blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 30

blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 4.AGUST2007 blaðió Freisið Áreitið var stöðugt. Ég bý ekki við það lengur, í því er mikið frelsi fólgið og ég fagna því. magnið að verða hrávara og einstak- lingurinn, hugsun hans og sköpun skiptir æ meira máli. Eðli málsins samkvæmt er fjármagnið tilbúið að borga fyrir þá hugsun og þá sköpun. í þekkingarsamfélaginu er horft til markmiða, sérstöðu og árangurs og fyrir það er vel borgað. Ég hef notið þess eins og margir aðrir og er stoltur af því að á þessum tíma hefur fjár- málageirinn orðið að helsta þekking- ariðnaði landsins og mikilvægustu atvinnugreininni - úr því að vera ríkisrekið greiðslumiðlunarkerfi að stórum hluta. 1 dag er fjármálageir- ■»* inn orðinn í huga margs ungs fólks sá framtíðarvettvangur sem það vill starfa á. Það er frábært." Hamingjan er viðhorf Guðrún Helgadóttir rithöf- undur er tengdamóðir þín. Hún hefur róttlœkar stjórnmálaskoð- anir eins og allir vita og er örugg- lega ekki mjög hrifin affjármála- brölti. Hafið þið rifist um þau mál? „Við gerðum það aðeins í byrjun en ekki í seinni tíð. Okkur semur vel enda er hún mjög mikilvæg barnapía og ég hef ekki haft efni á að vera í mikilli andstöðu við hana. Ég ber mikla virðinu fyrir henni og •» störfum hennar, hvort sem er pólitík eða í barnabókaskrifum. Mér þykja lífsviðhorf hennar mjög heilbrigð. Hún er af kynslóð sem þurfti að berj- ast hart fyrir bættum lífskjörum og velferðarkerfi á Islandi á sinni tíð og tókst það.“ Erí þú pólitískur? „Ég hef litið svo á að meðan ég væri í starfi þar sem ég er að þjón- usta landsmenn alla þá ætti ég ekki að beita mér á hinum pólitíska vett- vangi. Ég hef aldrei verið skráður í stjórnmálaflokk en er pólitískur að því leyti að ég hef skoðun á samtíma mínum. Ég held að maður verði líka að hafa þann aga að beita sér á sviðum þar sem maður telur sig — geta náð árangri og náð fram breyt- ingum frekar en að vera að básúna skoðanir sínar út um allt.“ Hvernig viltu lifa lífinu? „Fyrir utan að ala af sér afkvæmi og skilja við heiminn svolítið betri en maður kom í hann þá er mikil- vægt að muna eftir því að lífið á að Ég er líka mjög einlæglega þeirrar skoðunar að maður á að vera ánægður með það sem lífið hefur gefið manni og líta jákvætt á lífið. Hamingja er viðhorf, ekki ástand. vera skemmtilegt. Maður verður líka að vita hvað maður vill og ein- beita sér að því. Ef maður ætlar sér að fá hluti sem maður hefur aldrei fengið áður þá verður maður að gera hluti sem maður hefur aldrei gert áður. Þá kemur að vinnusemi, aga og heiðarleika. Ég er líka mjög einlæglega þeirrar skoðunar að maður á að vera ánægður með það sem lífið hefur gefið manni og líta jákvætt á lífið. Hamingja er viðhorf, ekki ástand. Ég hef tekið upp á ýmsu sem mér finnst skemmtilegt og öðrum finnst kannski ekki skemmtilegt, eins og að hlaupa langar vegalengdir. Það geri ég ekki einungis til að halda mér í likamlegu formi heldur er ég líka að rannsaka hversu langt ég kemst. Hvernig bregst maður við þegar maður lendir í líkamlegum atgangi? Hvað gerir maður þegar allir vöðvar öskra á orku og stífna af sársauka og maður þarf að ljúka við að hlaupa vegalengdina sem maður ætlaði sér? Mér finnst merkilegt að sjá hvað maður þolir. Þannig að ef maður lendir í erfiðum aðstæðum í lífinu þá veit maður nokkurn veg- inn hvernig maður bregst við.“ Hefurðu í mætt mótlæti í lífinu? „Ekkert sérstaklega. En eins og aðrir hef ég gengið í gegnum ham- ingju og sorgir. Það er hægt að sjá hið jákvæða í öllu. í eðli mínu er ég bjartsýnn og lít svo á að jafnvel í erf- iðleikum felist tækifæri. Þegar ég var fjórtán ára fékk ég upp úr hettusótt alvarlega heila- himnubólgu sem olli því að ég mátti ekki hreyfa mig. Þetta var erfitt á kynþroskaárunum. Ég mátti hvorki vera í leikfimi né fótbolta og til að hafa eitthvað að gera fór ég að 7Veik(eikinn í íslenskri stjórnun er að menn taka oft ekki á vandamálum. Nálægðin er svo mikil, við þekkjum hvert annað svo vel og við tökum gagnrýni of persónulega. Gagnrýni er samt oft eitt það besta sem hendir okkur. sauma út. Þannig öðlaðist ég hug- arró á þeim tíma sem líklegt er að maður taki rangar ákvarðanir.“ Trú á harðri hreinskilni Hvaða aðferðir hafa reynst þér árangursríkastar þegar kemur að stjórnun? „Fyrir utan að hafa gaman af því sem maður er að gera þá eru þrjú prinsipp sem ég styðst við. í fyrsta lagi að vera alltaf heiðarlegur og segja skoðun mína hreinskilnislega þannig að fólk viti að ég er heill í því sem ég er að gera. 1 því felst að maður þykist ekki vera annað en maður er. Með heiðarleikanum kemur líka sjálfstraustið. Ég full- yrði að stór hluti af þeim árangri sem við íslendingar höfum verið að ná grundvallast á þvi mikla sjálfs- trausti sem við höfum. Annar þátturinn er það sem Bandaríkjamenn kalla „tough em- pathy“, það er að segja að kóa aldrei með neinum. Ef vandamál koma upp þá verður að taka á þeim. Ekki endilega rjúka í þau en ekki láta þau liggja óleyst. Veikleikinn í íslenskri stjórnun er að menn taka oft ekki á vandamálum. Nálægðin er svo mikil, við þekkjum hvert annað svo vel og við tökum gagnrýni of per- sónulega. Gagnrýni er samt oft eitt það besta sem hendir okkur. Ég hef mikla trú á harðri hrein- skilni en um leið þarf maður að sýna samúð. Setja sig inn í aðstæður fólks þannig að fólk finni að gagnrýninni er ekki ætlað að minnka það heldur hjálpa því. Ég hef mikið beitt þess- ari aðferð og hún er kannski það sem ég hef á endanum hlotið mestar þakkir fyrir - þegar fólk sér þetta sjálft. Auðvitað sjá ekki allir það jákvæða við slíka gagnrýni en þeir sem það gera kunna að meta hana. 1 þriðja lagi er ekki síst mikilvægt að stefna markvisst að árangri. Ef menn vita ekki hvert þeir ætla að fara þá skiptir ekki máli hvaða leið þeir velja. Þeir sem vita hvert þeir stefna finna réttu leiðina. Það er lyk- ilatriði í stjórnun, alveg eins og í líf- inu sjálfu, að vita að hverju maður er að leita.“ Bjartsýnin I eðli mínu er ég bjartsýnn og lít svo á að jafnvel i erfiðleikum felist tækifæri. -» ‘ Éf

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.