blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 34
34
LAUGARDAGUR 4.AGUST2007
blaöið
REonBDGinn
smfíRí
HASKÓLABÍÓ
SAMbio.is _
MMBÍ
ÓVÆNTASTA
STELPUMYND
ÁRSINS !
Emma roberts
Nancy
Drew
NANCY DREW kl. I:4C - 3:40 - 5:50 - 8 -10:10
kl. 4 FORSÝND
GEORGIA RULES
HARRY POTTER 5
HARRY POTTER 5
SHREK3 W-feLWL
SHREK3W-EretuTfti.
OCEAN'S 13
GEORGIA RULES
HARRY P0TTER 5
SHREK 3 W-ÍSLTftL
GE0RGIA RULES
SHREK 3 ÍSL TftJ
HARRY P0TTER 5
SIMPSONS W- IJfek TftL
HARRY POTTER 5
SHREK3W-ISL
'tiutjg*.....................gti
PLANET TERR0R kl. 8 oq 10.20-POWER 16
SIMPS0N enskttal kl. 2,4,6,8 og 10 L
SIMPS0N íslensktí kl. 2,4 oq 6 L
1408 W.8OQ10 16
SHREK3lstenskttal kl. 2,4 og 6 L
TRANSFORMERS kl. 10-FORSÝNING 10
SIMPS0N enskttal kl. 2,4,6,8 og 10 L
SIMPS0N LÚXÚS kl. 2,4,6, 8 og 10 L
SIMPS0N Istenskt tal kl. 2,4,6 oq 8 L
EVAN ALMIGHTY kl. 2,4,6,8 og 10 L
DIE HARD 4.0 kl. 2,5,8 og 10.45 14
SIMPS0N enskttal (anqjtrél kl. 2,4,6,8 og 10 L
SWPSONttrettHtuwrtt kl. 2,4,6,8 00 10 L
EVANALMKjHTYtuKon*» kl. 2,4,6 og 10.45 L
SIMPS0N enskt tal kl. 4,6,8 og 10 L
SIMPS0N íslenskttal kl. 4,6 L
DEATH PR00F kl. 8 og 10.40 16
PLANET TERR0R kl. 8 oq 10 16
SIMPSON enskt tal kl. 4.6.8 oa 10 L
SIMPSON fslenskt tal kl. 4 oq 6 L
PLANET TERR0R M. 2.45,520,80) 10.40 16
SIMPS0N enskttal M. 3,680,820 oq 1080 L
DEATHPR00F M. 520,8og 10.40 16
DIE HARD4.0 M.Z45,520,8og 10.40 14
FANTASTIK FOUR 2 M. 3 L
ORÐLAUSLÍFIÐ
ordlaus@bladid.net
Mörgum finnst flókið að fara út í sjoppu
og kaupa smokka og margir eru jafnvel
feimnir við það, ég hef rekið mig mikið á
það sérstaklega hjá fólki á aldrinum 15 til 20 ára.
Varar fólk við
Leikarinn Lane Garrison, sem er
hvað þekktastur fyrir leik sinn í
sjónvarpsþátt-
unum Prison
Break, varar
fólk við að keyra
undir áhrifum
áfengis og ann-
arra vímugjafa, í
auglýsingu sem
var tekin upp
fyrir samtökin
The Troy and Alana Pack Found-
ation. Garrison segir frá kvöldinu
örlagaríka þegar hann varð valdur
að dauða 17 ára gamals drengs
sem var farþegi í bíl sem hann ók
undir áhrifum áfengis og annarra
fíkniefna. Stjarnan á nú yfir höfði
sér nokkurra ára fangelsisvist, en
hann gekkst við manndrápi af
gáleysi fyrr á árinu.
Samstarf úr
ólíkum áttum
Ástráður dreifir smokkum um helgina
Getnaðarvarnir eru
ekki feimnismál
Ástráður, félag forvarna-
starfs læknanema, hefur
ákveðið í samstarfi við
Halldór Jónsson innflytj-
anda Durex á íslandi og
fleiri, að hrinda af stað
átaki um Verslunarmanna-
helgina, á Gay pride og
á Menningarnótt en til
stendur að dreifa 15.000
smokkum til landsmanna.
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@bladid.net
„Við viljum vekja ungt fólk til um-
hugsunar um kynheilbrigði," segir
Ómar Sigurvin, formaður Ástráðs.
„Við höfum verið með forvarnastarf
í öllum framhaldsskólum lands-
ins undanfarin ár, þar sem við
dreifum meðal annars smokkum
til allra 1. bekkja framhaldsskól-
anna. Átakið yfir sumartímann
hófst um verslunarmannahelgina í
fyrra en þá dreifðum við um 8 þús-
und smokkum til þeirra sem voru
á leið á útihátíðir. í ár gerum við
slíkt hið sama og verðum til dæmis
í Þorklákshöfn, á Akureyri, Neista-
flugi, Siglufirði og á Innipúkanum í
Reykjavík. Við ætlum okkur að vera
ÁSTRÁÐUR
► Ástráður fékk íslensku for-
varnaverðlaunin árið 2007.
► Læknanemar hafa á 8. ár
sinnt fræðslustarfi meðal
ungs fólks um heilbrigt
kynlíf, getnaðarvarnir og
kynsjúkdómavarnir.
mjög sýnileg líkt og síðasta ár og
verðum i bolunum okkar sem eru
grænir með bleikum stöfum þannig
að það ætti ekki að fara fram hjá
neinum. í fyrra voru líka margir
sem leituðu til okkar með spurn-
ingar sem tengdust kynlífi, enda
erum við í læknanámi og getum
svarað hinum og þessum spurn-
ingum sem brenna á fólki.“
Óþarfa áhætta
Ómar segir forvarnastarfið fyrst
og fremst beinast að aldurshópnum
15 til 24 ára, þó að allir ættu að geta
notið góðs af. „Við erum auðvitað
fyrst og fremst að höfða til þessa ald-
urshóps þar sem þetta er sá hópur
sem á hvað flesta bólfélaga og er þar
af leiðandi í mestri áhættu á að smit-
ast af kynsjúkdómum."
Einhver aukning hefur orðið á
tíðni kynsjúkdóma undanfarin
ár að sögn Ómars þrátt fyrir að
vel hafi tekist að stemma stigu
við. „Við viljum gera enn þá betur.
Okkur hefur til dæmis gengið mjög
vel í að koma í veg fyrir þunganir
hjá unglingum en það eru alltof
margir enn sem tengja ekki kynsjúk-
dóma við kynlíf. Fólk tekur óþarfa
áhættu með því að nota ekki getn-
aðarvarnir. Áhættuhegðun eykst
líka þegar fólk er að skemmta sér
og er undir áhrifum hvort sem það
er statt á útihátíð eða annars staðar
og almennt séð þá hugsar fólk ekki
nógu vel um þessi mál. Mörgum
finnst flókið að fara út í sjoppu og
kaupa smokka og margir eru jafn-
vel feimnir við það, ég hef rekið mig
mikið á það, sérstaklega hjá fólki
á aldrinum 15 til 20 ára. En þetta á
ekki að vera neitt feimnismál, það á
að Iíta á þetta sem sjálfsagðan hlut
sem fólk hefur alltaf á sér.“
Að sögn Ómars eru margir sem
fara í tékk eftir verslunarmannahelg-
ina og aðrar helgar sumarsins þegar
mikið er um að vera. „Flestir leita
þá til húð- og kynsjúkdómadeildar í
Þverholti 18 en þangað er í raun stöð-
ugur straumur allt árið. Þjónustan
þar er ókeypis þannig að við hvetjum
fólk sem stundar reglulegt kynlíf,
hvort sem það stundar öruggt kynlíf
eða ekki, að fara í tékk reglulega."
Góð graftarkýlaræma
Planet Terror er örlítið verri helm-
ingur samsuðuverkefnis þeirra
Qentin Tarantinos og Roberts Rodr-
iguez sem nefnist Grindhouse. Helm-
ingur Tarantinos hét Death Proof og
heppnaðist mjög vel. Planet Terror
er af sama virðingarverða meiði
en heppnast ekki alveg jafn vel þó
hún sé stórskemmtileg, þannig
séð. Er myndin eins konar óður til
„splatter“-mynda 8. og 9. áratugarins
en gerist samt á okkar tímum. Hún
er hallærislega ógeðsleg og fyndin á
köflum, en heilt yfir nær hún ekki
þeim anda sem Tarantino náði með
sínum helmingi. Þó myndin sé fín
þá er hún ekki jafntöff eða svöl, líkt
og Death Proof var. Vissulega er
gaman að sjá hversu vel tæknibrellu-
liðið stendur sig, því talsvert er um
hrottaleg dauðsföll í myndinni, sem
er í raun það eina sem getur talist
myndinni til framdráttar. Allur
leikur er tilgerðarlegur, líkt og lagt
var upp með, tónlistin er jafn hall-
ærisleg og ennisbönd og uppbrettar
jakkaermar 9. áratugarins og útlit
myndarinnar einnig. Myndin er
engu að síður fínasta afþreying og
vel þess virði að sjá, nema kannski
Planet Terror
Leikstjórn: Robert
Rodriguez
Aðalhlutverk:
Freddy Rodriguez,
Rose McGo-
wan, Marley
Shelton.Bruce
WW'S Eftlr Trausta Salvar Krlstjánsson
atli@bladid.net
BÍÓ ★ ★★
fyrir viðkvæmar sálir sem þola illa
blóðsúthellingar.
íslandsvinirnir Peter, Björn og
John hafa staðfest sögur um sam-
starf þríeykisins við bandaríska
R&B-tónlistarmanninn Kayne
West á Way
Out-hátíðinni í
Gautaborg. „Við
höfum ekki
heyrt mikið um
West en hann
virðist vera fínn
gæi,“ segir Peter
Moren, einn af
þremenning-
unum. „Hann ætlar að rappa við
eitt lag hjá okkur og við ætlum að
dansa, en það er ekki alveg komið
á hreint hvað við gerum. Ætli
við skemmtum okkur ekki bara
saman og höfum þetta afslappað."
Berry og Thorn-
ton í eina sæng
Leikararnir Halle Berry og Billy
Bob Thornton munu leika saman
í kvikmynd-
inni Tulia, en
þau léku síðast
saman í mynd-
inni Monsters
Ball sem fjallaði
um kynþátta-
hatur. Tulia
fjallar um sama
mál en þar er sögð saga nokkurra
íbúa í litlum bæ í Texas þar sem
fjöldi blökkumanna var kærður
fyrir fíkniefnamisferli árið 1999
án þess að ákærurnar ættu við
rök að styðjast.
Engin jafn góð
Leikkonan Lindsay Lohan efast
ekki um leikhæfileika sína og
er sögð af þeim sem til hennar
þekkja telja sjálfa sig bestu leik-
konu í heimi.
Kunningi Lohan
sagði í viðtali
við dagblaðið
National Enqu-
irer að stjarnan
færi gjarnan
ófögrum orðum
um kollega sína
og teldi enga unga leikkonu kom-
ast með tærnar þar sem hún hefði
hælana. „Hún segir til dæmis
Scarlett Johanson vera hæfileika-
lausa, ljóta og feita og Siennu
Miller telur hún óhæfa lcikkonu.
Lohan finnst heldur ekki mikið
til Keiru Knightly koma og hefur
sagt hana vera flatbrjósta og illa
gefna.“