blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 15. AGUST 2007
blaóiö
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@bladid.net
Hegðun kvenfólksms hefur versnað tH muna. AUs lítu 76 gul spjöld dagsins Ijós
í fjórtán umferðum í fyrra en þau eru nú þegar orðin 99 þó aðeins sé ellefu um-
ferðum lokið. Þá er fjöldi rauðra spjalda sá sami, sex talsins, en keppnistímabil
stúlknanna er lengra nú en í fyrra og má búast við töluverðri aukningu frá því sem nú er.
SKEYTIN INN
Hollending-
inn Rafael
Vander
Vaart dreymir um
aðspilaíbúningi
Valencia á Spáni
en leikmaðurinn
sem fengið hefur stórkostlega
dóma fyrir leiki sína með Hamborg
að undanförnu hefur fengið nóg
af Þjóðveijum í bili. Valencia er
þegar búið að játa sig sigrað af Real
Madrid varðandi annan fótfráan
HoUending, Wesley Sneijder.
Það segir sitt
um krísuna
á Spáni að
enn eitt tímabilið
stendur til að
lána út Roberto
Soldado hjá
Real Madrid. Soldado hefur um
tveggja ára skeið verið næsti Raúl
þeirra spænsku en hann hefur
ekki roð við útlendingahersveit-
unum sem flykkjast árlega til
stórliða í landinu og íhuga forráða-
menn Real að lána hann út eitt
tímabil enn... að minnsta kosti.
Það er súrt að
vera eigandi
Sevilla.
Liðið er smátt og
smátt að verða
eitt þeirra stóru á
Spáni en þá hótar
ein aðalstjarna þess verkfalli fái
hann ekki að fara. Þetta á við um
bakvörðinn framsækna Daniel
Alves sem spekingar eru sammála
um að sé sá besti í Evrópu eins og
sakir standa. Hann vill til Chelsea og
það ekki seinna en nú og neitar að
spila gangi það ekki smurt í gegn.
Helsti varn-
armaður
franska
meistarahðsins
Lyon,Cris,verður
úrleikumsex
mánaða skeið
eff ir slæm meiðsli í leik liðsins um
helgina. Lyon vill fá Gabriel Heinze
frá United til að leysa hann af og
hefur þegar gert tilboð í kappann
sem er ósáttur við Ferguson og vildi
fyrir skömmu fara til Liverpool.
Oi
i gRafaBen-
I ítez hefur
sagt leik-
mönnum sínum að
hannmunihalda
áfram að rótera
liðisínuleikfrá
leik og við það verði þeir að búa.
Enginn eigi fast sæti í byrjunarliðinu
á neinum tíma og þeir sem ekki
sætta sig við slíkt geti farið. Enginn
hefur farið enn sem komið er enda
meiri hugur í forráðamönnum
og leikmönnum liðsins nú en
hefur verið lengi. Talið er vist að
Liverpool geti loks att alvöru kappi
við Chelsea, Arsenal og United.
Landsbankadeildir karla og kvenna í sumar
Stelpurnar orðnar grófari
Gulum og rauðum spjöldum hefur fjölgað mjög frá
síðasta ári í Landsbankadeild kvenna í sumar meðan
spjöldin á strákana eru færri hingað til en í fyrra.
Hefur hegðun kvenfólksins versnað til muna. Alls litu
76 gul spjöld dagsins ljós í fjórtán umferðum í fyrra en
þau eru nú þegar orðin 99 þó aðeins sé ellefu umferðum
lokið. Þá er fjöldi rauðra spjalda sá sami, sex talsins, en
keppnistímabil stúlknanna er lengra nú en f fyrra og má
búast við töluverðri aukningu frá því sem nú er.
Karlamegin eru spjöldin færri en á sama tíma í fyrra.
Alls hafa dómarar í karladeild lyft spjöldum sínum
200 sinnum í tólf umferðum í sumar, 184 gulum og
16 rauðum. Heildarfjöldi spjalda allt tímabilið í fyrra
var 374 en þar af 28 rauð. Það er sem fyrr 90. mínútan
sem reynist íslensku knattspyrnufólki erfiðust þegar
kemur að gulum og rauðum spjöldum. Á það við um
báðar deildir. Þrettán sinnum hafa dómarar sýnt gult
og tvisvar rautt á þeirri mínútu hjá körlunum en sex
sinnum gult og einu sinni rautt hjá stúlkunum.
Harka færist í leik Spjöldum hefur fjölgað
talsvert í Landsbankadeild kvenna í sumar.
//
„Bardagi fólksins
Felix Trinidad mætir Roy Jones jr. Einn flottasti slagur lengi
Aðdáendur bardagaíþrótta geta
nú þegar tekið næstkomandi janúar
frá en tilkynnt hefur verið að hnefa-
leikastjörnurnar Felix Trinidad og
Roy Jones jr. mætist þá í hringnum
en sá bardagi hefur verið kallaður
„bardagi fólksins” þar sem báðir
hnefaleikararnir koma úr neðstu
stigum samfélagsins en hafa þó náð
heimsfrægð.
Sjálfskipaða hnefaleikakónginum
Don King tókst að fá þá tvo til að
fallast á eina keppni en Trinidad
var fyrir allnokkru hættur keppni
og hugðist ekki fara í hringinn á ný.
Trinidad er þjóðhetja í Púertó Ríkó
en hann var lengi vel ósigrandi í
millivigtarflokki og þótti glæsilegur
íþróttamaður. Roy Jones yngri er
engu síðri og það sem gerir bardag-
ann skemmtilegri en ella er að Jones
hefur lést síðan hann keppti síðast
meðan Trinidad hefur bætt á sig.
Verður því í versta falli áhugavert
að fylgjast með þeim köppum sem
sannarlega láta hvorugur í minni
pokann fyrr en feita konan hefur
sungið sitt allra síðasta.
Ferillinn á enda runninn...
Golfiö tekur við
Hvað gera stórstjörnur í íþrótta-
heimunum þegar ferlinum lýkur?
Fleiri og fleiri reyna þá fyrir sér í
golfi enda hægt að spila þá íþrótt
langt fram eftir aldri ef heilsan
leyfir. Það nýta sér æ fleiri og gengur
nokkuð vel.
Tímaritið Golf Digest hefur
tekið saman lista yfir nokkrar þær
stjörnur sem iðka golf reglulega og
hver forgjöf þeirra er.
FORGJÖF
-0.7 Mark McGwire Hafnaboltastjarna
-0.8 Brett Favre Ruðningsstjarna
0.1 Brett Hull Ishokkístjarna
0.2 Pete Sampras Tennisstjarna
1.2 Michael Jordan Körfuboltastjarna
10 Oscar de la Hoya Hnefaleikastjarna
10 Bode Miller Skiöastjarna
16 Diego Maradona Knattspyrnustjarna
Snillingurinn Michael Jordan
Ekki bara liðtækur með körfubolta.
Skarpt, skarpara, háskarpast
Sjóovarp Símans - sjáðu háskerpu-
sjónvarp í næstu verslun Simans
Það er Síminn''
Schumi ihugar
endurkomu í F1.
Michael Schumacher er maður ónýtur ef stýri og pedalar eru
ekki fyrir framan hann. Hefur hann nú ákveðið að keppa á stóru
gokart-móti í Brasilíu í nóvember en þar munu einnig etja kappi
meðal annars Felipe Massa og Rubens Barrichello.
BALANCED AND BETTER
^aScco,
m
Skro fyrir brjóst
Munntóbak, eða snus, fer
mjög fyrir brjóstið á félags-
mönnum í Knattspyrnuþjálf-
arafélagi íslands og hafa
þeir sent frá sér tilkynningu
þar sem skorað er á alla sem
vettlingi geta valdið að koma
þessum fjára frá. Vísa þeir
til þess að „ósiður þessi sé
innfluttur og eigi ekki heima
í knattspyrnuflóru íslands”.
Hvað það kemur málinu við að
um innflutta afurð er að ræða
er ekki gott að vita en taka má
undir að til er skemmtilegri
sjón en að sjá íþróttamenn
spýta góðri slummu út úr sér.
Til sölu
Fréttablaðið greinir frá því að
allir hestarnir sem íslensku
keppendurnir kepptu á á
Heimsmeistaramóti íslenska
hestsins hafi verið seldir strax
eftir mótið og það á fínu verði
að sögn seljenda eða allt að
20 milljónum króna fyrir
gæðinginn. Vaknar óneitan-
lega sú spurning hvort mótið
sé fyrirsláttur og um hreina
sölusýningu sé að ræða.
Stutt stopp
Ragna Ingólfsdóttir, fslands-
meistari í badminton, fór
langa ferð fyrir lítið þegar
hún féll úr keppni á Heims-
meistaramótinu í badminton
í fyrstu umferð. Mætti hún
keppanda frá Nýja-Sjálandi og
tapaði í tveimur lotum. Mótið
fer fram í Malasíu.
Strandblak
í Fagralundi
Búist er við metþátttöku á
íslandsmótinu í strandblaki
sem fram fer á laugardaginn
kemur í Fagralundi í Kópa-
vogsbæ Gunnars Birgissonar
sem merkilegt nokk er talsvert
frá næstu strönd. Tveir kepp-
endur eru í liði og þátttaka er
öllum heimil. Aðeins er gerð
krafa um að búningar beggja
keppenda sé eins og eru verð-
laun sögð glæsileg. Sjá nánar á
strandblak.is.