blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007
blaöiö
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
Hugmyndin á bakvið llvu-keðjuna er allt
öðruvísi en á bak við Rúmfatalagerinn; allt er
dýrara og meira í það lagt. En ég held að hún geti
gengið hvar sem er í heiminum.
Hagnast
helmingi meira
Hagnaður stærstu smásölukeðju
heims, Wal-Mart, jókst um 49%
á öðrum ársfjórðungi en fé-
iagið varar við því að hagnaður
félagsins muni dragast saman á
yfirstandandi ársfjórðungi vegna
samdráttar í neyslu á heims-
vísu. Jafnframt hafa versnandi
aðstæður í efnahagslífi áhrif á
horfur í rekstri Wal-Mart.
Hagnaður á öðrum ársfjórðungi
nam 3,10 milljörðum dala, 76
sent á hlut, samanborið við 2,08
milljarða dala, 50 sent á hlut, á
sama tímabili i fyrra.
Afkomuspá Wal-Mart fyrir árið
í heild hljóðar upp á hagnað upp
á 3,05-3,13 dali á hlut. Samkvæmt
fyrri spá var gert ráð fyrir að
hagnaður félagsins yrði 3,15-3,23
dalir á hlut. mbi.is
Meiri velta
í dagvöru
Velta í dagvöruverslun jókst á
breytilegu verðlagi um 10,1 pró-
sent í júlí síðastliðnum miðað
við sama mánuð í fyrra. Á föstu
verðlagi og árstíðarleiðrétt nam
hækkunin 12,7 prósentum. Þetta
kemur fram í frétt frá Rannsókna-
setri verslunarinnar. Þar kemur
einnig fram að á sama tímabili
lækkaði verðlag á dagvöru um 3
prósent. Sala á áfengi jókst einnig
töluvert í júlí síðastliðnum miðað
við sama mánuð í fyrra, eða um
13 prósent á breytilegu verðlagi og
6,8 prósent á föstu verðlagi. hos
■■rx.. ' . wmmmmfr-1'-...*- x. ^ -1 r-r«—- ,r\ ——1——■
Rúmfatalagerinn
hefur keypt Ilvu
■ „Eins og IKEA, nema bara í hærri gæðaflokki," segir nýi eigandinn ■ Útilokar ekki að
Ilva-verslun verði opnuð á íslandi ■ Ætla að opna búðir í fleiri Evrópulöndum
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Jákup Jacobsen, hinn færeyski eig-
andi Rúmfatalagersins, hefur keypt
húsgagnakeðjuna Ilva. „Ilva er eins
og IKEA, nema bara í hærri gæða-
flokki,“ segir Jákup. Hann telur að
keðjan geti auðveldlega náð jafn
mikilli útbreiðslu og Rúmfataöl-
agerinn, sem er nú með útibú í 11
löndum.
„Hugmyndin á bak við Ilvu-keðj-
una er allt öðruvísi en á bak við
Rúmfatalagerinn; allt er dýrara
og meira í það lagt. En ég held
að hún geti gengið hvar sem er í
heiminum."
Stefnir að frekari útbreiðslu
Fyrsta útibú Ilvu-keðjunnar var
opnað í Danmörku árið 1974. Nú
þegar eru verslanir Ilvu sjö tals-
ins; 3 í Bretlandi, 1 í Svíþjóð og 3 í
Danmörku. „Þetta eru mjög stórar
búðir - allt að 11 þúsund fermetrar
hver, sem er um þrisvar eða fjórum
sinnum stærra en venjuleg Rúm-
fatalagersverslun," segir Jákup.
„Fyrst um sinn munum við ein-
beita okkur að því að bæta rekstur
þeirra verslana sem þegar eru til
staðar, en svo munum við fjölga
búðum. Ég tel að við gætum til
dæmis fjölgað Ilva-búðum í Bret-
landi mikið og einnig höfum við
hug á að opna útibú frá Ilvu í Kan-
ada og Þýskalandi.“
íslenskur markaður lítill
Jákup segir ólíklegt en ekki úti-
lokað að opnuð verði Ilvu-búð á
íslandi. „Markaðurinn á Islandi er
líklega ekki nægilega stór til þess,
en við höfum einmitt verið að skoða
það undanarið. Ef niðurstaðan
verður sú að það sé markaður fyrir
fleiri hágæðahúsgögn hér á landi,
munum við opna útibú á Vestur-
landsvegi. En það útibú verður þó
ekki jafn stórt í sniðum og önnur
útibú keðjunnar."
Kaupverð keðjunnar hefur ekki
fengist uppgefið, en Rúmfatalager-
inn keypti hana af Kaupþingi banka.
I vefritinu Copenhagen Capacity er
sagt frá því að árið 2003 hafi fjárfest-
ingarsjóðurinn Advent keypt Ilvu
fyrir 100 milljónir evra. Til stóð að
breiða keðjuna út um allan heim,
en eftir misheppnaða tilraun til að
tryggja stöðu keðjunnar í Bretlandi
gáfust forsvarsmenn sjóðsins upp.
RÚMFATALAGERINN
► Jákup Jacobsen opnaði
ásamt Jákupi N. Purkhús,
meðeiganda sínum, fyrstu
Rúmfatalagersverslunina á
íslandi árið 1987.
►
►
í dag eru 108 Rúmfatalagers-
verslanir í öllum heiminum.
Höfuðstöðvarnar eru stað-
settar á íslandi, en auk þess
eru verslanir f Eistlandi, Lett-
landi, Litháen, Kína, Rúm-
eníu, Búlgaríu, Færeyjum,
Bretlandi, írlandi og Kanada.
ÞEKKIRÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Loksins, loksins háskerpusjónvarp
Sjónvarp Simans - kíktu i næstu verslun
Símans og sjáðu muninn
Það er Síminrv *
SMAAUGLYSINQAR@BLADID.NET
MARKAÐURINN í GÆR
• Mest viðskipti í Kauphöll OMX
á íslandi voru með bréf Lands-
banka íslands hf„ eða fyrir 2,29
milljarða.
• Mesta lækkun dagsins í OMX
var í bréfum Foroya Banka, eða
6%. Einu bréfin sem ekki lækk-
uðu eða stóðu í stað voru bréf
Eimskipafélags íslands, en þau
hækkuðu um 0,5%.
• Úrvalsvísitalan lækkaði um
1,59% í gær og var lokagildi hennar
7.970,36 stig.
• íslenska krónan veiktist um
0,55%. Hún náði 121,45 stigum.
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 14. ágúst 2007
Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi Viðskipti Tilboð í lok dags:
Félög í úrvalsvísitöhj yerð breyting viðsk.verðs viðskipta dagsins Kaup Sala
Atori<a Group hf. 9,02 -0,77% 14.8.2007 4 8.114.986 9,02 9,05
Bakkavör Group hf. 66,50 -0,75% 14.8.2007 17 48.064.464 66,20 66,50
Existahf. 32,90 -2£2% 14.8.2007 69 772.464.112 32,80 33,00
FL Group hf. 25,90 -1,15% 14.8.2007 30 139.507.497 25,90 26,00
Glitnir banki hf. 27,95 -1fiS% 14.8.2007 78 1.134.361.418 27,95 28,00
Hf. Eimskipafólag íslands 39,95 0,50% 14.8.2007 6 4.722.735 39,55 39,90
lcelandair Group hf. 27,85 -0,36% 14.8.2007 6 56.370.800 27,75 27,90
Kaupþing banki hf. 1101,00 -1J6% 14.8.2007 137 2.093.777.064 1101,00 1105,00
Landsbanki (slands hf. 38,90 -1,14% 14.8.2007 81 2288.092.163 38,90 39,20
Mosaic Fashions hf. 17,50 0,00% 13.8.2007 - -
Straumur-Burðaráa Fjárf.b. hf. 19,80 -1/19% 14.8.2007 72 395.909.505 19,70 19,80
Teymi hf. 5,61 -0,53% 14.8.2007 5 4.602.327 5,60 5,61
össurhf. Önnur bréf á Aðallista 104,50 -0,48% 14.8.2007 15 4.719.378 104,50 105,00
365 hf. 3,02 - 14.8.2007 2 123.366 2,98 3,02
Actavis Group hf. - 20.7.2007 - -
Alfescahf. 5,81 -0,17% 14.8.2007 1 174.300 5,81 5,85
Atlantic Petroleum P/F 1083,00 -0,82% 14.8.2007 3 1.429.573 1082,00 1093,00
Eik Banki 710,00 -0,70% 14.8.2007 7 8.627.397 704,00 710,00
Raga Group hf. 1,71 - 9.8.2007 - - 1,70 1,72
Foroya Bank 235,00 -6,00% 14.8.2007 3 735.572 230,00 260,00
lcelandic Group hf. 5,95 0,00% 13.8.2007 - - 5,90 5,97
Marel hf. 93,70 -0,95% 14.8.2007 3 18.780.000 93,30 93,70
Nýherji hf. 21,90 - 9.8.2007 - - 21,20 21,90
Tryggingamiðstöðin hf. 39,80 - 14.8.2007 1 796.000 39,80 40,00
Vinnslustöðin hf. Rrst North á íslandi 8,50 ■ 25.7.2007 - -
CenturyAluminium Co. 3100,00 -3,58% 14.8.2007 6 38.189.300 3095,00 3130,00
HB Grandi hf. 11,00 - 18.7.2007 - - 11,50
Hampiðjan hf. 6,50 - 20.6.2007 - - 6,75