blaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 4
20 HUSBYGGJANDINN
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGUST 2007
blaöið
Fjarstýringar
Getum boðið allar gerðir fjarstýringa frá
Datek og Teleradio.Yfir 10 ára þekking og reynsla
520 3100 Smiðjuvegur50 datek@datek.is
FÖSTUDAGAR
510 3744 blaðið=
Auglýsingasíminn er
awa Gler-rennibrautir
Hawa Junior 80 eru glæsilegar
rennibrautir fyrir 8-10-12 mm
hert gler eða timburhurðir.
Eigum einnig rennibrautirfrá
fyrir skápa og
tréhurðir.
Jám & Gler ehf. - Skútuvogur lh.
Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík
S: 58 58 900. www.jamgler.is
Utvegum hert gler eftir máli.
'i I
IlllllU
Einangrunargler - Öryggisgler - Speglar
PVC
Gluggar* Sólhýsi
Hurðir» Svalalokanir
Frábær lausn l bœði
gamalt og nýtt:
Einbýlið, fjölbýlið, sumaihúsiö
eöa hvar þar sem fegurö
og gœói njóta sín
TOPLINE
gluggarog hurðir
DANLINE gluggar
Hafðu samband og við ráðleggjum þér
GLUGGfl- 0G
GLERHÖLUN
Ægisbraut 30*300 Akranes *Srmi:431 2028*Fax:431 3828
Netfang:glerhollin@glerhollin.is»Heimasíöa: www.glerhollin.is
Magnús Árni Skúlason
Fasteignaverö er hátt og
greiðslubyrðin líka
Magnús Ami Skúlason hagfræðingur
Ákveðnir hópar eiga erfitt
með að kaupa fasteignir
Fasteignaverð hefur
hækkað mikið síðustu ár
og margir halda því fram
að það hafi aldrei verið
jafnerfitt fyrir ungt fólk
að kaupa sína fyrstu íbúð.
Eftir Sigrúnu Maríu Einarsdóttur
sigrun@bladid.net
„Ef fólk stenst greiðslumat þá er að-
gengi að fjármagni betra en það var
en á móti kemur að fasteignaverð
er orðið mun hærra,“ segir Magnús
Árni Skúlason hagfræðingur. „Að-
gengi að lánsfjármagni breyttist
töluvert í ágúst 2004 þegar boðið
var upp á 90% lán til allra. Það
þurfti því ekki lengur að leita til ætt-
ingja varðandi viðbótarfjármögnun
eða taka yfirdráttarlán. Þessi þróun
hefur haldið áfram þannig að að-
gengi að lánsfé er mun betra fyrir
fyrstu kaupendur. Hins vegar er
fasteignaverð mun hærra og það
hefur hækkað verulega síðastliðin
þrjú ár.“
Gera góða greiðsluáætlun
Aðspurður hvaða ráð hann hefði
fyrir fólk sem er að fjárfesta í sinni
fyrstu húseign sagði Magnús að fólk
gleymi oft viðskiptakostnaðnum við
það að kaupa og selja. „Hann getur
verið töluvert hár og þá borgar sig
oft, ef fólk ætlar að stofna fjölskyldu
fljótlega, að kaupa aðeins stærra
húsnæði þannig að það sé til auka
herbergi. Þannig að ef fjölskyldan
stækkar þá þurfi fólk ekki að selja
KAUPSAMNINGAR
27. júlí til 2. ágúst voru 202
þinglýstir kaupsamningar á
höfuðborgarsvæðinu.
Heildarveltan var 5408
milljónir
Meðaiupphæð á hvern
samning voru 26,8 milljónir
eftir eitt eða tvö ár.“
„Ef verð fasteigna hækkar ekki
þá getur viðskiptakostnaður leitt
til þess að betra hefði verið heima
setið enn af stað farið. Fólk ætti
því að skipuleggja sig vel. Fyrst
og fremst þarf fólk að gera góða
greiðsluáætlun og hafa gott greiðslu-
mat þannig að fólk lendi ekki í vand-
ræðum. Það á til dæmis ekki að gera
ráð fyrir því að sú yfirvinna sem
fólk er með núna haldist alltaf. Mik-
ilvægt er að gera nákvæmt greiðslu-
mat í samvinnu við þá lánastofnun
sem fólk á í viðskiptum við. Fjár-
málastofnunin er að hjálpa fólki við
greiðslumat þannig að viðkomandi
átti sig á því hvað hann getur greitt
á hverjum mánuði. Það borgar sig
ekki að vera að svindla á sjálfum sér
í því.“
Magnús telur að nú sé erfitt fyrir
fólk sem er að koma út á fasteigna-
markaðinn í fyrsta sinn. „Það er að-
allega vegna þess að fasteignaverð
er hátt og greiðslubyrðin líka. En á
móti kemur að flestir taka 40 ára
lán. Það er hentugur fjármögnun-
armöguleiki fyrir fólk sem er til
dæmis nýkomið úr háskólanámi
því þá minnkar greiðslubyrðin. En
fólk sem er eldra ætti að taka lán til
styttri tíma því fólk þarf að huga að
því að fólk ef til vill fer á eftirlaun 65
ára og þá vill það vera búið að greiða
upp lánið.“
Verðhækkanir erfiðar ungu fólki
„Ég ráðlegg fólki að taka 25 ára lán
ef það getur því þá er eignamyndun
mun hraðari. Það kostar hins vegar
hærri greiðslubyrði, en þetta er
bara spurning um val. Það getur
líka verið kostur að taka 40 ára lán
og spara annars staðar. Til dæmis
spara í hlutabréfum eða öðrum
sparnaði í staðinn fyrir að spara í
eigin húsnæði. Fólk getur því tekið
40 ára jafngreiðslulán og ákveðið að
það ætli að hafa mjög hæga eigna-
myndun eða treyst á að eignamynd-
unin komi í gegnum verðhækkun."
„Fólk sem er nú þegar komið inn
á markaðinn hefur notið verðhækk-
ananna og þar af leiðandi er það
búið að vera að byggja upp eitthvert
eigið fé. Það eru alltaf þeir sem
eru að koma nýir inn á markaðinn
sem eiga í mestum erfiðleikum. Að
vissu leyti hefur maður áhyggjur
af þessu fólki. Þá sérstaklega af
þeim sem eru með litla menntun
og lágar tekjur. Þeir sem eru með
hærra menntunarstig virðast vera
á sæmilegum tekjum þá einkum ef
um tvo útivinnandi einstaklinga er
að ræða. En það eru alltaf ákveðnir
hópar innan samfélagsins sem eiga
í miklum erfiðleikum með að kaupa.
Þannig er það núna og hefur alltaf
verið,“ segir Magnús Árni.
Minna selt af gaseldavélum
Undanfarin ár hafa gaseldavélar
verið mjög vinsælar og salan á þeim
gríðarlega mikil. Vinsældir gaselda-
vélanna hafa þó eitthvað dvínað á
síðasta ári, samkvæmt Unni Run-
ólfsdóttir, sölumanni hjá Rönning.
,Gaseldavélarnar eru ekki eins vin-
sælar og þær voru. Það er til dæmis
mun minni sala á gaseldavélum
nú en var fyrir fjórum árum. Það
eru spanhellur sem hafa algjörlega
tekið við. Það var eitthvað keypt af
spanhellum áður en gaseldavélarnar
urðu vinsælar en þær hafa lækkað í
verði sem gerir það að verkum að
þær hafa aldrei verið eins vinsælar
og þær eru í dag.“
Spanhellur vinsælar
Aðspurð hver sé ástæðan fyrir
því að spanhellurnar séu svona vin-
sælar segir hún að þær séu helmingi
fljótari að hitna en gasið. „Það gerist
því allt miklu hraðar auk þess sem
það er engin eldhætta. Við finnum
fyrir því að það eru alltaf einhverjir
sem eru hræddir við lausan eld en
fólk applifir mikið öryggi með því
að nota spanhellurnar," segir Unnur
og bætir við að vitanlega sé eitthvað
um að seldar séu rafmagnseldavélar
og gaseldavélar. „Ég hugsa að um 80
prósent af þeim helluborðum sem
við seljum í dag séu spanhellur.“
Gaseldavél Gaseldavélarnar hafa
verið mjög vinsælar undanfarin ár en
vinsældirnar eru að dala.