blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 6
6
FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007
blaðió
Heimsferðir bjóða síðustu sætin í ágústsólina austan hafs og vest-
an, á hreint ótrúlegu verði. Tryggðu þér sumarfrí á frábærum kjör-
um! Nánari á www.heimsferdir.is.
Bókaðu núna!
Rhodos - síðustu sætin
11. ágúst
18. ágúst
25. ágúst
UPPSELT
örfá sæti
örfá sæti
frá kr. 59.990
frá kr. 39.990
Fuerteventura - síðustu sætin
7. ágúst
14. ágúst
21. ágúst
UPPSELT
19 sæti
örfá sæti - 2 vikur
frákr. 39.990
frá kr. 34.990
Montreal - Kanada - síðustu sætin
9. ágúst
16. ágúst
23. ágúst
30. ágúst
UPPSELT
19 sæti
örfá sæti
örfá sæti
frá kr. 29.990
frá kr. 29.990
frá kr. 29.990
Mallorca - síðustu sætin
10. ágúst
17. ágúst
24. ágúst
UPPSELT
örfá sæti
nokkur sæti
frá kr. 49.990
frá kr. 29.990
Costa del Sol - síðustu sætin
8. ágúst
15. ágúst
22. ágúst
UPPSELT
örfá sæti
nokkur sæti
frá kr. 54.990
frá kr. 39.990
Króatía - síðustu sætin
12. ágúst
19. ágúst
26. ágúst
UPPSELT
örfá sæti
örfá sæti
frá kr. 39.990
frá kr. 39.990
Alicante - Benidorm - síðustu sætin
9. ágúst
16. ágúst
23. ágúst
30. ágúst
6 sæti
11 sæti
örfá sæti
nokkur sæti
frákr. 14.990
frá kr. 34.990
frákr. 34.990
frá kr. 39.990
Barcelona - síðustu sætin
3. ágúst
10. ágúst
17. ágúst
24. ágúst
UPPSELT
6 sæti
14 sæti - vikuferð
16 sæti - vikuferð
frákr. 19.990
frá kr. 49.990
frá kr. 49.090
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Heimsferðir
Skógarhlíð 18* sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Léleg þjónusta
ef rétt reynist
■ Sviðsstjóri á Barnaspítala Hringsins segir langa bið eftir tannvið-
gerð óviðunandi M Koma á upp svæfingaaðstöðu fyrir tannlækna
Horgull a svæhngalæknum
Ekki hefur verið hægt að gera
við tennur frískra barna sem þurfa
á svæfingu að halda, en þau eru að
mestu leyti á aldrinum 3 til 7 ára,
frá því i maílok. Þá hætti vegna
aldurs sá svæfingalæknir sem helst
starfaði á stofum með barnatann-
læknum og síðan hefur enginn
svæfingalæknir fengist til verksins.
Helgi Hansson barnatannlæknir
kvaðst í viðtali við Blaðið í gær telja
að 10 til 15 börn hefðu að jafnaði
fengið þessa þjónustu í hverri viku.
Svæfingalæknar eru of fáir og barn-
atannlæknum hefur skilist að þeir
fái hærri greiðslur frá Trygginga-
stofnun fyrir önnur verk. Vinnu-
aðstaðan hjá tannlæknum þykir
heldur ekki nógu góð.
Fá fullkomna aðstöðu
Jón Sæmundur Sigurjónsson, skrif-
stofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu,
segir ekki hægt að þvinga svæfinga-
lækna með sín tæki milli tannlækna-
stofa. „I samráði við svæfingalækna
erum við að vinna að því að koma
upp aðstöðu á Landakoti, í Domus
Medica eða á Landspítalanum þar
sem tannlæknar geta komið í full-
komnaaðstöðu. Þarverðursvæfinga-
læknir, svæfingahjúkrunarkona og
vöknunardeild og sjúklingar verða
í fullkomnu öryggi vegna svæfingar-
innar. Við stefnum að því að þetta
geti verið lausnin á vandanum.“
ÞEKKIRÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Veik börn sem þurfa á svæfingu
að halda vegna tannviðgerðar þurfa
að meðaltali að bíða í 1 til 3 mán-
uði eftir aðgerðartíma á Barnaspít-
ala Hringsins. Átta ára fjölfötluð
stúlka, Hanna Karen Ericson, sem
fékk holu í tönn í desemberbyrjun
í fyrra, þurfti að bíða enn lengur.
Hún var orðin það sárkvalin af verk
í mars að hún var hætt að borða en
fékk ekki tannviðgerð fyrr en í apr-
ílbyrjun. Barnatannlæknir í borg-
inni hliðraði til á stofunni hjá sér og
svæfingalæknir frestaði fríi sínu til
að hægt væri að lina kvalir barnsins
og gera við tönnina.
Það var ekki fyrr en um miðjan
maí sem barnið fékk boð um komu
á Barnaspítalann vegna tannviðgerð-
arinnar sem reyndar var lokið.
Sigurður Kristjánsson, sviðs-
stjóri á Barnaspítalanum, segir að
sé það rétt að barnið hafi þurft að
bíða svona lengi sé það óviðunandi
og þurfi frekari athugunar við. „Ef
þetta reynist rétt er þetta afar léleg
þjónusta," bætir Sigurður við. Á
Barnaspítalanum er ekki sérstök
tannlæknastofa en í bígerð er að
koma upp aðstöðu fyrir tannlækna
á Landspítalanum í Fossvogi, að því
er Sigurður greinir frá.
Tappinn á skurðstofunum
Barnatannlæknirinn sem sér um
tannviðgerðir barna á Barnaspítal-
anum, Sigurður Rúnar Sæmunds-
son, kemur þangað með sérstakt far-
Fiskistofa
kærir svindl
Fiskistofa hefur kært hafnarvigt-
armann og útgerðarfyrirtæki
á Austurlandi fyrir meint brot
á reglum um vigtun sjávarafla,
að því er greint er frá á vef
Fiskistofu.
Grunur leikur á að afli skips í
eigu útgerðarfyrirtækisins hafi
verið ranglega skráður á vigtar-
nótu af hafnarvigtarmanni sem
jafnframt er starfsmaður viðkom-
andi útgerðar.
ibs
TAXTI SVÆFINGALÆKNA
W Svæfingalæknar fá sama
^ einingaverð alls staðar.
Fjöldi eininga fer eftir því
hvert verkið er.
W Ákveðið var fyrir allmörgum
^ árum að svæfingalæknar
fengju næstum jafnmikið
fyrir verk sfn og aðgerðar-
læknar.
W. Svæfingalæknar svæfa
einnig hjá læknum sem ekki
eru á samningi hjá Trygg-
ingastofnun. Stofnunin sam-
þykkir ekki reikninga utan
samningssviðs.
andtæki til viðgerðanna. Hann segir
biðina eftir viðgerð með svæfingu
vera vegna takmarkaðs aðgangs að
skurðstofum spítalans. „Þar er tapp-
inn. Meðalbiðtíminn er 1 til 3 mán-
uðir,“ segir Sigurður og viðurkennir
að það sé langur biðtími fyrir barn
með tannpínu. „Ef um virkilega
neyð er að ræða er neyðarkerfið sett
í gang. En þá vilja menn hins vegar
ekki gera það eftir klukkan fjögur
þegar ég kemst frá stofunni minni.“
Sigurður sinnir tannviðgerðum
á Barnaspítalanum að jafnaði einu
sinni í mánuði og tekur þá á móti
2 til 3 sjúklingum. Ef vel ætti að
vera þyrfti að hafa skurðstofur á
Barnaspítalanum opnar vegna tann-
viðgerða töluvert oftar til að stytta
biðtímann sem mest, að hans mati.
Hann kveðst ekki kunna skýringu á
löngum biðtíma Hönnu litlu.
40 ný störf
á Snæfellsnesi
Iceland Glacier Products ehf.
mun reisa vatnsverksmiðju á
Rifi í Snæfellsbæ samkvæmt
samkomulagi félagsins við
Snæfellsbæ. Áætlanir félagsins
gera ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist í næsta mánuði og að
verksmiðjan muni taka til starfa
seinni hluta ársins 2008.
f verksmiðjunni munu starfa um
eða yfir 40 starfsmenn auk þess
sem töluverðar framkvæmdir
munu fylgja undirbúningi
hennar. bm
Vill áætlun um
innflytjendur
Félagsmálaráðherra hefur falið
innflytjendaráði að hefja vinnu
við gerð heildstæðrar fram-
kvæmdaáætlunar í málefnum
innflytjenda í samræmi við
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar. Markmið áætlunarinnar
er að betur verði tekið á móti
erlendu fólki sem flyst til lands-
ins, því auðveldað að verða virkir
þátttakendur í íslensku samfélagi
og rækta menningu sína.