blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 10
10
FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGIIST 2007
blaöió
Sérsveitin á æfingu
Öryggismálin
á okkar ábyrgð
Sérsveit ríkislögreglustjóra
mun ásamt norskum, dönsk-
um og lettneskum sérsveitum
taka þátt í æfingu gegn
hermdar- og hryðjuverkum.
Sett verður á svið gíslataka þar
sem sérsveitirnar munu gera
áhlaup. Alls taka 57 manns
þátt í æfingunni.
Jón Bjartmarz yfirlögreglu-
þjónn segir æfingu sem þessa
nauðsynlega fyrir sérsveitina.
„Á svona æfingum er verið
að skiptast á upplýsingum,
reynslu, þekkingu, aðferða-
fræði og upplýsingum um
búnað. Þetta eru raunhæf
dæmi sem geta eða hafa komið
upp út í heimi,“ segir Jón.
Jón segir sveitina vel í stakk
búna til að takast á við verk-
efni af þessu tagi. „Það er
ljóst að við íslendingar, sem
sjálfstæð þjóð, berum ábyrgð
á okkar eigin öryggismálum.
Þetta eru löggæsluverkefni
innan ríkisins og að takast á
við svona með 52 manna sveit
er þokkalegt."
magnus@bladid.net
Henna hárvörurnar eru
unnar úr náttúrulegum
jurtum sem vinna með
hárinu þegar þaö er litað.
Háriö glansar af heilbrigöi
Long Lasting Colour
Fastur háralitur hylur
100% grá hár.
18 fallegir litir og strípulitur
Colour Powder
100% náttúrulegur litur
sem endist í 2-3 mánuöi.
7 fallegir litir
Sjampó og næring sem
viðheldur og frískar
háralitinn hvort sem hann
er náttúruiegur eða litaður.
Án sodium laurenth
og lauryl sulfat.
Útsölustaóir:
Lyfja, Heilsuhúsiö,
Ápótekiö,
Heilsuhornið Akureyri
Fræiö Fjarðarkaupum,
Lyfjaval, Maður lifandi,
Apótek Vesturlands
Akranesi,
og Nóatún Hafnarfirði
og Selfossi.
Hemaðarandstæðingar mótmæla heræfingum hér á landi
Fullorðið fólk í hermennsku
Samtök hernaðarandstæðinga
(SHA) söfnuðust saman i gær fyrir
utan norska sendiráðið til að mót-
mæla varnaræfingunni sem nú
stendur yfir. Þaðan gengu mótmæl-
endurnir í átt að sendiráðum Banda-
ríkjanna og Danmerkur þaðan sem
þeir héldu í átt að stjórnarráðinu.
Stefán Pálsson hjá SHA segir að
með þessu vilji samtökin koma þeim
skilaboðum til fulltrúa ríkjanna, að
ekki séu allir íslendingar sem taki
komu erlendra herja fagnandi. „Með
þessum heræfingum er fullorðið fólk
að æfa vopnaburð og hermennsku
sem hefur þann endanlega tilgang
að heyja vopnað stríð og drepa fólk,“
segir Stefán.
Aðspurður hvort ekki sé eðlilegt
að íslensk stjórnvöld taki þátt í að
styrkja varnir landsins með æfingum
sem þessum, segist Stefán gera lítinn
greinarmun á hernaði og vörnum.
,Óll hernaðarbandalög kjósa að kalla
sig varnarbandalög, en það breytir
því ekki að þessi lönd standa í stríðs-
rekstri út um allar trissur,“ segir
Stefán. „Við höfum bent á að ef til-
gangurinn sé í raun að efla varnir
og löggæslu í landinu, þá eigum við
að nota þessa peninga í að efla þær
stofnanir sem við höfum og þjálfa
upp íslenska sérfræðinga í þessu.
Ekki að vera borga undir einhverja er-
lenda dáta sem verða með höppum og
glöppum lausir ef eitthvað bregður út
af hér á landi.“
magnus@bladid.net
Mótmælt við norska sendiráðið
Hernaðarandstæðingar mótmæltu
heræfingu fullorðinna.
Æfa vamir gegn
óþekktum ógnum
■ Hátt í fjögur hundruð manns koma að varnaræfingunni Norðurvíkingur 2007
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
Varnaræfingin Norðurvíkingur
2007 hófst 1 gærmorgun. Þetta er
fyrsta varnaræfingin sem fram fer
á Islandi á grundvelli samkomulags
íslenskra og bandarískra stjórnvalda
um varnir landsins, sem undirritað
var þann n. október í fyrra. Mark-
mið æfingarinnar er að æfa flutning
liðsafla til landsins á hættu- og ófrið-
artímum, staðsetningu, varnarvið-
búnað, ákvarðanatöku og samræm-
ingu við íslensk stjórnvöld.
Þotur frá bandaríska og norska
flughernum æfðu í gær varnarvið-
búnað gegn óþekktri flugvél á leið
inn í íslenska lögsögu og á morgun fer
fram æfing gegn hermdar- og hryðju-
verkum. Ihenni taka þátt norskir,
danskir og lettneskir sérsveitarmenn,
auk sérsveitar rikislögreglustjóra. Sú
æfing fer fram á Keflavíkurflugvelli
og í Hvalfirði.
Fleiri æfingar hugsanlegar
Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi
Norðurvíkings 2007, segir æfinguna
vera umfangsmikla, þótt hún standi
ekki yfir nema í tvo daga. „Þetta
skilar þvi sem íslensk stjórnvöld
stefna að, að íslendingar séu í stakk
búnir að taka á móti herliði sem á
þarf að halda og að það geti stundað
þær æfingar sem nauðsynlegar eru til
að koma Islandi til hjálpar ef á þarf að
halda."
Friðþór segir að það sé liður í sam-
komulaginu við Bandaríkin að þessi
æfing verði haldin einu sinni á ári.
Möguleiki er á að hingað komi reglu-
lega flugvélar til loftvarnaæfinga, en
á þessari stundu liggur ekki fyrir
hvort af því verði.
Æfingar sem þessar hafa verið gagn-
Háskerpusjónvarp
- í fyrsta sinn á íslandi
Sjónvarp Símans - kíktu í næstu
verslun Símans og sjáðu muninn
Það er Síminiv'
Ógnarkraftur F-15 orrustuflugvél banda-
ríska flughersins býr sig undir að taka á loft.
Hún notuð er til æfinga á varnaræfingunni
Norðurvíkingur 2007.
Blafiið/Þorgils
rýndar af hópi fólks, meðal annars
Samtökum hernaðarandstæðinga.
Friðþór telur góðra gjalda vert að
fók hafi skoðanir á æfingu sem þess-
ari. „En ég bendi á það að til þess eru
öryggis- og landvarnir, að vernda
þennan rétt manna til að hafa skoð-
anir og að setja þær fram.“
Bandaríkjamenn ánægðir
Forsvarsmenn bandarlska flughers-
ins eru ánægðir með hvernig tekist
hefur til með undirbúninginn fyrir
varnaræfinguna. Greg Sarakasannis,
undirofursti, hrósaði Islenskum
stjórnvöldum sérstaklega fyrir allan
aðbúnað í kringum æfinguna og segir
aðþóttsá hluti sé lítt sjáanlegur, skipti
hann sköpum fyrir framkvæmdina.
Hann segir æfinguna vera smáa i
sniðum og endurspegla ekki þann
herstyrk sem liggi að baki.
Steven Mwesiga er liðþjálfi I banda-
ríska flughernum og hefur þriggja
ára reynslu í að fljúa orrustuþotum
á borð við F-15, sem hann flýgur á
æfingunni í dag. „Það reynir mjög á
að fljúga þotu sem þessari og er krefj-
andi í hvert sinn sem tekið er á loft. En
það er samt sem áður mjög gaman að
fljúga þessum vélum, ekki síst ef haft
er I huga að það er gert til að hjálpa
öðrum. Þetta er í fyrsta sinn sem ég
flýg hérna á íslandi en ég hef flogið
í svipuðum aðstæðum. En þetta er
nokkuð öðruvísi samt sem áður.“
NORÐURVÍKINGUR 2007
Æfingin skiptist í tvo að-
skilda þætti; loftvarnaræf-
ingu og æfingu gegn hermd-
ar- og hryðjuverkum.
Heildarfjöldi þátttakenda
er á fjórða hundrað. Notast
er við 13 flugvélar, þyrlur og
eitt eftirlitsskip.
Fimm orrustuflugvélar eru
notaðar á æfingunni; þrjár
F-15 flugvélar frá banda-
ríska flughernum og tvær
F-16 flugvélar frá norska
flughernum.