blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 8
8
FRETTIR
MI0VIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007
blaðiö
22 létust
er brú hrundi
Tuttugu og tveir létust, jafn-
margir slösuðust og nokkurra
er saknað eftir að steinbrú í
miðhluta Kína gaf sig í gær.
Brúin var í viðgerð og átti að
opna hana síðar í mánuðinum,
samkvæmt fréttamiðlinum BBC.
Kínversk stjórnvöld telja að gera
þurfi við fleiri en sex þúsund
brýr í landinu og hafa sett sér það
markmið að klára verkið fyrir
árið 2010. gag
Hundruð deyja
Hundruð hafa látist eða er
saknað í Norður-Kóreu eftir flóð
vegna úrhellisrigningar. 30 þús-
und heimili ríflega 63 þúsunda
fjölskyldna hafa eyðilagst.
Ungbarn myrt
Hnífstunga dró ungbarn til
dauða í austurhluta London í gær.
Móðir barnsins er í lífshættu með
stungusár. Talið er að móðirin
hafi myrt barnið.
iak'Einkaþjálfari
Framurskarandi
nám með vinnu
Skráðu þig fyrir 20. ágúst
meira nám-meiri metnaður
www.akodemian.is
Sjö milljónir leik-
fanga innkallaðar
H Leikfangaframleiðandinn innkallar í annað sinn M Polly Pocket,
Batman og Doggie Daycare meðal þeirra varasömu
Eftir Björgu Magnúsdóttur
bjorg@bladid.net
Leikfangaframleiðandinn Mattel
Inc. hefur í annað sinn á tveimur
vikum kallað inn leikföng sem fram-
leidd eru í Kina. Leikföngin, sem
eru alls 7,3 milljónir talsins, eru
talin geta valdið blýmengun eða
innihalda lítinn segul sem börn
geta auðveldlega gleypt.
Meðal leikfanganna sem inn-
kölluð voru eru Polly Pocket, Bat-
man Magna, Doggie Daycare,
Shonen Jump’s One Piece leikfanga-
sett og 253.000 blýmengaðir bílar.
I byrjun mánaðarins innkallaði
Mattel tæplega milljón leikföng
undir merkjum Fisher-Price, meðal
annars brúður úr Prúðuleikur-
unum. Samkvæmt framleiðand-
anum hefur enginn skaðast á þeim
leikföngum sem nú eru innkölluð
en fjöldi barna slasaðist vegna Polly
Pocket leikfanga sem fyrirtækið
neyddist til að innkalla í nóvember
síðastliðnum.
I fyrra var eftirlitsnefnd um vöru-
öryggi tilkynnt um 3,8 milljónir
leikfanga sem innihéldu segla og
þurfti þess vegna að innkalla. 34
börn slösuðust vegna þeirra, fjögur
þeirra alvarlega og einn fjögurra
ára drengur lét lifið eftir að seg-
ullinn stíflaði ristil hans. I kjöl-
farið voru auknar kröfur settar á
leikfangaframleiðendur.
MATTEL INC.
► Framleiðir meðal annars
leikföngin Matchbox, Amer-
ican Girl, Racida og Barbie.
►
80% gróði fyrirtækisins er
vegna sölu hinna sívinsælu
Barbie-dúkka.
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
í ágústmánuði hefur fyrirtæk-
► ið þurft að kalla inn tæplega
2 milljónir leikfanga sinna.
Loksins, loksins háskerpusjónvarp
Sjónvarp Simans - kíktu i næstu verslun
is og sjáóu muninn
(•»
Það er Síminn"
NORÐUR
REYKJAVÍK:
Kringlan
Bankastræti 5
Faxafen 12
KOPAVOGUR:
Smáralind
GARÐABÆR:
Miöliraun 11
AKUREYRI:
Glerárgata 32
www.66north.is
Sex ára undrabam í Indlandi
Pyntaður af
þjálfara sínum
Miklar deilur hafa sprottið upp
í Indlandi vegna sex ára drengs
sem gengur undir nafninu Mara-
þondrengurinn. Budhia Singh varð
stjarna á einni nóttu eftir að hann
híjóp 65 kílómetra á rétt rúmum sjö
tímum, þá aðeins fimm ára gamall.
Nú hefur þjálfari hans verið hand-
tekinn, grunaður um pyntingar á
drengnum.
Það var móðir drengsins sem leit-
aði til lögreglunnar vegna áverka
sem voru á líkama piltsins. Budhia
segir að þjálfarinn, Biranchi Das,
hafi refsað sér með því að loka sig
inni í herbergi í tvo daga án matar.
Kona lést úr
saurgerlum
66 ára gömul kona lést úr kólí-
bakteríusýkingu í Bretlandi á
mánudag. 72 ára eiginmaður
hennar er þungt haldinn. Fimm
aðrir smituðust og er talið að þeir
hafi smitast af köldu kjöti sem
selt var í tveimur Morrisons-versl-
unum. Verslunarkeðjan hefur
fjarlægt kjötið úr kjötborði sínu,
samkvæmt fréttavef BBC.
Þá á hann að hafa brennimerkt
drenginn með glóandi járnstöng og
bundið hann við viftu og hellt yfir
hann heitu vatni.
Sjálfur neitar Das öllum ásök-
unum. „Þið getið spurt fólkið í fá-
tækrahverfinu sem hann bjó í. Þegar
Budhia kom til mín var líkami hans
þakinn örum og sárum. Ég ól hann
upp eins og son minn,“ segir Das.
Budhia fæddist i fátækrahverfum
í borginni Orissa. Faðir hans var
betlari og móðir hans vann við að
þvo upp leirtau. Das tók drenginn
að sér eftir að faðir hans lést.
magnus@bladid.net
Enn týndir
í námunni
Þrátt fyrir að ekkert hafi heyrst í
sex námuverkamönnum sem sitja
fastir í námu í Utah í Bandaríkj-
unum telur forstjóri námafyrir-
tækisins þá hugsanlega enn á lífi.
Náman hafi ekki fallið saman og
súrefnið ætti að vera nægilcgt.
Þriðja holan verður nú boruð til
að reyna að ná mönnunum upp
úr námunni.