blaðið - 04.08.2007, Blaðsíða 38
38
LAUGARDAGUR 4.ÁGÚST2007
blaóió
FÓLK
folk@bladid.net
Já, það fór víst raf-
magnið. Ég hélt ég hefði
gleymt að borga leigu!
Var óvenju skuggalegt í hverfinu í dag?
Helgi Valur Ásgeirsson trúbador býr í
Skuggahverfinu, en rafmagnið fór af
hluta hverfisins í gær.
HEYRST HEFUR
Það fór ekki vel í fyrsta leik
Loga Ólafssonar hjá KR í Evr-
ópuleiknum gegn Hácken á
fimmtudagskvöldið. Þó sáust
ágætis tilþrif af hálfu Vesturbæj-
arstórveldisins í leiknum, sem
teljast verður batamerki miðað
við spilamennskuna það sem af
er sumri. Flestir þjálfarar í Lands-
bankadeildinni voru mættir til
þess að kortleggja leikstílinn
og sjá hvort Logi myndi gera
einhverjar stórar breytingar á
liðinu. Þó svo leikskipulagið hafi
haldið sér, fengu flestar stjörnur
liðsins að byrja inn á sem er þó
nokkur breyting frá því
Teitur stýrði liðinu. Mesta [
athygli vakti þó stuðn-
ingsmannalið KR-inga,
sem líkt og endranær
sungu hástöfum allan.
leikinn og sungu Teiti"
Þórðarsyni slíkan heið-'<
urssöng að jafnvel harðgerðustu
mönnum vöknaði um augun...
Micheal Jackson er kominn til
íslands. Ekki er þó verið að tala
um hinn sérlundaða söngvara
með skrítna andlitið, heldur
Micheal David Jackson, 27 ára
Wales-verja sem spilar með
Þrótti í fyrstu deild
og þykir hafa staðið
i sig vel. Reyndar er
furðumargt líkt
k með þeim félögum,
báðir eru hvítir
á hörund, með
dökkt hár og tala báðir ensku.
Þar með lýkur þeirri upptaln-
ingu, er óhætt að fullyrða...
Ragnhildur Steinunn
Kastljóskona prýðir nýjustu
forsíðu Mannlífs og er sögð
kynþokkafyllsta kona íslands.
Jón Axel Ólafsson bloggari
fullyrðir í „Litlu frjálsu
fréttastofunni" að fyrir
nokkrum vikum hafi listi
tímaritsins yfir kynþokkafyllstu
konur landsins litið öðruvisi
út. „Þá var Inga Lind Karlsdóttir
sú kynþokkafulla, samkvæmt
lista ísafoldar, en samkvæmt
öruggum heimildum Litlu
frjálsu þá hafnaði
Inga Lind viðtali við
-■ if blaðiðþegarþess
var óskað,“ segir Jón
Axel. Hann segir að
þar sem Ragnhildur
Steinunn hafi verið
í til í viðtal, hafi hún í
snatri verið útnefnd
kynþokkafyllsta kona landsins...
Stuttbuxnaíhald
„Orðið stuttbuxnastrákar er gjarnan notað
um einstaklinga í ungliðahreyfingu Sjáif-
stæðisflokksins afþeim sem eru ósam-
mála þeim. Mér hefur alltafþótt þetta
skondið og viðkunnanlegt uppnefni, sér í
lagi þar sem mér finnst mjög þægilegt að
vera í stuttbuxum, þótt ég sé ekki sjálfur í
þessari ungliðahreyfingu. Það var ekki fyrr
en ígær að ég fór að velta þessu fyrir upp-
nefni mér. Erþetta ialvörunni samtiking
við ungliðahreyfingu nasista iÞýskalandi
á 4. áratugnum? Nei, þetta hlýturað vera
tilvísun íeitthvaðannað..."
Oddgeir Einarsson
oddgeire.blog.is
Arni vinsæll
„Hvort sem mönnum likar betur eða
verr er Árni Johnsen nú þegar hluti af
Þjóðhátíð Vestmannaeyja sem kynnir og
stjórnandi brekkusöngs. Árni hefur að
öðrum ólöstuðum viðhaldið menningu
Vestmannaeyja vel á lofti og virt forvera
sinn ísama starfi, Ása heitinn ÍBæ, vel
og lengi. Ákvörðun núverandi þjóðhátíðar-
nefndarað vilja ekki hafa Árna sem kynni
er furðuleg og ber vott um eitthvað sem
ég ætla ekki að nefna en geymi það orð í
huga mér. “
Guðrún María Óskarsdóttir
gmaria.blog.is
BLOGGARINN,
Bloggpæling
„Um fátt hefur verið jafn mikið talað und-
anfarin misseri og greindarlausa bioggara.
Reyndir bloggarar eða öllu heldur btog-
greynt fól k kann öll tökin á tækninni. Það
bloggar um allt og ekkert. Það er ekkert
athugavert við það að vera bloggreynd-
ur. Það þýðir ekkert að vera abbó út í
bloggreynda sem kunna tökin á tækninni
og nota blogggreindina til að fá sem
flesta gesti. Aðalatriðið er samt að vera
blogggreindur og misnota ekki bloggið á
nokkurn hátt. Eitt er að vera blogggreind-
ur og annað að vera bloggreyndur. “
Karl Tómasson
ktomm.blog.is
Simmi og Jói með nýjan útvarpsþátt
Fjölmiðlafríinu lokið
Þeir Simmi og Jói, sem
slógu í gegn sem kynnar
Idol - Stjörnuleitarinnar,
snúa nú aftur á öldur
Ijósvakans með morg-
unþátt á Bylgjunni alla
laugardaga. Simmi, eða
Sigmar Vilhjálmsson,
eins og hann heitir fullu
nafni, hlakkar mikið til að
hefjast handa.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
„Vissulega. Við höfum verið í hálf-
gerðu fjölmiðlafríi í eitt og hálft ár,
síðan að Idol-keppnin hætti. Þetta
hefur verið skemmtileg aukavinna
að starfa í fjölmiðlum og ekki laust
við að maður saknaði þess.“
Þeir Sigmar og Jóhann starfa
báðir í Landsbankanum, en þó ekki
í sömu deild.
„Nei, þetta er útbreiddur misskiln-
ingur sem breiðst hefur út, að við
Jói störfum báðir í markaðsdeild.
Víst er rétt að Jói starfar þar, hann
kemur að ýmsum uppákomum,
Landsbankadeildinni og slíku, en
ég hef verið að verkefnisstýra nýju
átaki sem nú er að ríða á vaðið og
nefnist Aukakrónurnar. Annars er
ekki langt á milli okkar, aðeins ein
hæð, þannig að við hittumst nú al-
veg reglulega samt sem áður.“
MAÐURINN
Sigmar verður 31 árs í
janúar
Hann heldur með Hetti frá
Egilsstöðum í fótbolta
Sjálfur spilar hann með
utandeildarliðinu Boris
„Það er alltaf gaman að starfa í
fjölmiðlum. Samt hef ég alltaf haft
það sem aukabúgrein með annarri
vinnu, hálfgert forréttindahobbí ef
svo má segja. Ég starfaði einnig hjá
365 sem sölustjóri auglýsinga með-
fram Idolinu en kom svo hingað
í Landsbankann í apríl. Þetta er
auðvitað allt öðruvísi vinna en að
standa á sviði en er einnig krefj-
andi og skemmtileg. En þegar
við fengum hringingu frá Gulla
Helga um að taka við af sér með
þættina á laugardagsmorgnum þá
er ekki laust við að smá fiðringur
færi um mann. Okkur Jóa fannst
þetta spennandi að komast aftur
í útvarpið, við byrjuðum auðvitað
saman á Mónó i gamla daga en
Gulli Helga er eins konar mentor í
þessum bransa fyrir okkur. Hann
og Jón Axel breyttu auðvitað
þessum útvarpsbransa allrækilega
á sínum tíma þegar þeir stýrðu
Tveir með öllu. En okkur Jóa leist
svona fjandi vel á þetta og tókum
til við að rúlla hugmyndum fram
og tilbaka og afraksturinn má
heyra í dag milli 9-12 á Bylgjunni,“
segir Simmi sem fann frægðina
dvína örlítið meðan á fjölmiðlafri-
inu stóð.
„Maður var kannski ekki jafn
mikið i sviðsljósinu auðvitað og
kannski ekki skrítið að athyglin
beinist þá annað. En við höfum
verið að hringja í fólk vegna þátt-
anna og gera grín, kanna hvað
þessi íslenska frægð kemur manni
langt áfram. Og það er mesta furða
hvað maður er ógeðslega frægur!
Nei, ég segi nú bara svona, en fólk
virðist sumt kannast við mann að
minnsta kosti. Samt er merkilegt
hvað Islendingar eru lítið að snobba
fyrir þessum meintu stjörnum hér
heima og eru sem betur fer ansi
jarðbundnir.“
Sigmar segist lítið hrifinn af úti-
hátíðum, hann endist ekki íþriggja
daga fylleríi
„Eg er sáralítið fyrir svona útihá-
tíðir. Ég fór þegar ég var 16-17 og
18 ára og einu sinni þegar við Jói
vorum á Mónó. Þá fórum við á Þjóð-
hátíð í Eyjum og sömdum Týpíska
lagið, sem sat á toppi íslenska listans
í nokkrar vikur. Annars hef ég ekki
hrifist af öllum látunum og fyller-
íinu, bæði fyrir og eftir að ég eignað-
ist fjölskyldu. Ætli ég fari ekki bara
í bústað um helgina, en það verður
ekki fyrr en eftir hádegið á laugar-
deginum,“ sagði Sigmar að lokum.
r
Hjá ofelzurfáLð fíð
ún/ai af b«nA/«bClstolu.m,
V
www.babysam.is
Su doku
9 3 8 2
2 8 7
1 4 8
1 5 2 6
3 6 5 4
7 4 3 5
7 2 6 8
8 9 1
4 3
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sínni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
9-25_________________ O LaughhgSiock Intematíonal IncJdist. by United Media, 2004
Tölvan spyr í hvorn endann við
eigum að stinga gúmmídótinu?