blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 18
26
MIÐVIKUDAGUR 15. AGUST 2007
blaöió
LÍFSSTÍLL NEYTENDUR
neytendur@bladid.net
Skoðanakannanir okkar hafa leitt í Ijós að
með þessari tíðni eigum við að geta annað
umtalsverðri aukningu sem kann að verða í kjölfar
þess að frítt verði í strætó fyrir námsmenn.
Ferðatíðni strætisvagna eykst með nýju leiðakerfi
Strætó á kortersfresti
Ferðatíðni strætisvagna
á höfuðborgarsvæðinu
eykst og ný og notenda-
vænni leiðabók kemur út
vegna breytinga á leiða-
kerfinu sem tekur gildi
næstkomandi sunnudag.
Eftir Einar Örn Jónsson
einar.jonsson@bladid.net
« í stað þess að aka á hálftíma fresti
líkt og nú verður ekið á 15 mínútna
fresti á helstu leiðum á háannatíma
á virkum dögum og allan daginn á
sumum leiðum.
„Þetta er byggt á umfangsmiklum
talningum sem voru framkvæmdar
bæði í haust og í vor sem sýna að
þörfin fyrir flutninga er langmest
á þessum leiðum á þessum tímum,“
segir Reynir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Strætó bs.
Reiknað með ijölgun farþega
Nemendur í menntaskólum og
háskólum á höfuðborgarsvæðinu fá
fríkort í strætó í haust og er reiknað
með aukningu farþega í kjölfar þess.
,Við vitum náttúrlega ekki hvað það
verður mikil aukning en skoðana-
kannanir okkar hafa leitt í ljós að
með þessari tíðni eigum við að geta
annað umtalsverðri aukningu sem
"* kann að verða í kjölfar þess að það
verði frítt í strætó fyrir námsmenn,"
segir Reynir.
„Ef það síðan sýnir sig að aukningin
verður mjög mikil sem við myndum
bara fagna þá eru allir tilbúnir til
þess að setja fleiri vagna inn í kerfið
eða auka tíðni sem hefði í raun sömu
áhrif,“ segir hann.
Reynir segir að þessar leiðir flytji
langflesta af farþegum fyrirtækis-
ins. Aðrir vagnar verða á 30 mín-
útna fresti eins og hingað til. Dregið
verður úr tíðni ferða á sunnudögum í
„ nýjakerfinuogmunuleiðirx-óganga
á hálftímafresti en allar aðrar leiðir
á klukkutímafresti. Reynir segir að
það sýni sig að vagnarnir séu einfald-
lega mjög illa nýttir á sunnudögum.
Tcigar
Voefar
Sléttuvegur
Ártún
Norðlingahólt
Mosfellsbær
Ártún
Grafarholt
Endurbætur hja Stræto Auk tiöari feröa
a helstu strætisvagnaleiöum veröur gefin
ut ný leiöabok sem gefur betri yfirsýn yfir
kerfiö en áöur.
„Það er lítil eftirspurn eftir strætó á
sunnudögum en laugardagurinn er
hins vegar mjög góður enda eru þá
flestar verslanir opnar og margir að
vinna,“ segir hann.
Nýlega fengu strætisvagnastöðvar
nöfn til að auðvelda fólki að nota
kerfið. Reynir segir að mikil áhersla
sé lögð á að leiðakerfið sé samhæft
þannig að vagnarnir hittist á skipti-
stöðvum á sama tíma.
Betri leiðabók
Samhliða breytingum á tíðni
vagnanna verða gerðar lítilsháttar
breytingar á fáeinum akstursleiðum
og má nálgast upplýsingar um þær
á vef fyrirtækisins bus.is og í nýrri
leiðabók.
Að sögn Reynis gefur nýja leiða-
bókin betri yfirsýn yfir aksturs-
leiðir en áður. „Allar biðstöðvar
verða sýndar bæði í leiðabókinni og
á hverri biðstöð en áður sá maður
bara helstu biðstöðvar. Leiðabókin
og biðstöðvataflan sýna komu- og
brottfarartíma vagnsins á þessari
tilteknu biðstöð,“ segir hann.
Þá verða gefnar út rafrænar út-
gáfur fyrir hverja leið sem fólk getur
prentað út af vefnum auk þess sem
gefnar verða út leiðabækur fyrir
ákeðin hverfi, til dæmis Garðabæ
og Grafarvog.
Auk hönnunar nýs kerfis og prent-
unar leiðabókar hafa verið sett upp
ný skilti á biðstöðvum. Reynir segir
að kostnaður vegna breytinganna
hlaupi á milljónum. „Við höfum 40
milljónir á ári til að setja í það sem
kallað er markaðsmál og fyrirtækið
veltir 3000 milljónum. Þetta er nátt-
úrlega bara dropi í hafið en þetta er
peningurinn sem við höfum,“ segir
Reynir.
Helstu breytingar
á leiöakorti Strætó
Helstu breytingar
á feröatíðni Strætó
• Allar biðstöðvar verða sýndar í
leiðabók.
Biðstöðvarnar sjálfar verða merktar.
• Nýtt leiðakort verður einfaldara í
sniðum og skiptast leiðir í þrjá liti.
• Rauðar leiðir 1-6 (gömlu stofnleið-
irnar) flytja fólk milli fjölmennustu
íbúða- og atvinnusvæðanna.
• Grænar leiðir 11-19 (grænar leiðir)
liggja um fjölmenn hverfi á höfuð-
borgarsvæðinu og tengja þau við
rauðar leiðir.
• Bláar leiðir 22-36 (bláar leiðir)
liggja um ýmis hverfi á höfuðborg-
arsvæðinu og tengja þau saman við
rauðar og grænar leiðir.
• Aukin tíðni á helstu leiðum.
Leiðir 1, 3 og 6 fara á 15 mínútna
fresti allan daginn á virkum
dögum og leið 2 og 4 á 15 mínútna
frestiáháannatímum (kl. 6:30-9:30
og kl. 14-18).
• Leið 5 mun enn sem fyrr aka á 30
mínútna fresti allan daginn.
• Leiðir 11,12,14 og 15 aka á 15 mín-
útna tiðni frá 6:30-9:30 og aftur kl.
14-18. Utan þessara tíma á virkum
dögum og á laugardögum verður
ekið á 30 mínútna fresti. Á sunnu-
dögum verður ekið á 60 mínútna
fresti.
• Leiðir 13,17,18,19, 22, 24, 28, 31,
32. 33. 34. 35 og 36 aka á 30 mínútna
fresti allan daginn mánudag til
laugardags. Á sunnudögum verður
ekið á 60 mínútna fresti.
• Leið 23 ekur á 60 mínútna fresti
allan daginn, alla daga.
raftækjum
Nokkrir viðskiptavinir Orku-
veitunnar telja að tjón hafi
orðið á raftækjum þeirra
vegna spennusveiflna í síðustu
viku. „Sjö tilvik hafa verið til-
kynnt til okkar og svo höfum
við spurnir af einhverjum
tilkynningum til tryggingafé-
laga uppi á Skaga en við vitum
ekki hvort það eru sömu tilvik
eða ekki,“ segir Eiríkur Hjálm-
arsson, upplýsingafulltrúi
Orkuveitunnar. Að sögn Eiríks
hafa einkum þráðlausir símar
orðið illa úti og hafa flestar
kvartanirnar borist frá íbúum
á Akranesi. „Upptökin voru
náttúrlega í tengivirki Lands-
nets á Brennimel í Hvalfirði og
Akranes er næsta þéttbýli við
hann þannig að það kann að
hafa ráðið því að áhrifin urðu
mest þar,“ segir Eiríkur.
„Menn eru núna að fara ná-
kvæmlega yfir mælingar á
þessari atburðarás og þegar
hún liggur algerlega klárt og
kvitt fyrir af hálfu allra aðila,
bæði Landsnets og orkufyrir-
tækjanna, þá geta þau tekið
afstöðu til þess hvort þau telji
um bótaskylt tjón að ræða og
þá hver beri það,“ segir Eiríkur
og bætir við að búast megi við
niðurstöðum á næstu dögum.
Upplýsinga-
þurrð hjá Ríkinu
Vöruskrá ÁTVR á Netinu
hefur Iegið niðri um Iangt
skeið og eru vínáhugamenn
orðnir langeygir eftir upp-
færslu. Þar hafa þeir löngum
getað leitað í gagnagrunni um
vín og fengið upplýsingar um
verð, eiginleika vína og aðrar
nytsamar upplýsingar. Nú er
þar hins vegar ekkert að sjá
nema verðlista á pdf-formi og
afsökun til notenda um að vef-
búð/vöruskrá liggi niðri vegna
uppfærslu á tölvukerfi.
Jóna Grétarsdóttir, markaðs-
stjóri ÁTVR, segir að uppfærsl-
unni verði vonandi lokið sem
allra fyrst. „Ég vona að það
verði í september en það er
örugglega hægt að lofa að það
verði með haustinu,“ segir hún.
„Það sem gerðist var að þegar
bókhaldskerfið var uppfært
hjá okkur datt niður tengingin
við núverandi vefumsýslukerfi
þannig að við þurftum að
fara í þá vinnu að finna nýtt
vefumsýslukerfi sem þolir teng-
inguna við núverandi bókhalds-
kerfi,“ segir Jóna.
„Við skiljum að þetta er baga-
legt og við vitum að þetta er
mikið notað, meira að segja af
okkar starfsfólki.“