blaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 1
blaöið Danskar síðbuxur stærðir 36-52 verð frá 2990 - 3890 póstsendum vEpálisHniL við Laugalæk • sími 553 3755 AUGLÝSINGASlMI: 510 3744 AUGLYSINGAR@BLADID.NET FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST Litríkir álfar í æv- intýraheimi 18 Offita mæðra hef- ur áhrif á börn 19 Um 120 konur fara í brjóstaminnkun árlega 20 Líkamsrækt er mikilvæg 21 íslandsmeistari í golfi 22 Hausttískan í förðun 23 KYNNING Betra bak býður eitt mesta úrval landsins af heilsudýnum Mikið úrval hjá Betra Bak býður upp á eitt mesta úrval landsins af heilsudýnum og stillanlegum rúmum auk mikils úrvals teppasetta, sængurvera og bað- vara. Viðskiptavinir Betra Baks koma aftur og aftur til þess að kaupa þær gæðavörur sem verslunin býður upp á. Til að mynda selur Betra Bak þýsk lök frá Formesse sem eru einhver þau mýkstu og þægilegustu sem völ er á. Fólk sem sefur einu sinni á þeim getur ekki hugsað sér að nota önnur lök. Þau eru gerð úr 400 þráða egypskri bómull sem lögð er í sér- staka aloe vera-blöndu sem gefur þessa auknu mýkt. Sumarlitirnir hafa verið allsráðandi i sumar en teppin hafa verið einlit, ýmist í hvitu, svörtu, beige eða silfurgráu. Verslunin Betra Bak hefur frá upphafi einsett sér að vera leiðandi í nýj- ungum á rúmamarkaði ásamt því að sérhæfa sig í sölu á viðurkenndum heilsudýnum og stillanlegum rúmum. Verslunin hefur fylgt eftir þeirri öru þróun sem hefur átt sér stað í heiminum síðastliðin 13 ár. Dýnurnar Betra baki og rúmin koma alls staðar að, svo sem frá Ameríku, Þýskalandi, Hol- landi, Danmörku, ftalíu, fsrael og víðar. Betra Bak býður margar gerðir rúma, allt frá hinum þekktu Tempur- og Spring Air-heilsudýnum, til italskrar hátískuhönnunar sem ber alveg gerólíkt yfirbragð. En eins og þróunin hefur orðið síðastliðin tvö ár hafa rúm í evrópskum stíl með stillanlegum botnum og heilsudýnum orðið æ vinsælli. Svefnsófar frá Recor í Belgíu og Milano Bedding á Ítalíu eru einnig orðnir stór þáttur í versluninni og er um 300 fm sýningarsalur á neðri hæð verslunarinnar. Á annari hæð verslunarinnar er svokallað „VIP showroom" fyrir þá sem vilja rúm hönnuð af arkitektum og handsmíðuð í Frakklandi. Sá salur var settur upp fyrir rúm sem eru á verðbilinu 1.000.000 til 1.800.000 krónur en um er að ræða tvíbreið rúm með stillan- legum botnum og göflum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.