blaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 7

blaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 7
blaðió MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2007 HÚSBYGGJANDINN (23 Of margir ófaglærðir Ekki nægilegt eftirlit með verktökum Aldrei hefur verið jafn mikið að gera hjá iðnaðarmönnum á íslandi eins og undanfarin ár. Mörg lítil verktakfyrirtæki hafa sprottið upp á markaðnum og eru þau eins mis- jöfn og þau eru mörg. Guðbrandur Ingimundarson er múrarameistari að mennt og hefur starfað í grein- inni síðan 1971. Hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki árið 1999, GI MÚR ehf., og vinnur bæði fyrir einstak- linga og fólk með stærri verkefni. „Ég vinn fyrir aðra verktaka en ég skrifa sjálfur upp á verkin. Ég vil fylgja verkinu eftir frá upphafi til enda,“ segir Guðbrandur. Sprengja á markaðnum Samkvæmt Guðbrandi er alltof mikið um ófaglærða menn sem vinna sjálfstætt sem iðnaðarmenn. „Frá því að þessi sprengja kom á hús- næðismarkaðinum fyrir 10 árum hefur vinna iðnaðarmannsins farið hríðversnandi og það er ekki gott fyrir stéttina í heild. Lærlingar eru að stofna fyrirtæki og kunna jafnvel ekkert til verka. Ég hef oft þurft að laga verk eftir slíka verktaka; pússa heilu húsin upp á nýtt. Það er alls ekki nógu gott eftirlit. Allir gerð- ust iðnaðarmenn við sprenginguna upp úr aldamótum og enginn réði við neitt.“ Komnar fleiri vélar Aðspurður hvort greinin og tísku- straumarnir hafi ekki breyst mikið síðan hann byrjaði segir hann að svo sé. „Ég sé mikinn mun frá því að ég byrjaði, því það eru komnar svo margar vélar sem vinna hin ýmsu verk. Hins vegar er múrara- starfið mjög erfitt þrátt fyrir véla- búnaðinn. Hvað tískuna varðar þá gengur hún í hringi í þessu eins og öllu öðru. Það var í kringum 1980 að allir voru að hrauna húsin sín bæði að innan og utan, en það er al- gjörlega dottið upp fyrir. Fólk hefur verið að falast eftir þvi að láta taka þetta af en það er bara heljarinnar mál. Ég mæli frekar með því að fólk skipti um hús en að fara í þá fram- kvæmd,“ segir Guðbrandur. Ekki orðinn ríkur Aðspurður hvort hann sé orðinn ríkur af allri þessari vinnu undan- farin ár segir Guðbrandur svo ekki vera. „Ég er nú ekki orðinn ríkur og verð það aldrei, en ég viðurkenni það að ég hef það gott. Það má hins vegar deila um það hvað það er sem gerir menn ríka,“ segir Guðbrandur • Bo 09 BROT EITT BESTA ÚRVAL LANDSINS Á HEILSUDÝNUM FRÍ LEGUGREINING og fagleg ráðgjöf á heilsu- og sjúkradýnum ILBOÐ 10-40% AFSLÁTTUR . m pi t m : :: :

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.