóll
Útsöluverð: 35.BOQ kr.
MANOR
eikarekápur * HOi
með glerhurðunji 'i
ÚtBöluverð: 142.
BASTSTÖLL
Útsöluverð: 10.500 kr.
kn iiHftHH: BASTSOR
Úteöluverð: 20.000 kr. i: IHH Á- 3
UTSALAN ER HAFIN!
KDMDU OG GERÐU FRÁBÆR KAUP Á FALLEGUM HLJSBLJNAÐI
ALLT AÐ VO% AFSLÁTTUR
TEKK
[COMPANY
HBHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHI H.
■HHHHHHHHHHHHHIHHHHHMi MHMHHHHHHnHHMHHHHHIIHH
HHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHM nHHHHHHHMHHHHHHHHHMHHMH
HHHnHnHHH HHHHHHHHHHHHHI HMMHMHMMHHHHHHMMHHMHMH wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
BÆJARUND 14-16 | ZD 1 KÖPAVOBI | SÍMI 564 4400 | FAX 564 44 3 5 | TEKK@TEKK. IS | WWW.TEKK.IS
□ PIÐ LAUGARDAG KL. ÍQ-IB. LDKAÐ SUNNUDAG OG MÁNUDAG