blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR MIDVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 blaðiö ísafjörður Margir vilja eignast Miðfell Þó nokkrar fyrirspurnir hafa borist Fasteignasölu Vestfjarða um eignir rækju- verksmiðjunnar Miðfells ehf. á ísafirði, sem lýst var gjaldþrota í byrjun júlí. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta, þar sem haft er eftir Tryggva Guðmundssyni hjá Fasteignasölu Vestfjarða að bæði hafi verið spurt um ein- stök tæki úr verksmiðjunni og möguleikann á að kaupa húsið með öllum tækjum. Tryggvi segir að reynt verði að selja eignir þrotabúsins í heilu lagi, en sölumál muni skýrast í þess- ari viku eða þeirri næstu. Þá mun Oddatá, sem er eign- arhaldsfélag í eigu fjölskyldu Kristjáns Erlingssonar, taka við rekstri landvinnslu Fisk- vinnslunnar Kambs ehf. á Flateyri i lok þessa mánaðar. Hinrik Kristánsson, fram- kvæmdastjóri Kambs, segir óvist hvað við taki hjá sér sjálfum; til að byrja með ætli hann að taka sér langþráð sum- arfrí. hos Húsnæðismarkaðurinn íbúðalána- sjóður hækkar f búðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að hækka útlánsvexti ibúða- lána sjóðsins um 0,05%. Útláns- vextir íbúðalána verða 4,85%, á lán með uppgreiðsluálagi, en 5,1% á lán án uppgreiðsluálags. Vaxtaákvörðunin byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúða- bréfa sem haldið var í gær, ásamt vegnum fjármagnskostn- aði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Guðjón Amar segir eldki liggja á að ráða í framkvæmdastjórastöðu Frjálslynda flokksins Mannaráðningar málefni flokksins Guðjón Arnar Kristjánsson, for- maður Frjálslynda flokksins, segir ekkert liggja á að ákveða hver fái stöðu framkvæmdastjóra flokksins. f viðtali við Blaðið í gær sagði Sig- urjón Þórðarson, fyrrverandi þing- maður flokksins, að sér hefði verið lofuð staðan þegar hann hætti við framboð í Kraganum og fór fram í Norðausturkjördæminu í staðinn. „Það virðist vera einhver bið á að lof- orðið verði efnt,“ sagði Sigurjón. „Þetta er ekkert vandamál. Þetta er ekkert sem hastar,“ segir Guðjón. Magnús Reynir Guðmundsson, bæjarfulltrúi í ísafjarðarbæ, tók við stöðu framkvæmdastjóra Frjáls- lynda flokksins þegar Margrét Sverr- isdóttir hætti og er hann jafnframt í hlutastarfi fyrir þingflokk flokksins. „Hans ráðningu hefur ekki verið breytt. Við höfum þetta bara eins og með hvert annað innanflokksmál sem fara þarf yfir í rólegheitum. Við erum ekki bundnir af fréttum né því sem einstakir menn segja og gera,“ leggur Guðjón áherslu á. Spurður hvort flokkurinn sé ekki bundinn af loforði sínu við Sigur- jón segir hann: „Innanhússmál í Frjálslynda flokknum um manna- ráðningar og annað eru málefni flokksins.“ ingibjorg@bladid.net Ekkert liggur á Guöjón Amar Kristjánsson, formaöur Frjálslynda flokksins, segir ekki liggja á að ráða nýjan framkvæmdastjóra. Reynslu- og menntunar- skortur í fasteignasölu ■ Til stendur að bæta úr skorti á ófaglærðum fasteignasölum á íslandi ■ íslendingar langt á eftir hinum Norðurlöndunum í þessum efnum Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net „Þrír fjórðuhlutar starfsfólks á íslenskum fasteignasölum hefur enga menntun á sviði fasteignavið- skipta og oft litla sem enga reynslu eða kunnáttu í þessum efnum, en ráðleggja fólki samt í stærstu við- •kiptum f lífi þess. Við hjá Félagi fasteignasala fáum því miður reglu- lega inn á borð hjá okkur mál þar sem slíkar ráðleggingar standast ekki neina skoðun," segir Grétar Jónasson héraðsdómslögmaður og framkvæmastjóri félagsins. Líkt og lögmannsaðstoð frá ritara Grétar segir fasteignaviðskipti sí- fellt verða flóknari. „Engu að síður hefur reynslan hér á landi verið sú, að reynslulaust fólk getur labbað inn á fasteignasölu og farið að verð- meta húsnæði, oft eftir örfáa daga. Söluþóknanir eru engu lægri þótt þannig hátti til, og fólk telur sig auð- vitað vera að tala við fagfólk. Þetta er auðvitað ekki viðunandi. Enginn myndi til dæmis sætta sig við að þurfa að leita sér lögmannsaðstoðar og borga fyrir það, en fá svo ráðgjöf frá ritara eða almennum starfs- manni á lögmannsstofu!" Átak á Norðurlöndum 1 Svíþjóð eru yfir 95 prósent þeirra sem starfa á fasteignasölum með réttindi sem slíkir, og í Noregi LÆRÐIR FASTEIGNASALAR ► í námi sínu læra fasteigna- salar lögfræöí, viðskipta- og hagfræði, og tæknifræði, t.d. um byggingarefni og raflagnir. ► í Sviþjóð eru 98% þeirra sem starfa á fasteignasöl- um lærðir fasteignasalar og í Noregi er um 71% starfs- manna á fasteignasölum lærðir fasteignasalar. ► Á íslandi eru 25 til 30% þe- irra sem starfa á fasteigna- sölum lærðir fasteignasalar. eru nýsamþykkt lög sem kveða á um að nánast éinvörðungu lög- giltir fasteigna- salar megi starfa á fasteignasölum. „Ákveðið var að taka þessi mál í gegn á hinum Qrétar Jónasson Norðurlönd- unum þar sem ráðleggingar stóðust oft engar gæðakröfur.“ Á Islandi stendur einnig til að taka þessi mál í gegn. Dómsmálaráðherra skipaði í sumar starfshóp til að endurskoða lög um fasteignasölur og er Grétar í þeim hópi. „Óljóst hefur verið hvaða störfum almennir sölumenn megi sinna hér á landi, en horft verður til Norðurlandanna við að skýra þessi mál.“ Aukið framboð og kröfur í námi Gerðar hafa verið endurbætur á námi fasteignasala á íslandi. „Hingað til hefur aðeins Endur- menntun Háskóla Islands útskrifað fasteignasala, en frá og með næsta hausti mun Háskólinn í Reykjavík einnig gera það. Gera má því ráð fyrir því að fjöldi löggildra fast- eignasala muni aukast töluvert, auk þess sem kröfur hafa verið hertar og námið lengt. Það er ljóst að hærra hlutfall löggildra fasteignasala mun skila sér í betri þjónustu til þeirra sem eiga í fasteignaviðskiptum.” ÞEKKIRÞÚTIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net VEÐRIÐ í DAG Léttskýjað vestantil Norðvestan og norðan 8-18 metrar á sek- úndu. Hvassast um austanvert landið og rigning og ennþá hvassara í vindhviðum við austurströndina. Léttskýjað að mestu vest- antil. Hiti 6 til 15 stig að deginum, hlýjast sunnanlands. ÁMORGUN Súld norðaustantil Norðlæg átt, 5-10 m/s, en 10-15 við norðausturströndina. Súld eða rigning norð- austantil á landinu, úrkomulítið norðvestan- til en annars staðar bjart veður með stöku skúrum. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast syðst. STUTT • Vegrifflur Rannsókn Vegagerð- arinnar á vegrifflum hófst í gær þegar hluti Grindavíkurvegar var fræstur, en til stendur að fræsa 70 kílómetra. Tilgangur- inn er meðal annars að fækka slysum en rifflurnar eiga að vekja athygli ökumanna á að þeir séu í þann mund að keyra út af vegi eða yfir á ranga akrein. • Urriðaholt vaktað Urriðaholt ehf. og Securitas hafa gert með sér samning um að Securitas vakti alls 1.650 íbúðir í Urriða- holti í Garðabæ. Verða allar íbúðir tengdar stjórnstöð Secu- ritas. Stefnt er að vöktun með eftirlitsbílum og myndavélum. Samningurinn gildir í 18 mán- uði en þá eiga íbúar hverfisins kost á að framlengja hann. Leiðrétt Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaöeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiöréttingar birtast að jafnaöi á síðu 2. VÍÐA UM HEIM Algarve 23 Hallfax 21 New York 22 Amsterdam 23 Hamborg 23 Nuuk 10 Ankara 33 Helsinki 24 Orlando 26 Barcelona 28 Kaupmannahöfn 20 Osló 17 Berlín 24 London 19 Palma 25 Chicago 27 Madrid 33 París 24 Dublin 16 Mílanó 27 Prag 30 Frankfurt 26 Montreal 16 Stokkhólmur 22 Glasgow 16 Munchen 30 Þórshöfn 11

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.