blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 20

blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 20
28 MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 blaðið LÍFSSTÍLLHEIMILI heimili@bladid.net Ég hef mjög gaman af því að reyna að skapa fallegt umhverfi og mér finnst til dæmis mjög gaman að teikna upp eldhús og fleiri herbergi. Fyrirlestur Flott, norræn hönnun Audun Engh og Erling Okkenhaus, arkitektar, verða með fyrirlestur um sjálfbæra borgarþróun á Norður- löndum í Norræna húsinu næstkom- andi þriðjudag, 21. ágúst, klukkan 17.30. Yfirskrift fyrirlestursins er „Ætlar Reykjavík að verða evrópsk stórborg eða amerískt úthverfi?11 og er liður í Reyfi 2007, Menningar- gnægð Norræna hússins sem fer fram 18. til 26. ágúst. Umræður Á eftir fyrirlestri Auduns Enghs og Erlings Okkenhaus verður Guja Dögg Hauksdóttir, arkitekt og deildarstjóri byggingarlistar- deildar Listasafns Reykjavíkur, með pallborðsumræður undir yfirskriftinni „Gagnrýni í beinni“ þar sem fjallað verður um fag- urfræði og vitund í íslenskum arkitektúr. Umræðurnar hefjast klukkan 19.30 á þriðjudaginn og verða í Norræna húsinu. Alensk hönnun Norræna stofnunin á Álands- eyjum stendur fyrir farandsýn- ingunni Form.ax, sem verður í Norræna húsinu á meðan á Reyfi 2007 stendur, dagana 18. til 26. ágúst. Ferð sýningarinnar hófst í Helsingfors þar sem sýningin var opnuð í Gallerí Norsu 31. maí, og var hluti af Álandseyjadögum í Helsingfors 14. til 16. júní. Mark- miðið með sýningunni er að gefa heildstæða mynd af álenskri hönnun, gæðum hennar og ný- sköpun, og sýna hið hefðbundna en jafnframt notkun nýrra og spennandi efna. Á sýningunni eru verk rúmlega 30 hönnuða. Litadýrð í tiltektinni Það er ekkert sem segir að ómögu- legt sé að njóta litadýrðar við tiltekt og þrif. Þessir óvenjulegu kústar eru hönnun Stefanos nokk- urs Giovannoni og fást á vefsíð- unni panik-design.com. Barnavörur á Selfossi Nýlega var opnuð verslunin Snúðar og snældur á Selfossi, en um er að ræða fjölskylduverslun með búsáhöld, barnaföt og barna- húsgögn. Verslunin er staðsett við Gagnheiði 70. Staða og gildi íslenskrar hönnunar Málþing um stöðu og gildi ís- lenskrar hönnunar í innlendu og alþjóðlegu samhengi verður haldið á Kjarvalsstöðum á Menningarnótt klukkan 13 til 15. í fyrri hlutanum verður fjallað um hugmyndaheim íslenskra hönnuða, sérstöðu þeirra eða einsleitni og þann brunn sem íslenskir hönnuðir sækja innblástur í. Siðari hlutinn fjallar um gildi íslenskrar hönnunar fyrir íslenskan iðnað og stöðu á alþjóðlegum markaði auk þess sem fjallað verður um kosti þess og galla að starfa á litlum markaði. Þátttakendur eru meðal annars Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, sýninga- stjóri Magma/Kviku, Guðmundur Oddur, prófessor við Listaháskóla íslands, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður, Hrafnkell Birgisson, hönnuður og formaður FORM ísland, Elísabet V. Ingvarsdóttir, hönn- unarsagnfræðingur og innanhússarkitekt, Guðbjörg Gissurardóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarvettvangs, Katrín Pétursdóttir, hönn- uður og listamaður, og Finnur Árnason hjá Nýsköpunarsjóði. PLANTA VIKUNNAR Flamingóblóm frá Andesfjöllunum Flamingóblóm, sem einnig er þekkt sem flæmingjablóm, er vinsæl stofuplanta á íslandi. Það heitir á frummálinu Anthurium andreanum og kemur úr rökum og skuggsælum skógarbotnum Mið- Ameríku og Andesfjalla. Blöðin eru hjartalaga og blómhlífarblaðið er rautt, hvítt eða bleikt utan um grannan gulleitan kólf - sem er hið eiginlega blóm. Best er að geyma flamingóblóm á skuggsælum stað og gjarnan má raða nokkrum plöntum saman til að plönturnar njóti loftrakans hver frá annarri. Nauðsynlegt er að vökva flamin- góblóm mikið á sumrin en minna á veturna. Best er ef vatnið er aðeins volgt og ef þau eru varin gegn heitu og þurru stofulofti sem og dragsúg og gólfkulda. Gott er ef blómið fær lítilsháttar áburð í hvert sinn sem það er vökvað frá mars til september. Annars eru flamin- góblóm afar þolnar og langlífar stofuplöntur. Hinn árlegi lista- og handverksmarkaður „Kunsthándværkermarket“ verður haldinn á Frue Plads i Kaupmannahöfn dagana 23. til 25. ágúst næstkom- andi. Þetta er tuttugasta árið í röð sem markaðurinn er haldinn og nýtur hann sívaxandi vinsælda. Þar er hægt að fá allt milli himins og jarðar, allt frá fatnaði og upp í borðbúnað, á sanngjörnu verði. Samtals ætla 138 leirkerasmiðir, glerlistamenn, textíl- og fatahönnuðir og trélistamenn að selja vörur sínar á markaðnum að þessu sinni. Veitt verða verðlaun fyrir bestu nýju vöruna á mark- aðnum og verður hún valin af fremstu hönnuðum og listamönnum Danmerkur ásamt menningarmálaráð- herra landsins, Brian Mikkelsen, og tilkynnt verður á opnunardegi markaðarins hver fær útnefningu í ár. Eins og venjulega má búast við að allnokkur fjöldi íslendinga verði í Kaupmannahöfn um þessa helgi og óhætt er að mæla með því að þeir geri sér ferð á þennan vandaða markað og kynni sér það nýjasta í danskri og Leirkönnur, hannaðar af Helle Rittig Þær eru meðal þeirra fjölmörgu húsmuna sem verða til sölu. skandinavískri hönnun. Heimasíða markaðarins er á slóðinni www.kunsthaandvaerkermarkedet.dk. Eitt af verkum Dagnýar Öll verkin á sýningunni eru unnin úr rúðugleri. Húsgagnasmiður og glerlistakona á ísafirði Býr til listmuni úr rúðugleri Falleg heimili, list- og nytjamunir eru Dagnýju Þrastardóttur afar hug- leikin enda er hún hús- gagnasmiður að mennt ásamt því sem hún fæst við glerlist. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Dagný Þrastardóttir er húsgagna- smiður að mennt og starfaði sem slíkur í nokkur ár en rekur nú Rammagerð Isafjarðar sem er gall- erí og innrömmunar- og glerverk- stæði. Nú hefur hún opnað sýningu á glermunum „Á skörinni“, í hús- næði Handverks og hönnunar við Aðalstræti í Reykjavík. „Ég hef farið á nokkur námskeið í glerbræðslu og var í einn vetur að læra fagið í Ed- inburgh College of Art. I kjölfarið keypti ég bræðsluofn og síðan þá hef ég verið að fást við þetta. Á sýn- ingunni í Aðalstræti eru alls kyns myndir úr gleri þar sem innblást- urinn kemur úr náttúrunni og um- hverfinu, en ég hef líka verið að gera ýmiss konar nytjahluti á borð við diska, kertastjaka og platta úr gleri. Reyndar er ég orðin dálítið leið á því og er farin að einbeita mér meira að myndum og skrautmunum," segir hún. Nýtir afgangsgler Fyrirtæki á borð við Ispan sem og einstaklingar hafa verið dugleg við að gefa Dagnýju afgangsgler sem annars hefði farið á haugana, svo að hún geti brætt það og gert úr því list- og nytjamuni. „Ég nota fyrst og fremst rúðugler sem búið er að taka úr gluggum og vinn úr því. Það þarf alls ekki að henda öllu heldur er hægt að nýta svo margt upp á nýtt í staðinn,“ segir hún. Vill skapa fallegt umhverfi Eins og gefur að skilja eru falleg heimili Dagnýju hugleikin. „Eftir að ég útskrifaðist sem húsgagnasmiður fyrir allnokkrum árum hóf ég störf á innréttingaverkstæði í Kópavogi og vann þar í nokkur ár. Síðan flutti ég vestur og fór að vinna í bygginga- vöruverslun, en opnaði síðan gall- eríið árið 1995 og fór jafnframt að fást við innrömmun, sandblástur á glugga, glerbræðslu og ýmislegt fleira. Ég hef mjög gaman af því að reyna að skapa fallegt umhverfi og mér finnst til dæmis mjög gaman að teikna upp eldhús og fleiri her- bergi. Ég hef þó ekki starfað við það eða aðstoðað aðra mikið við slíkt þótt ég hafi reyndar tekið þátt í því að taka þrjú hús í gegn með öðru fólki,“ segir hún. Nóg komið í bili Aðspurð segist Dagný ekki stefna á frekara nám tengt listsköpun eða húsgögnum. „Ég held að þetta sé bara að verða gott,“ segir hún og hlær. „Ég held að ég ætli frekar að einbeita mér að því að gera það sem ég kann og þróa mig áfram í því, enda er af nógu að taka.“ Sýningin Á skörinni er önnur einkasýning Dagnýjar og stendur til 6. september.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.