blaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 5

blaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 5
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2007 HÚSBYGGJANDINN 21 Móttökudiskar Gleöigjafar eða húslýti? Daglega koma mál og fyrirspurnir til Húseigendafélagsins um gervi- hnattadiska. Oft eiga hlut að máli nýbúar sem vilja ná sjónvarpssend- ingum frá heimahögum sínum. Þeir telja það til sálarheilla að geta fylgst með dánafregnum og jarðarförum og öðrum fréttum að heiman. Þeir líta á diskana sem þarfaþing og gleðigjafa meðan aðrir hafa ímug- ust á þeim. Diskadeilur leysa miklar tilfinningar úr læðingi. Diskar eru ýmist elskaðir eða hataðir eins og pestin og litast deilurnar af því. Sameiginlegir diskar Sameiginlega diska má ekki setja upp fyrr en málið hefur hlotið form- lega afgreiðslu innan húsfélagsins. Kærunefnd fjöleignarhúsmála hefur nokkrum sinnum fengið slík álitaefni á sitt borð og markað þá meginreglu að uppsetning venju- legra diska á ytra byrði fjöleignar- húsa sé háð því að aukinn meiri- hluti (2/3) sé því meðmæltur. En ef diskur er stærri, meira áberandi og til meiri lýta verður að áskilja sam- þykki allra eigenda. Á hinn bóginn myndi einfaldur meirihluti senni- lega duga þegar útlitsáhrifin eru hverfandi. Einkadiskar Einkadiskar utan á og ofan á fjöl- eignarhúsum hafa verið bitbein og til ófriðar. Bitbeinið hefur líka snú- ist um hvort eigendur megi hafa þá á svölum sínum. í sumum tilvikum hafa þeir sett diska upp á eða utan á svalahandrið íbúða sinna eða utan á húsið innan seilingar frá svölum en í öðrum tilvikum eru diskum fyrirkomið innan svala sem ná lítið eða ekkert upp fyrir svalahandriðið. Húslýti, Brotajárnshaugur Það skiptir sköpum hvort diskur sé til lýta og hafi áhrif á ásýnd og heildarmynd hússins. Ef fullkomið og villt frjálsræði ríkti, færu sum hús að bera enn meiri blæ af brota- járnshaugum og rússneskum draugageimstöðvum en orðið er. Það er ljóst að stórir diskar og einnig smærri diskar utan á húsum og svölum eru fallnir til þess að spilla ásýnd húss. Það er öðrum eig- endum óskylt að sætta sig við. Ytra byrði og ásýnd húss er í sameign Allt ytra byrði fjöleignahúss er í sameign og þar með er talið útlit og ásýnd þess. Allir íbúðareigendur eiga rétt á að eiga hlut að ákvörðun sem varðar útlitið og heildarmynd hússins. Þegar um miklar útlits- breytingar eru að ræða þurfa allir eigendur að ljá samþykki sitt fyrir þeim en þegar breytingar er um að tefla sem ekki eru verulegar nægir samþykki 2/3 hluta en til smávægi- legra útlitsbreytinga nægir alltaf samþykki einfalds meirihluta. Ávallt eru meiri líkur á því að einka- diskur sé háður samþykki allra en sameiginlegur diskur. Það byggist á því að með því að heimila einstak- lingsdisk er yfirleitt verið að veita viðkomandi eiganda aukinn eða sér- stakan rétt umfram aðra. Disklingar á svölum Þegar um pena einkadiska (disk- linga) á svölum er að tefla þá snýr það meira að hagnýtingu séreignar. Það er meginregla að eigandi eigi einn rétt á að ráða yfir og hagnýta séreign sína. Beri lítið á disknum og hann er ekki er til teljandi óprýði, þá er vafasamt að aðrir eigendur eigi nokkurn íhlutunarrétt. Það er varla ástæða til að amast við því þegar krúttlegur disklingur lúrir bak við svalahandrið og spillir ekki fegurð hússins. Sama er að segja ef hann gægist sakleysislega upp fyrir hand- riðið svona eins og grill og aðrar til- færingar á svölum. Ef diskur hefur þannig engin eða sáralítil áhrif á út- lit hússins og ásýnd þess þá skaðar hann ekki lögvarða hagsmuni eig- enda. Sem sagt. Ef ekki er um hús- lýti eða ásýndarspjöll, þá er íbúðar- eiganda sennilega heimilt að setja upp og hafa disk á svölunum án þess að leita samþykkis. Þó er vissara til fyllsta öryggis að afla samþykkis einfalds meirihluta á húsfundi. Byggingaryfirvöld Ef diskur, hvort heldur einka- diskur eða sameiginlegur diskur, kemur til með að breyta eða hafa áhrif á útlit og ásýnd fjöleignarhúss þá er meginreglan sú að afla verður samþykkis byggingaryfirvalda. Staða leigjanda Ef um leigjanda er að tefla þá verður hann vitaskuld að afla sam- þykkis leigusala síns sem svo þarf eftir atvikum að bera málið undir húsfund áður en slíkur diskur er settur upp. Geislun, krabbamein í músum Það er þekkt að svona diskar valdi skelfingu. Dæmi eru um að íbúðar- eigendur hafi neitað að veita sam- þykki sitt fyrir diski vegna hættu á geislun frá honum. Almennt er talið að geislun frá slíkum diskum sé engin og fólk á því að geta sofið rótt þess vegna. Ekki hefur einu sinni tekist að leiða að því líkum að svona diskar valdi krabbameini í músum og þá er nú mikið sagt. Nýbúar njóta ekki forréttinda Réttur íbúðareigenda er jafn í þessu efni. Vissulega má hafa samúð og skilning á aðstöðu ný- búa sem vilja halda tengslum við Sigurður Helgi Guðjónsson hrl. Formaður Húseigendafélagsins ' föðurlandið með hjálp gervihnatta en samt er ekki heimilt að veita þeim sérréttindi eða aukinn rétt umfram aðra. Slík sérréttindi fela í sér misrétti og gagnvart öðrum eigendum. KAESER LOFTPRESSUR impex Viðurkennd vara - gott verðj Akföst: 0,82ms til 27ms/mín Þrýstingur: 7 til 14 bar Sími 534 5300 impex@impex.is www.impex.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.