blaðið - 11.08.2007, Blaðsíða 1
ORÐLAUS
SPJALLIл3
144. tiilublnö 3. nrgangur
Laugardagur
11. ágúst 2007
Kom sínu á hreint
„Ég hafði það sem útgangs-
punkt að ég væri hættur að
blekkja mig og aðra," segir
Jón Þór Þorleifsson spurður
ásamt fjórum öðrum hvernig
það sé að koma út úr
skápnum.
Ballkóngurí 15ár
„Bogomil gerir mig út þegar
hann vantar pening fyrir
gylltum kaffibollum,"
segir Sigtryggur Bald-
urssonsem spilará
afmælistónleikum
Millanna í kvöld.
FRJALST, OHAÐ & W
Á leið til Texas
Arndís Björg Stefáns-
dóttir eða Dísa Stefan
skákar breskum leik-
listarnemum,ofsækir
Robbie Williams og
flytur fljótlega til
elsta bæjar Texas.
FÓLK»38
Ég hafði engar
fyrirmyndir
Eina vandamálið var í hausnum á mér
„Samkynhneigð mín var ekkert vandamál innan fjölskyldunnar, til allrar ham-
ingju. Eina vandamálið var í hausnum á mér og þegar ég var búin að átta mig
áþvíoghorfastíauguviðsamkynhneigðmínahvarfvanda- nn
málið,“ segir Ragnhildur Sverrisdóttir blaðamaður. jOOÖ
Grímseyjar-
ferjan sögð
lélegt skip
■ Ferjan sögð hrörleg og dapurleg í skýrslu
um ástand hennar áður en hún var keypt
■ Kostnaðurinn tvöfalt fram úr áætlun
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
GRÍMSEYJARFERJAN
Ný Grímseyjarferja sem enn
liggur í flotkví í Hafnarfirði er „í
einu orði sagt hrörleg sökum
vanhirðu og skorts á viðhaldi.
Þessu til viðbótar virðist sem að
ekki hafi verið staðið nægilega vel
að eða vandað til smíði skipsins.“
Þetta er meðal þess sem lesa má í
skýrslu sem skipaverkfræðingur
hjá Siglingastofnun vann fyrir
samgönguráðuneytið fyrir tveimur
árum um hentugleika ferjunnar.
1 skýrslunni kemur einnig
fram að vanhirða og skortur á
viðhaldi hafi blasað við hvert sem
litið var um borð í skipinu og að
„verkvöndun við smíði skipsins gefi
eðlilega tilefni til þess að ætla að
annað ástand skipsins og búnaðar,
sem ekki er mögulegt að kanna
án frárifa og upptektar, geti verið
talsvert lakara en aldur skipsins
gefi tilefni til.“ Því sé ærin ástæða
til að gera ráð fyrir hinu dapurlega
ástandi skipsins við mat á kostnaði
við endurbætur.
Skýrsluhöfundur segir í niðurlagi
hennar að ef ástand skipsins reynist
með þeim hætti að kaupverð þess
að viðbættum endurbóta- og
viðgerðarkostnaði verði lægra
W. Tólf ára gömul ferja var
keypt til að leysa Grímseyj-
arferjuna Sæfara af hólmi.
Taka átti ferjuna í notkun
r í nóvember í fyrra. Hún er
enn ekki komin í gagnið.
Skýrsla Ríkisendurskoðu-
nar um málið er væntanleg
á allra næstu dögum.
en 240 milljónir króna sé líklega
um áhugaverðan valkost að ræða
samanborið við smíði á nýju skipi.
Skýrslunni var skilað þann
25. september 2005. Skipið var,
þrátt fyrir skýrsluna, keypt á 102
milljónir króna í nóvemberlok
það sama ár. Kristján L. Möller
samgönguráðherra sagði í hádegis-
fréttum Ríkisútvarpsins síðast-
liðinn miðvikudag að hann
óttaðist að heildarkostnaður vegna
ferjunnar yrði allt að 600 milljónir
króna. Nýja Grímseyjarferjan er
enn ekki komin í gagnið.
Blaðið hefur skýrslu Siglinga-
stofnunar undir höndum og í úttekt
í blaðinu í dag er farið ítarlega í
efnisatriði hennar.
VANHIRT OG HRÖRLEGT HRÆ »14
Sjúklingar greiða
gistingu sjálfir
Sjúklingar af landsbyggðinni
sem sækja sérfræðiþjónustu til
Reykjavíkur og fá ekki gistingu á
sjúkrahóteli, þurfa sjálfir að greiða
gistingu. Umboðsmaður
Alþingis skoðar málið.
»2
Teikna taf lborðið
í sandinn
Börn í Namibíu eru gripin skák-
áhuga eftir að hafa fengið kennslu
hjá íslenskum skákmönnum. Þau
teikna taflborðið í sandinn og nota
steina fyrir taflmenn eða V% Q
tálga þá út sjálf. O
Opið alla daga frá kl. 10.-20.
S ?,kR
Bæjarlind 1 - Simi 544 4510
Big Ben
þagnar
Big Ben-klukkan í Lundúnum
sló í síðasta sinn í nokkurn
tíma klukkan átta í morgun.
Þetta er í fyrsta sinn frá árinu
1956 sem slögin fyrir hvern
klukkutíma og hvert korter
hætta. Á næstu vikum verður
unnið að hreingerningu og
viðgerðum á klukkunni frægu
og má búast við að þær muni
standa yfir í sex vikur hið
minnsta.
Lið hreingerningarmanna
hefur gengist undir sérþjálfun
og mun hanga í reipum með
sápu og bursta við hönd og
þrífa klukkuna. aí
NEYTENDAVAKTIN
Verð á árgjöldum kreditkorta
Fyrirtæki Glitnir silfurkort Kaupþing visa Landsbanki visa Netbankinn visa Kránur 2.600 2.600 2.600 2.600
S24 5.000 Spron silturkort 5.500 BYR 5.500 Upplýslngar frá Neytendasamtökunum '^sr^
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
■S USD 66,34 2,78 ▲
m GBP 133,84 2,22 ▲
5S dkk 12,19 2,56 A
• JPY 0,56 3,71 A
BB EUR 90,74 2,54 A
GENGISVlSITALA 122,80 2,56 A
ÚRVALSVlSITALA 7.983 -3,47 ▼
VEÐRIÐ 1 DAG
VEÐUR»2