blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 32

blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 32
ÍÞRÓTTIR ithrottir@bladid.net LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2007 Ég þekki Loga Ólafs aðeins og hann er góður þjálfari og góður maður. Hann veit hins vegar jafnvel og ég að hann á erfitt verk fyrir höndum. í leiknum gegn Hácken var það greinilegt að liðið hefur ekkert sjálfstraust. blaöi SKEYTIN INN Birmingham sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar semfram kemur að hætt hafi verið við að semja við Egyptann Hoss- am Ghaly. Fyrr í vikunni tilkynnti Birmingham að það hafi gert þriggja ára samning við Ghaly. Ekki er vitað hvers vegna hætt var við samning- inn. Á dögunum hætti egypski sókn- armaðurinn Mido, á síðustu stundu, við að ganga til liðs við Birmingham. Hann var ósáttur við nokkur ákvæði í samningnum sem félagið bauð hon- um, en Birmingham hafði náð sam- komulagi við Tottenham um kaupin. * Iraska knatt- spymulandsfiðið kom til Bagdad með leiguflugvél í dag. Eins og frægt erorðiðvannliðið Asíukeppnina í vikunni, sem mun hafa sameinað þessa stríðshrjáðu þjóð um stund. Að vonum fékk liðið góðar móttökur þegar það steig út úr flugvélinni, sem ríkisstjórn Iraks tók á leigu. Hetja hðsins, fyrirlið- inn Yunis Mahmoud sem skoraði sigurmarkið í úrslitaleiknum gegn Sádi-Aröbum, var ekki með í för. WestHam 3L, að það hafi gert samkomulagvið umboðsmenn Argentínumanns- ins Carlosar Tevez um að kappinn megi ganga til liðs við Manchester United. Samkomulagið sem West Ham gerði við umboðsmann Tevez felur í sér að félagið fær rúmar 250 milljónir króna í sáttabætur. Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, er afar sáttur að komin sé lausn í þetta mikla þrætumál. „Ég er mjög ánægður með að þetta mál sé loks úr sögunni og samkomulag sé í höfn. Ég óska Tevez alls hins besta nú þegar hann er að taka næsta skref á ferli sínum,“ sagði Eggert. Alan Smith, sem gekk ígærí raðirNewcastle ffá Manchester United.segir að eff ir að hann ræddi við knattspyrnustjóra Newcastle, Sam AJlardyce, hafi ekki komið annað til greina en að hann færi til Newcastle. Everton, Middlesbrough, Sunderland og West Ham báru einnig í hann víumar. Sagðist hann í samtali við breska fjölmiðla vera hrifinn af framtíðarplönum stjórans. mbl.is Auglýsingasíminn er 510 3744 E Metnaður getur breyst í martröð fl David Winnie segir miklar kröfur gerðar til KR en þolinmæði stjórnenda sé ekki mikil Skotinn David Peter Winnie spilaði í hjarta varnar KR frá 1998-2001 og þjálfaði einnig liðið eftir að Pétur Pétursson lét af störfum á miðju tímabili 2001. Vinnie segir metnaðinn hjá KR mik- inn sem jafnframt getur reynst félaginu erfiður. Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net „Sem eitt sigursælasta félagið á íslandi er ekkert óvenjulegt að sett séu háleit markmið hjá KR,“ segir Winnie. „Þar er gerð krafa um að titill sé unninn á hverju ári og það er alls ekki óraunhæf krafa, með fjárstuðninginn, stærð félagsins og söguna til hliðsjónar. Hins vegar virðist sem að þolinmæðin sé ekki mikil hjá stjórninni og líkt og sjá má af mörgum stórum klúbbum í Evrópu getur óþolinmæði varla talist sem dyggð í þeim efnum. Því getur metnaðurinn breyst í martröð. Allir bestu klúbbarnir, bæði í Skand- inavíu og Evrópu byggja á traustum grunni samstöðu, heiðarleika og trausts sem smitar út frá sér frá MAÐURINN ► David Peter Winnie er 40 ára gamall. ► Hann er með nýfengin lög- mannsréttindi frá Oldham University. ► Hann spilar enn knatt- spyrnu með utandeildarliði, sér til skemmtunar. stjórn til þjálfara og leikmanna. Það virðist því miður ekki vera raunin hjá KR, hver svo sem skýringin er á því,“ segir Winnie sem sjálfur fór í fússi frá Vesturbæjarstórveldinu. Málamyndaviðtai „Ég tók við liði sem Pétur hafði gert að meisturum. Hann hafði hins vegar fengið nóg á miðju tíma- bili og því var ég fenginn til að taka við. Eg hafði litla reynslu sem þjálf- ari, en ég gerði mitt besta. Ég fékk þó lítinn stuðning í verki frá stjórn- inni og þegar mér hafði tekist að halda liðinu uppi í lok móts, var ég boðaður í atvinnuviðtal fyrir næsta tímabil. í þessu viðtali hins vegar fann ég greinilega að þeir höfðu engan áhuga á að ráða mig. Ég fór því heim í íbúð og byrjaði að pakka, því ég vissi að ég yrði ekki ráðinn. Hæfir ekki elsta félagi landsins Á leiðinni heim, í bílnum, var hringt í mig af félaga mínum þar sem hann sagði mér að í útvarp- inu hefði verið tilkynnt að Willum Þór yrði nýr þjálfari hjá KR! Þetta hefur verið 5-10 mínútum eftir að ég hafði yfirgefið KR-stjórnina í at- vinnuviðtali! Mér fannst slík fram- koma ekki hæfa elsta félagi lands- ins og rauk heim til Skotlands, sár og reiður.“ Erfitt verk fyrir höndum „Ég þekki Loga Ólafs aðeins og hann er góður þjálfari og góður maður. Hann veit hins vegar jafn- vel og ég að hann á erfitt verk fyrir höndum. I leiknum gegn Hácken var það greinilegt að liðið hefur ekkert sjálfstraust. Byggt á minni reynslu í íslenska boltanum þá er hugarfarið 80% af leiknum, hitt er líkamlegt. Það vantar því mikið þegar sjálfstraustið vantar. Einnig er Logi undir mikilli pressu, sem stundum getur reynst neikvæð. Neikvæðnin umlykur liðið Og þessa dagana virðist því miður of mikil neikvæðni umlykja liðið. Leikurinn gegn Hácken var kjörið tækifæri til að snúa þessu við. Nýr þjálfari, góð staða úr fyrri leiknum, aðeins þurfti að skora eitt mark eða halda hreinu til að komast áfram. En lítil mistök geta kostað sigur og það varð því miður raunin. En heilt yfir fannst mér liðið ekki spila vel þó ég geti ekki borið spilamennskuna saman við aðra leiki í sumar þar sem ég hef ekki séð aðra leiki. Þjálfarinn þarf 100% stuðning Það gæti hins vegar reynst félag- inu erfiður biti að kyngja ef það fellur. Væntanlega munu bestu leik- mennirnir fara annað og það er erf- itt þegar leikmennirnir sem komu klúbbnum í bobba sjá ekki sóma sinn í að bjarga félaginu úr klípunni og koma sér upp aftur. Þeir þurfa einfaldlega að setja sér langtíma- markmið og halda sig við það. Það þýðir ekki að skipta um þjálfara á fimm mínútna fresti, því það veldur bara óróa meðal leikmanna. Einnig þarf stjórnin að styðja 100% við þjálfarann, sama hvernig viðrar, bæði í orði og aðgerðum. En þó svo samskipti mín og stjórnarn- innar hafi verið brösótt á slnum tíma er það vatn allt runnið til sjávar og ég óska félaginu og Loga alls góðs.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.