blaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 2
járngallery
Kjarnagluggar
Skemmuvegi 46 • 200 Kópavogi
slmi 564 4714 • Fax 564 4713
www.kjarnagluggar.Is
BÍLSKÚRS- OG IÐNAÐARHURÐIR
Global lce ehf. sími 578 8899
Krókhálsi 5a www.globaiice.is
110 Reykjavík giobalice@globaiice.is
544 4884
Novoferm er leiðandi fyrirtæki
í hurðaframleiðslu í Evrópu
Flestar stærðir og litir í boði
10 ára verksmiðjuábyrgð á
bílskúrshurðum og 5 ára
verksmiðjuábyrgð á opnuruml
Dalvegur 24
Kópavogi
JSQ Járnsmiöja Oðins ehf.
1 Sími 557 9300-Fax 567 9343
. www.jso.is* Netf: jso@jso.is
GLOBAL ICE
ER UMBOÐSAÐILI
NOVOFERM Á ÍSLANDI
Gluggar
& hurdir
Gluggar, huröir, og svalahuröir
úr viðurkenndu F’VC-U hágæöa
REHHII
Kjamagluggar hafa einstakt
einangrunargildi og ern til (
mörgum gerðum.
(slensk framleiösla og
áratuga reynsla
Sparaðu tíma • leitaðu tilboöa
netfang: gluggar@vortex.is
18 I HÚSBYGGJANDINN
MIÐVIKUDAGUR 8. AGUST 2007
blaöið
Eftir Lovísu Hilmarsdóttur
lovisa@bladid.net
Ástvaldur Jóhannesson festi
kaup á íbúð í fjölbýlishúsi í Reykja-
vík árið 2004. Hann átti að fá hana
afhenta í september sama ár, en
skilin drógust í rúmlega hálft ár og
þegar íbúðin var loks afhent komu
í ljós miklar skemmdir á húsinu. 1
millitíðinni fór verktakinn sem
byggði fjölbýlishúsið á hausinn og
framseldi byggingarréttinn til Fast-
eignfélagsins Hlíðar sem er í eigu
Frjálsa fjárfestingarbankans. íbú-
arnir fengu sér lögfræðing áður en
þeir fluttu inn í húsin til þess að
leita réttar síns varðandi skemmdir
og uppsafnaða dráttarvexti, en ekki
var ljóst hver bæri ábyrgð.
Héraðsdómur skipaði mann
til þess að meta skemmdirnar en
skýrslan barst aldrei fullkláruð;
hann kláraði aldrei að meta húsið.
Það hefur, samkvæmt Ástvaldi, tafið
fyrir öllum samningaviðræðum á
milli bankans og íbúanna. Málið er
tvíþætt: Annars vegar eru íbúarnir
að semja um bætur vegna skemmda
á sameign, svo er hver og einn að
semja vegna skemmda á íbúðum
og uppsafnaðra dráttarvaxta. Sam-
kvæmt Jóni Magnússyni, lögmanni
íbúanna, eru samningaviðræður á
lokastigi, en ef samningar nást ekki
um miðjan mánuð þá fer þetta fyrir
dómstóla.
Frágangur hræðilegur
Ástvaldur segir allan frágang
á húsinu hafa verið hræðilegan.
„Þegar við flytjum inn er allt í leka-
skemmdum og húsið nánast fokhelt.
Það var tjald yfir húsinu sem vernd-
aði það fyrir raka því ekki var búið
að steina húsið að utan. Sameignin
er mjög skemmd. Leki er i bílakjall-
aranum sem við höfum verið að
benda á. Gert var við það en það
tekur sig bara upp aftur. Bankinn
bauð okkur milljón sem átti að duga
fyrir viðgerð á bílakjallaranum en
við erum ekki viss um að það sé nóg.
Þetta er bara brot af þeim göllum
sem voru og eru á húsinu,“ segir
Ástvaldur.
Framkoma bankans undarleg
Samkvæmt Ástvaldi er aðkoma
Frjálsa fjárfestingarbankans að mál-
inu öll hin undarlegasta. Samkvæmt
lóðaúthlutun Reykjavíkurborgar 23.
júlí 2003 er Frjálsi fjárfestingarbank-
inn leigjandi lóðarinnar sem um er
rætt.
„Þeir leigðu lóðina upphaflega
en framleigðu byggingarréttinn til
verktaka sem fóru svo á hausinn,
svo fer byggingarrétturinn til Fast-
eignafélagsins Hlíðar sem er í eigu
Frjálsa fjárfestingarbankans. Þessir
verktakar voru alræmdir og bank-
inn Iánar þeim samt 600 milljónir
til þess að byggja fjölbýlishús. Svo
þegar kemur að þvi að axla ábyrgð
þykist bankinn ekki hafa komið
nálægt þessu, heldur sé þetta allt á
ábyrgð verktakanna sem bankinn
hafði treyst fullkomlega, þó svo að
þeir gætu ekki einu sinni fengið
veð fyrir byggingarlóð. Svo kemur
saklaust fólk með aleiguna sína og
lendir í þessum mönnum. Þessi
formúla gengur einfaldlega ekki
upp,“ segir Ástvaldur.
Samkvæmt Ingólfi Friðjónssyni,
forstöðumanni Frjálsa fjárfestingar-
bankans, tók bankinn lóðina á leigu
þar sem verktakarnir gátu ekki
fengið veð.
544 þúsund í dráttarvexti
Ástvaldursegisthafaaðeiginfrum-
kvæði farið í bankann í júní 2005
og gengið frá slnum málum. „Þeir
buðu mér að halda eftir 400 þúsund
krónum við afhendingu sem átti að
koma í staðinn fyrir það sem var
ekki klárað. Svo fæ ég lögfræðibréf
þess efnis að höfuðstólinn væri 14,2
milljónir. Ég geri athugasemd við
það og hef ekki fengið neitt frá bank-
anum síðan. Lögfræðingarnir hafa
bara verið að tala saman, en hvorki
fasteignasalan né bankinn, vegna
bréfsins sem ég fékk. Ég er tilbúinn
að borga það sem ég á að borga, en
ég vil hafa allt á hreinu um allar
bætur vegna tafa og skemmda. Ég á
ekkert að þurfa að tapa á því að bíða
eftir að þetta komist á hreint. Ég hef
fengið tillögu þess efnis að ég borgi
544 þúsund krónur í dráttarvexti og
hafa þeir þá tekið bætur vegna tafa
og galla með í reikninginn. Þannig
að í heildina þarf ég að borga 944
þúsund; allt vegna tafa sem orðið
hafa á málinu bæði af bankans
hálfu og matsmannsins. Sem sagt,
ég á að tapa á þessu og þeir græða.
Undarleg viðskipti," segir Ástvaldur
og bætir við að hann furði sig á því
af hverju bankinn sýni ekki meiri
ábyrgð á því hverjum hann lánar
pening. „Svo sitjum við í súpunni
sem höfum lagt allt undir og það er
bara ekki nógu gott.“