blaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 1
Tennis er kúltúr Soumia Islami er marg- faldurtennismeistari * frá Marokkó. Hún aetlar að gera J/ fslendinga jafn góða ítennis og / Marokkóbúa. 150. tölublaö 3. árgangur Þriðjudagur 14. ágúst 2007 Eiður ífaðm Eggerts Eiður Smári Guðjohnsen gengur trúlega til liðs við West Ham í vikunni. Barcelona hefurtekið tilboði West Ham en karpað er um launa- kröfur Eiðs Smára. Gulli gengur aftur FÓLK»38 SPORT»32 Búi Bendtsen, útvarps- maður hætti nýlega í Brain Police, en Gunnlaugur Lárusson, fyrrum gít- arleikari sveitarinnar, var fljótur að grípa gítarinn á ný. ORÐLAUS»j4 3 til 7 ára án tannlækninga Aðeins tappi hélt dallinum á floti Ekki hefur verið hægt að gera við tennur í börnum á aldrinum 3 til 7 ára frá því í maílok hjá þeim sem þurfa á svæfingu að halda. Þá hætti vegna aldurs sá svæfingalæknir sem helst starfaði með barna- tannlæknum. „Ég tel að 10 til 15 börn hafi að jafnaði fengið þessa þjónustu í hverri viku. Þetta eru að mestu leyti börn á aldrinum 3 til 7 ára, oft með margar skemmdar tennur," segir Helgi Hans- son barnatannlæknir. ** V Sjaldan betri staða á vinnumarkaði Staðan hefur sjaldan verið eins góð og nú fyrir þá sem hafa hug á að skipta um vinnu. „1 [gærjmorgun voru 979 skráðir atvinnulausir á höfuðborgarsvæðinu, en við höfum líklega aldrei séð það lægra," segir Gunnar Richardsson, \\*| Jl hjá Vinnumálastofnun. Jf/ Ofbeldið í raun ekki aukist Ekkert bendir til þess að ofbeldis- verkum í miðborginni hafi fjölgað á undanförnum árum, segir Helgi Gunnlaugsson, prófessor 1 félags- fræði við Hl. „Ef afbrotatölfræði undanfarinna 10 ára er skoðuð og mannfjöldaaukning tekin með í reikninginn sést að ofbeldisverkum í miðbænum hefur frekar . •« fækkað en fjölgað." ÆJ? I w ■ Ráðgjafinn segir forsendur sínum við Grímseyjarferju ekki fylgt ■ Skýrsla Ríkisendurskoðunar um ferjukaupin kynnt í dag Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net Einar Hermannsson, skipaverk- fræðingur og ráðgjafi stjórnvalda við kaup á nýrri Grímseyjarferju, áætlar í skýrslu sem hann skilaði í nóvember 2004 að endurbæturnar á skipinu sem keypt var myndu nema 55,4 milljónum króna. Heild- arkostnaðurinn ætti að vera um 150 milljónir króna. Talið er að kostnaðurinn við endurbæturnar sé kominn í 600 milljónir. Skýrsla Einars er í algerri mót- sögn við þá skýrslu sem Ólafur Briem, skipaverkfræðingur hjá Sigl- ingastofnun íslands, skilaði af sér ári síðar. Ólafur lýsti ástandi skips- ins þannig að það hefði „í einu orði sagt verið hrörlegt sökum vanhirðu og skorts á viðhaldi“. Einar Hermannsson segir allt aðrar forsendur hafa verið fyrir kostnaði við endurbæturnar í sinni skýrslu en þeim ákvörðunum sem síðar voru teknar. „Við töldum að ef skipið yrði gert upp í óbreyttri mynd og ef það yrði gert í austurevrópskri stöð, þar sem verðlag er allt annað en það sem við þekkjum, væri hægt að gera það upp fyrir þessa upphæð. En nú er búið að gjörbylta skipinu. Það er búið að byggja yfir það, rífa úr því og setja á það perustefni og guð má vita hvað.“ Hann segir langsótt að nota skýrslu sína sem grundvöll fyrir þeim kaupum og breytingum sem síðar hafa orðið á Oilean Arann. Brynjólfur Árnason, sveitarstjóri í Grímsey, segir það hafa verið hrika- lega sjón að sjá skipið í fyrsta sinn. „Enda kom það í ljós þegar skipið fór á flot að það míglekur allt og búið að setja trétappa í það til að það sökkvi hreinlega ekki í Hafnarfirði.“ SAGÐIFERJUNA HENTUGA »4 Karnivalstemning í Kringlunni „Mikið um dýrðir á tuttugu ára afmælinu." Tuttugu ár voru í gær síðan verslunarmiðstöðin Kringlan var formlega opnuð. Mikið var um dýrðir og fengu börnin andlitsmálningu og gátu skemmt sér yfir sýningu Barna- og unglingaleikhússins á öskubusku. Þá sáust Skoppa og Skrítla sem og trúðar. Aðrir nutu lúðrasveitartónlistar og enn aðrir þess sem þeir hafa gert síðustu tutt- ugu árin; að versla i Kringlunni. Afsali sér tigninni Leiðarahöfundur norska blaðs- ins Bergens Tidende hvatti í gær Mörtu Lovísu Noregsprins- essu til að afsala sér tigninni. „Segðu af þér prinsessutitl- inum og lifðu eftir eigin höfði,“ segir í leiðaranum sem er skrif- aður í kjölfar viðtals hennar við norska ríkissjónvarpið. Þar kvartaði Marta Lovísa yfir því að tignin skerði athafna- frelsi hennar. Prinsessan tilkynnti á dög- unum að hún væri skyggn og hygðist koma á fót skóla þar sem fólk lærir að tala við engla, við misjafna hrifningu Norð- manna. mge NEYTENDAVAKTIN Verð á Smjörva ’!BÍS*r Verslun Krónur Kaskó 139 Krónan 148 Þin verslun Seljabraut 160 Samkaup-Strax 163 Hagkaup 165 Kjarval 168 Verö á 300 g af Smiörva Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % Wm USD 65,77 -0,87 ▼ £13 GBP 132,39 -1,09 ▼ 5S DKK 12,04 -1,23 ▼ • JPY 0,55 -1,56 ▼ H EUR 89,63 -1,23 ▼ GENGISVlSITALA 121,40 -0,14 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 8.099 1,32 A | VEÐRIÐÍDAG VEÐUR»2 SOFADAGAR! Allir sófar á afslætti 'OÍ-Carco Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-15 500 Akureyri: Hofsbot ‘I, s 462 3504 tgilsstaðii: Miðvangui 1, s: 471 2954

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.