blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 15

blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 15
blaðió MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 15 BRÉF TIL BLAÐSINS Eyþór skrifar: Fólk hefur vælt í allt sumar um að ofbeldi sé að aukast í miðbæ Reykjavíkur og að nú sé varla hægt að fara niður í bæ um helgi án þess að vera barinn í klessu. Mér finnst þetta furðulegur málflutningur - sérstaklega í ljósi þess að tölurnar sýna að ofbeldi hefur bara ekkert aukist. Ástandið hefur alltaf verið svona og mun verða svona þangað til löggan fattar að það þýðir ekki að setja upp öryggismyndvélar ef engar löggur eru niðri í bæ. Löggan er allt of góðu vön, sitjandi inni í miðstöðvarhituðum bílunum. Eina sem löggan gerir í dag er að fela sig á bak við skilti með radarinn í gangi til að ná einum og einum öku- níðingi. Löggan þarf að vera sýnileg - ekki í felum. Sem íbúi miðbæjar- ins krefst ég þess að lögreglan verði sýnilegri og það strax! BRÉF TIL BLAÐSINS Þórður skrifaði: 1 allri umræðunni um opnun- artíma skemmtistaða og meinta fjölgun ofbeldisbrota í miðborg Reykjavíkur held ég að okkur væri hollast að staldra við áður en við förum að grípa til róttækra aðgerða. Eins og fram kom í Blaðinu í dag [gær] hefur ofbeldisbrotum ekki fjölgað heldur þvert á móti fækkað. Það virðist hreinlega fara eftir duttl- ungum fjölmiðla hversu mikið þeir fjalla um ofbeldi, í miðbænum sem annars staðar. Ofbeldi er alltaf af hinu slæma og ljóst er að stemma þarf stigu við því. En við eigum ekki að fara að færa skemmtistaði eða setja þeim nýjar reglur varðandi opnunartíma út frá umfjöllun fjölmiðla einni. Lítum frekar á staðreyndir málsins. iki.m 1 w .Húi-ipJgYm. líSís. ^r' ~ BRÉF TIL BLAÐSINS Sigrún hringdi: Ég skil ekkert í Reykjavíkurborg að bjóða upp á þessi frístundakort sem ætlunin er að börn og ung- lingar fái. Það hefur sýnt sig marg- sinnis að ef bæjarfélög greiða niður tómstundaiðkun barna þá hækka félögin gjaldskrár sínar. Fyrir kosningar lofuðu allir öllu fögru, flokkarnir lofuðu að það yrði fylgst með þessu og félögin að vitanlega yrðu gjaldskrár ekki hækkaðar. Ég spái því að við þurfum ekki að bíða lengi þar til við sjáum verulega hækkun á gjaldskrám. Vitanlega mun opinbera skýringin ekki vera sú að hækkunin sé vegna kortanna heldur vegna þess að félagið hafi ekki hækkað gjaldskrána lengi og annað álíka mikið bull. Það er sama hver það er, íslenskir neyt- endur eru hafðir að fífli á hverjum degi og stjórnvöld horfa glottandi á. Sandra hringdi: Ég horfi venjulega á Kastljós með mikilli ánægju en verð að lýsa óánægju minni með innslag í þætt- inum fyrr í þessari viku. Þar fékk ung stúlka, sem tilheyrir samtök- unum Saving Iceland og hafði verið handtekin fyrir ólöglegar aðgerðir, ótrúlega langa umfjöllun. Ekki var hægt að skilja umfjöllun þáttarins á annan hátt en að þarna væri blásaklaus stúlka á ferðinni en ekki lögbrjótur. Hvað gengur Kastljósi til? Ég veit um marga sem skilja ekkert í þessari umfjöllun. Kastljós hefur oft fjallað um brýn málefni en þarna var farið rækilega yfir strikið. Sú spurning vaknar hvort aðrir saka- menn eigi ekki sama rétt á Kastljós- umfjöllun og þessi unga stúlka. BRÉF TIL BLAÐSINS Konráð hringdi: Ég er hneykslaður á þjónustu verslunarfólks. Ég er lamaður og var að versla í Bónus í Holtagörðum um daginn. Ég bað tvo unglings- pilta um aðstoð við að setja brauð og annað í kerruna en þeir neituðu mér um aðstoð. Það á að sýna fólki virðingu þegar það kemur að versla. Ég kem vel fram við aðra en maður verður reiður þegar manni er sýndur svona dónaskapur. Það á að bera virðingu fyrir fólki þegar það kemur að versla í Bónus. WSBjf Á M ‘ *Æ 1 ‘JI fi.Iy r'Mr ...og drifkerfi með 3 (!) valmöguleikum: Framhjóladrif ■ Sjálfvirkt, sítengt fjérhjóladrif • Læst fjórhjóladrif Komdu i reynsluakstur upplifunin verður ánægjul 1,5 ’." ■ Jmm! ■ SUZUKI ...er lífsstill! SUZUKI BILAR HF. Skeifunni 17. Sími 568 5100 SX4 1.6 GLX handskiptur og SX4 2.0 GLX sjálfskiptur. Kíktu á suzukibilar.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.