blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007
25
W KOLLAOGKÚLTÚRINN
^§§|f . kolbrun@bladid.net
LJi
Vertu ekki hræddur við að hafa
sérviskulegar skoðanir því allar
skoðanir sem nú eru viðurkenndar
voru einu sinni sérviskulegar.
Bertrand Russell
Guðrún Nordal ræðir um Vatnsdælu á Þingeyraþingi
Sérkennileg ættarsaga
Guðrún Nordal flytur er-
indi um Vatnsdæla sögu
á Þingeyraþingi. Hún
segir söguna vera afar sér-
stæða og telur hana vera
yngri en talið hefur verið.
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@bladid.net
Stofnun Árna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum og heimamenn
í héraði gangast um næstu helgi
fyrir þingi í Þingeyrakirkju. Þar
fjalla fræðimenn um Þingeyra-
klaustur sem ritstofu, Vatnsdæla-
sögu og skáldaSögur. Guðrún Nor-
dal er meðal þeirra fræðimanna
sem halda erindi á þinginu og hún
kaus að fjalla um Vatnsdæla sögu.
„Síðustu árin hef ég verið að skoða
allar íslendingasögurnar sem bók-
menntategund, aðallega út frá kveð-
skapnum í sögunum. Vatnsdæla
geymir ekki kveðskap heldur eina
litla stöku og er því ekki dæmigerð
fyrir rannsóknir mínar en ég hef
verið að velta fyrir mér sérkennum
hennar. Ég mun fjalla um einkenni
sögunnar, hvenær hún er skrifuð
og samhengi hennar í handritum,
sem er mjög áhugavert. Hún var
varðveitt í tveimur merkum hand-
ritum frá því um 1400, sem nú eru
aðeins til í brotum, og í síðari alda
uppskriftum.“
Ekki hefðbundin deilusaga
Guðrún er spurð hvað sé merki-
legast við Vatnsdælu og hún svarar:
„Sagan er mjög áhugaverð og má í
raun skynja mót þátta í sögunni
og þar með er hægt að ímynda sér
hvernig hún varð til. Hún byrjar
sem fornaldarsaga, segir síðan
merka landnámssögu og síðan er
rakin ættarsaga Vatnsdælanna
fram yfir kristnitöku. Hún er ekki
hefðbundin deilusaga. Vatnsdælir
eru til dæmis ekki lögmenn, fara
ekki á þing heldur rekja mál sín í
héraði og eru fremur að losa héraðið
við óværu, eins og galdramenn, en
að deila við höfðingja í öðrum hér-
uðum og þegar þeir gera það notast
þeir við fjölkynngi. Sagan er mjög
bundin Vatnsdalnum og héraðinu
og ekki mjög áhugasöm um það sem
gerist þar fyrir utan. Þessi saga felur
margt sérkennilegt í sér. Sjónum er
beint að fjölkynngi og þjóðlegum
fróðleik, og þar eru sérkennilegar lýs-
ingar á galdramönnum og alls kyns
illum öflum en lítill áhugi á samfé-
lagsgerð þjóðveldisins eða hvernig
mál eru rekin á Alþingi. Sagan snýst
ekki um hetjudauða, skáldskap eða
ættrakningar, en í sögunni endur-
speglast þó greinilega mikill áhugi
á konungsvaldi, sem tengir söguna
sumpart við Laxdælu, og þar er afar
jákvæð lýsing á Haraldi hárfagra.“
Saga verður til
I erindi sínu mun Guðrún ekki
síst ræða um hvernig sagan varð
til. „Sagan hefur verið talin rituð á
seinni hluta 13. aldar en ég tel hana
vera yngri. Hin varðveitta gerð er
vitaskuld ung, en hugmyndir hafa
verið um að sagan hafi öll verið rituð
á 13. öld vegna tengsla landnáms-
kaflans við Landnámugerðirnar. Ég
hef áhuga á að skýra hvernig sagan
varð til, úr hvaða jarðvegi hún hafi
sprottið. Hún er varðveitt í hand-
ritum frá því um 1400 með yngri
íslendingasögum og á að mínu
mati hugmyndafræðilega heima
með þeim og eðlilegra að skoða
hana í samhengi við þær fremur
en elstu fslendingasögurnar sem
skrifaðar voru á 13. öld. f erindinu
er ég þannig að íhuga hvernig sagan
ÞINGIÐ
Þingið t Þingeyrakirkju
hefst kl. 13.00 laugardaginn
18. ágúst og lýkur kl. 11.00
sunnudaginn 19. ágúst.
Erindi flytja: Gottskálk Jens-
son, Guðrún Nordal, Gunnar
Karlsson, Helgi Þorláksson,
Magnús Hauksson, Sverrir
Tómasson, Torfi H. Tulinius
og Þór Hjaitalín.
Að dagskránni lokinni er
þinggestum boðið að taka
þátt í ferð um söguslóðir
á Þingeyrum og í Vatnsdal
undir leiðsögn Jóns Torfa-
sonar, höfundar Árbókar
Ferðafélags íslands 2007.
verður til sem íslendingasaga. Það
er líka áhugavert að skoða rækilega
þau tvö handrit sem til eru af henni
þvi þau eru auðvitað mikilvægustu
kennileitin. Þau geyma Vatnsdælu
ásamt nokkrum ungum sögum, en
þar er þó Eyrbyggja varðveitt líka
og í Vatnshyrnu er Laxdæla að auki.
Vatnsdæla er í handritunum varð-
veitt í mjög áhugaverðu samhengi
sem ég mun reyna að varpa ijósi á
í erindi mínu.“
►
►
►
Stefnumót
í hádeginu
Næstsíðasta hádegisstefnu-
mótið á hönnunarsýning-
unni Magma / Kvika verður
fimmtudaginn 16. ágúst. Þá
munu húsgagnahönnuðirnir
Guðrún Margrét Ólafsdóttir og
Oddgeir Þórðarson segja frá ►
MGO-húsgagnalínu sinni, sem
notið hefur mikillar velgengni.
Saga húsgagnalínunnar er
afar forvitnileg og má rekja
hana til fallegra borðstofu-
stóla sem vantaði tilhlýðilegt
borðstofuborð.
Stefnumótið hefst kl. 12.00 og
stendur yfir í tuttugu mínútur.
Færeyingar á
Menningarnótt
Frændur okkar frá Þórshöfn í
Færeyjum eru sérstakir gestir
Menningarnætur í ár. Hátt á
fjórða tug listamanna leggja
leið sína þaðan til okkar og
ætla að sýna brot af því besta í
færeyskri myndlist og tónlist.
Upplýsingamiðstöð Þórshafnar
verður einnig ineð í för og því
hægt að nálgast allskyns upp-
lýsingar um þennan eyjaklasa
sem samanstendur af 18 eyjum .
og á þeim búa 48.000 manns.
Færeysku listamennirnir hafa
aðsetur í Tjarnarsal Ráðhúss-
ins og þar verður hægt að
virða fyrir sér myndverk eftir
þá Bárð Jákúpsson og Eyðun
af Reyni og hlusta bæði á það
nýjasta úr færeysku poppi
og þjóðlegan vísnasöng - að
ógleymdum vikivaka. Sjálfur
Havnarkór Þórshafnar kemur
fram undir stjórn Ólafs Hátún
og syngur og dansar - bæði
fyrir gesti og ekki síður með
þeim.
AFMÆLI í DAG
Napóleon 1. keisari, 1769
Ethel Barrymore leikkona, 1879
Walter Scott rithöfundur, 1771
Oscar Peterson djassisti, 1925
MENNINGARMOLINN
Will Rogers deyr
Á þessum degi árið 1935 lést hinn
ástsæli leikari og rithöfundur Will
Rogers. Hann hafði lagt í flugferð
umhverfis heiminn ásamt vini
sínum, Wiley Post, heimsfrægum
flugmanni. Vél þeirra brotlenti í
Alaska og þeir létust báðir.
Bandaríska þjóðin tregaði Ro-
gers mjög enda hafði hann verið
einn vinsælasti leikari þjóðarinnar
og lék í um sjötíu kvikmyndum.
Hann var annálaður húmoristi og
vikulegur útvarpsþáttur hans var
sá vinsælasti í Bandaríkjunum.
Hann var einnig griðarlega vin-
sæll dálkahöfundur og skrifaði
nokkrar bækur þar sem kímnigáfa
hans naut sín vel. Hann var 56 ára
þegar hann lést.
Besta myndin er í
háskerpusjónvarpinu þínu
Sjónvarp Simans - kíktu í næstu
verslun Símans og sjáðu muninn
Það er Síminrí''