blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 13
blaóió
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007
FRÉTTIR
13
Kristján Möller samgöngnráðherra segir skýrslu Ríkisendurskoðunar reiðarslag
Vill ekki draga Sturlu til ábyrgðar
Kristján L. Möller samgönguráð-
herra segir skýrslu Ríkisendurskoð-
unar vera reiðarslag. Niðurstaða
hennar sé verri en hann óraði fyrir.
„Ég gagnrýndi þetta hér áður fyrr
en þetta er miklu, miklu verra en
ég gerði mér grein fyrir þá. Þess
vegna verða aðrir að svara fyrir það.“
Hann segir Vegagerðina alls ekki
standa þurrum fótum í málinu og
gagnrýnir auk þess harðlega þátt
Einars Hermannssonar, skipaverk-
fræðings og aðalráðgjafa Vegagerð-
arinnar, varðandi kaupin á skipinu.
Skipti um ráðgjafa
„Ég hef ákveðið að gefa Vegagerð-
inni fyrirmæli um það, með tilliti
til þessarar svörtu skýrslu, að hún
skuli skipta um ráðgjafa hvað þetta
varðar og leita þá meðal annars til
Siglingastofnunar. Ég les það út úr
þessu að ráðgjöfin hafi verið slæm.
Þess vegna tel ég að við þurfum
nýja ráðgjafa hvað það varðar og
það verður ekki skipt við þann
ráðgjafa sem hefur verið í þessu
máli frá byrjun. Hann heitir Einar
Hermannsson."
Kristján vildi þó ekki draga
Sturlu Böðvarsson, forvera sinn í
starfi og sitjandi forseta Alþingis,
til ábyrgðar í málinu. „Hann þiggur
þau ráð sem ég er að gagnrýna hér
sem hafa ekki verið hollráð og ekki
góð ráð. Það er með okkur ráðherr-
ana að við höfum kannski ekki vit
á öllum hlutum og þiggjum því ráð.
Við verðum að geta treystþví að þau
séu góð ráð.“
Skipaður verður verkefnahópur
til að fara yfir málið í heild sinni.
Meðal verkefna þess hóps verður að
fara nánar yfir kaupin á Oilean Ar-
ann, hinni nýju Grímseyjarferju.
Reynir að leysa málið
Kristján telur þó ólíklegt að hætt
verði við verkefnið úr því sem komið
er þrátt fyrir gífurlega kostnaðar-
aukningu og mýmargar aðfinnslur
Ríkisendurskoðunar. „Það er erfitt
því líkt og kemur fram í skýrslunni
er búið að eyða miklum peningum
í þetta. En verkefnastjórnin mun
auðvitað fara yfir það allt saman.
Vonandi verður hægt að klára þetta
þannig að þetta verði fullnægjandi.
Það er best fyrir alla. Mitt verk-
efni í þessu máli, eftir að ég varð
samgönguráðherra, er að reyna að
leysa þetta mál, koma þessu í gang
og reyna að klára það með hags-
muni þeirra sem eiga að nota þetta
í huga.“
Ekki náðist í Sturlu Böðvarsson,
fyrrverandi samgönguráðherra,
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
/
Brynjólfur Amason
sveitarstjóri
Við erum
hunsaðir
„Skýrslan er að mörgu leyti
góð en ég vil gagnrýna að
Ríkisendurskoðun hafi aldrei
leitað álits okkar eða óskað
eftir gögnum frá okkur um
málið. Það
lýsir mál-
inu eins og
það hefur
verið frá
upphafi.
Við erum
algjörlega
hunsaðir,“
segir Brynj-
ólfur Árna-
son, sveitarstjóri í Grímsey.
„Auðvitað hlýtur Vegagerðin
að bera ábyrgð á ákvörðun-
artökunni og svo veit maður
aldrei með þessa rágjafa. Það
eru búnar að koma út alls-
konar skýrslur. Það hlýtur að
vera mat Vegagerðarinnar á
hvaða ráðgjafa á að treysta."
Hann segir að allar þær stóru
breytingar á skipinu sem
Grímseyingar lögðu til hafi
legið fyrir áður en það var
keypt. Þær hafi verið forsenda
þess að heimamenn sam-
þykktu kaupin. „I tölvupósti
til okkar frá ráðuneytinu á
sínum tíma stendur orðrétt
að „vil ég í því sambandi
ítreka við ykkur að við höfum
nokkurt svigrúm til að leggja
út í kostnað við að gera skipið
sem best úr garði“. Þetta er úr
tölvupósti þar sem samgöngu-
ráðuneytið samþykkir breyt-
ingarnar á stefninu og allar
hinar stóru breytingarnar
sem við vildum. Þær voru
allar ákveðnar áður en skipið
var keypt.“
Brynjólfur segist ætla að óska
eftir sundurliðun á þeim við-
bótarkostnaði, 32 milljónum
króna, sem rakinn er til
aukinna krafna Grímseyinga
í skýrslu Ríkisendurskoðunar.
„Þær óskir snúa að öryggis-
búnaði skipsins og aðbúnaði
farþega. Ég vil ekki kalla það
kröfur Grímseyinga, heldur
er þetta einfaldlega eitthvað
sem á að vera sjálfsagt mál
og þeir hefðu átt að gera ráð
fyrir í upphafi.11
Baldur
Hlý og vlndheld flíspeysa
6.600 kr.
Bifröst
Ullarjakki
7.000 kr,
Rán
Létt, fóðruð, vatns-
fráhrindandl og hlý útlföt
úipa 6.800 kr.
buxur 4.700 kr.
Frigg
Létt og góó
flísundirföt
peysa 4.900 kf.
buxur 4.400 kr,
Óðinn
Hlýjar og vindheldar
flisbuxur
4.400 kr.
F/igg
Létt og
þæglleg flíspeysa
5.700 kr.
Oðinn
Síglld flíspeysa
4.900 kr.
Valhöll
Kláðafrí og mjúk ullarné
peysa 4.300 kr.
buxur 3.900 kr. I
Oðinn
vettllngar 1.500 kr.
húfa 1.700 kr.
lambhúshetta 1.700 kr,
Asgarður
Skinnfóðruð ullarhúfa
3.700 kr.
REYKJAVIK:
Kringlan
Bankastræti 5
Faxafen 12
KOPAVOGUR:
Smáralind
GARÐABÆR:
Miöhraun 11
AKUREYRI:
Glerárgata 32
Mikið úrval af fatnaði og smávörum fyrir hressa og káta krakka á leið í skólann og inn í veturinn. Margir litir.
www.66north.is