blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 14

blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 blaðið blaðii Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Hver á klúðrið? Kaupin á nýrri ferju til að þjóna Grímseyingum og endurbætur á henni eru hið mesta klúður, eins og fram hefur komið í fréttum Blaðsins undanfarna daga. Ríkisendurskoðun kvað í gær upp mikinn áfellisdóm yfir nánast öllu ferlinu. Niðurstaðan er alveg skelfileg meðferð á peningum skattgreiðenda. Viðbrögð Kristjáns Möller samgönguráðherra eru rétt og nauðsynleg, en snúa eingöngu að Vegagerðinni. Af hverju á bara að fara ofan í saumana á starfsháttum þeirrar stofnunar? Ýmsir aðrir eru gagnrýndir harðlega í skýrslu Ríkisendurskoðunar, þar á meðal ráðuneytið sem Kristján Möller stýrir. Það var þáverandi samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, sem skipaði starfshóp til að fjalla um samgöngur til Grímseyjar. Starfshópurinn lagði til að smíðuð yrði ný ferja, frekar en að kaupa notaða. Hann lagði líka til að skip- aður yrði starfshópur með fulltrúa heimamanna, sem Ríkisendurskoðun telur að hefði stuðlað að betri undirbúningi málsins. Hver ákvað að fara ekki að ráðum starfshópsins? I minnisblaði Vegagerðarinnar frá 5. apríl 2005 var gert ráð fyrir að kostn- aður vegna endurbóta á ferjunni yrði 60 milljónir króna. Sama dag bárust óformleg tilboð i endurbætur frá erlendum skipasmíðastöðvum, sem voru mun hærri. Samgönguráðuneytið vissi af þessum upplýsingum. Af hverju var ekki sagt frá þeim á ríkisstjórnarfundi, þar sem minnisblaðið var kynnt viku síðar? Það var samgönguráðuneytið, sem fór fram á að sérfræðingur á vegum Siglingastofnunar skoðaði ferjuna áður en hún var keypt. Frá skýrslu hans sagði Blaðið á laugardag. Sérfræðingurinn fékk skamman tíma til verksins og lagði til að raunverulegt ástand skipsins yrði kannað mun betur áður en gengið yrði frá kaupum. Af hverju var þessum tilmælum ekki fylgt? Sturla Böðvarsson, þáverandi samgönguráðherra, sagði í viðtali við Morg- unblaðið 2. maí síðastliðinn að fullyrðingar Kristjáns Möller, sem þá var í stjórnarandstöðu, um að skipið myndi á endanum kosta 500 milljónir, væru ,út í loftið og algerlega ábyrgðarlausar“. Nú segir Ríkisendurskoðun að kostn- aðurinn verði að minnsta kosti 500 milljónir. Fjármálaráðuneytið fær líka sinn skammt hjá Ríkisendurskoðun. Eftir þrýsting frá hagsmunaaðilum í skipasmíðaiðnaði féllst ráðuneytið á að draga úr kröfum í útboðslýsingu vegna Grímseyjarferjunnar, hvað varðaði m.a. verktryggingu og gæðavottun á viðgerðaraðstöðu. Miðað við lýsingar Ríkisendurskoðunar á hörmulegum vinnubrögðum íslenzku skipasmíða- stöðvarinnar, sem hreppti verkið, virðist ekki hafa verið nein vanþörf á slíkum kröfum. Fjármálaráðuneytið féllst líka á það með samgönguráðuneytinu og Vega- gerðinni að leyfa að ferjan yrði fjármögnuð af ónýttum fjárlagaheimildum Vegagerðarinnar. Þetta gagnrýnir Ríkisendurskoðun harðlega og segir ekki standast ákvæði fjárreiðulaga. Það er deginum ljósara að fleiri verða að endurskoða vinnubrögð sín en Vegagerðin. Ólafur Þ. Stephensen U j>LKIU LEIÐftRANN A WWW.MBL.IS/PODCAST Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Haustvörurnar komnar! Full búð af flottum vörum fyrir verðandi mæður og börn Opíð a virkum dögum 11-18 Laugardögum 11-16 (0 517 8500 Holtasmán 1 www.tvolif.is MætUijLÍ Fft> í REYkJáViK /Vrr-9 flUGuvi FC/SHJHLÚIWJBUPHB Vilji er allt sem þarf Yfir 200 manns bíða eftir hjarta- þræðingu hjá hjartadeild Landspít- ala-háskólasjúkrahúss. Biðlistar eftir öðrum bráðaaðgerðum eru langir. Biðlistar eftir meðferð á barna- og unglingageðdeildinni hafa aldrei verið lengri. Mörgum er minnisstæð umræðan um vanda aldraðra frá því fyrir kosningar og bið margra aldraðra eftir að komast í viðunandi húsnæði. Nauð þeirra er ekki minni í dag. Bent hefur verið á að mikill kostnaður fylgi því að auka þjónust- ustigið það mikið að hvergi verði biðlistar. Miða verður aðgerðir við það sem hagkvæmt er. Samt sem áður má það aldrei gleymast að um vanda einstaklinga, lifandi fólks er að ræða. Fólks sem margt er sárkvalið meðan það bíður eftir bráðaaðgerð og óvinnufært. Ein- staklingar sem gætu skilað góðu dagsverki og unnið fyrir góðum tekjum eiga þess ekki kost vegna biðar eftir bráðaaðgerð. Valkostir biðlistanna, svo nokkur atriði séu nefnd, eru vanlíðan, einmanaleiki, skert hæfi til að afla tekna auk ým- issa félagslegra vandamála sem verða til vegna þess að fólk fær ekki leyst úr sínum málum með viðun- andi hætti innan eðlilegs tíma. Þessi biðtími leiðinda, erfiðleika og vonleysis kemur í stað ánægjulegra stunda sem fólk gæti átt þyrfti það ekki að bíða mánuðum saman eftir bráðaaðgerðum. Öryrkjar, aldraðir og aðrir tekju- lágir einstaklingar í þjóðfélaginu þurfa að sæta því að skattleysis- mörk hafa ekki verið hækkuð í sam- ræmi við launa- og verðlagsþróun. Kjör þessara þjóðfélagshópa hafa KLIPPT 0G SKORIÐ Grímseyj- arferjan hin nýja er mjög á milli tanna á fólki og það makalausa klúður sem ein- kennir málið allt. Vélsmiðja Orms og Víglundar hefur fengið sinn skammt af gagnrýni en smiðjan sú tók að sér viðgerðir og endurbætur á ferjunni írsku sem svo reyndist í hroðalegu ástandi. Gott orð hefur farið af Vélsmiðju Orms og Víglundar í bransanum en klipp- ari óttast að nú hyggist eigendur smiðjunnar söðla um, fullsaddir af ferjuverkum fyrir ríkið. 1 það minnsta festu forráðamenn Vél- því versnað hlutfallslega. Til við- bótar koma reglur um skerðingu á bótum, sérstaklega öryrkja. Atriði sem öll valda því að fólk sér iðulega ekki tilgang í því að vinna. Fólk sem gæti átt hamingjuríkari daga og búið við aukna velsæld og lífs- fyllingu á þess ekki kost vegna þess að ríkisvaldið forgangsraðar fyrir aðra en sína minnstu bræður. Þær staðreyndir sem hér hafa verið raktar eru sá þjóðfélagsveru- leiki sem við búum við í dag. í fá- tæku þjóðfélagi þar sem ríkisvaldið Jón Magnússon hefði ekki mátt og fjármuni til að- gerða væri ekki hægt að gera sömu kröfur og í þjóðfélagi velsældar- innar, þjóðfélagi auðlegðarinnar og ríkidæmis sumra. í þjóðfélagi þar sem ríkisvaldið sóar fjármunum og ákveður að verja milljörðum í verkefni sem hafa litla eða enga þjóðhagslega þýðingu og þar sem næg efni eru fyrir hendi er hins vegar hægt að gera kröfur. Síðustu daga hefur verið frá því greint að utanríkisráðherra fari um lönd og álfur til að vinna fylgi við kosningu fulltrúa Islands í skamman tíma í Öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna. Samt sem áður smiðju Orms og Víglundar sér lén fyrir sléttri viku og það gæti gefið til kynna að tækjum yrði skutlað út og annarri starfsemi komið fyrir í húskynnum vélsmiðjunnar. Eða hvaða starfsemi hyggst sá sem skráir lénið www.brugghusid.is stunda? ]r ón Sigurðsson, fyrrverandi I formaður ramsóknarflokks- ins og verðandi starfsmaður Há- skólans í Reykja- vík, telur klippara hafa vegið að sér í Blaðinu í gær. Hann gerir athugasemdir við skrif klippara hefur enginn skýrt hvað það varði hagsmuni þjóðarinnar að eiga setu þar í nokkur ár. Samt sem áður er varið milljörðum í þetta gæluverk- efni. Forsætisráðherra segir það ekki tiltökumál þó við eyðum millj- arði í viðhald ratsjárkerfis án þess að fyrir liggi að það þjóni nokkrum vitrænum tilgangi. Henda á pen- ingum til að efla öryggi Islands þó hættan hafi ekki verið skilgreind. Svona geta æðstu ráðamenn þjóð- arinnar leikið sér með fjármuni hennar án takmarks eða tilgangs. Þennan gleðileik geta utanríkis- og forsætisráðherra stundað vegna þess að fjárhirslur ríkisins eru fullar vegna aðgerða íslenskra athafnamanna. Ríkissjóður var rekinn með 82 milljarða afgangi í fyrra, m.a. vegna þess að skatt- tekjur af sölu á vörum og þjónustu jukust um 21 milljarð. Ríkissjóð vantar ekki fé. Þó sú staðreynd blasi við þá ber að fara vel með ríkisins fé. Meginviðfangsefni stjórnmálanna er að forgangsraða þeim verkefnum sem þarf að sinna og verja fjármununum til þeirra. Við í Frjálslynda flokknum viljum forgangsraða fyrir fólkið í landinu. Við viljum að biðlistum eftir bráða- aðgerðum verði eytt. Við viljum að skattleysismörk verði hækkuð og takmarka skerðingar bóta. Velferð- arhallann verður að rétta af. Vilji er allt sem þarf. Valkost- urinn er eyðslu- og biðlistastefna ríkisstjórnarinnar eða stefna Frjálslynda flokksins sem er for- gangsröðun fyrir fólkið í landinu. Höfundur er alþingismaður og er sjálfsagt að birta þær hér. „Blaðið sendir mér tóninn nú í dag gær] og veit ég engin tildrög til iess. Ég hafði sagt blaðamanni visir.is] að ég hefði ekki umboð Háskólans í Reykjavík til að tjá mig opinberlega um ráðningarmál, og vísaði ég á deildarforseta og rektor. I annan stað er rangt sagt frá viðtali sem Helgi Seljan átti við mig. Hann spurði mig flókinnar spurningar um Evrópusambandið og krafðist jákvæðis eða neitunar. Þá sagðist ég kannski vera á hærra þekkingarstigi en svo að slíkt svar gæti komið til greina því að skýr- ingar yrðu að fylgja með,“ segir í skíifum Jóns til Blaðsins. the@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.