blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 27

blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 27
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 15. AGUST 2007 35 Leitað að karlmönnum sem þora að sýna sína helgustu parta Allar stærðir og gerðir velkomnar Ástrós Gunnarsdóttir leitar að karlmönnum til að taka þátt í dansverki. Einu skilyrðin eru þau að menn séu tilbúnir að sýna ákveðna líkamshluta, hvort sem það eru hendur, fætur eða kynfæri. Eftir Hildu H. Cortez hilda@bladid.net „Þetta er myndbandsverk sem verður sýnt á Reykjavík dansfesti- val og er byggt á rannsókn sem ég gerði á meðal kvenna víðs vegar um heiminn um ímynd karlmanns- ins. Hugmyndin kviknaði út frá því að það eru yfirleitt karlmenn sem skapa ímynd kvenna og ég vildi láta konur skapa ímynd karla og er þetta verk afrakstur- inn," segir Ástrós Gunnarsdóttir danshöfundur. Ástrós segir að fólk verði að sjá verkið til að fá að vita hverju var svarað. „Niðurstöðurnar má ég ekki segja strax, en það kemur allt í ljós á festivalinu, en ég get sagt það að þær komu skemmtilega á óvart og það virðast vera ótrúlega líkar skoðanir sem konur hafa um menn hvort sem þær eru íslenskar, franskar, bandarískar, tvítugar eða sjötugar." Að sögn Ástrósar leitar hún nú að karlmönnum á öllum aldri, af öllum stærðum og gerðum sem eru ófeimnir við að sýna sig. „Ég ætla auðvitað ekki að pína neinn til þess að sýna allt. Ég vona að ég fái sem flesta karlmenn sem eru til í að sýna sem mest en mönnum er engu að síður velkomið að sýna bara hendur eða andlit ef þeir kjósa það frekar. Þetta snýst ekki um fallega líkama heldur vil ég frekar fá menn af öllum gerðum. Það sem ég kem svo til með að gera er að taka myndir af líkamspörtum sjálfboðaliðanna og setja saman í vídeómynd. Þannig að þetta verður eins- konar flokkun á útliti manna þar sem teknar eru fyrir hendur, andlit, líkamar, kynfæri og svo framvegis og svo samein- ast þetta allt í lokin og er túlkað af dansara. Enginn þarf að vera hræddur um að þurfa að afklæðast alveg og það þarf heldur enginn að dansa,“ segir Ástrós og hlær. Áhugasamir geta barið afrakstur- inn augum á Reykjavík dansfestival sem stendur yfir dagana 30. ágúst til 2. september næstkom- andi en verkið verður sýnt í búðarglugga á Laugaveginum og __ verður til sýnis alla helgina. Leitað að sjálfboðaliðum Ástrós Gunnarsdóttir auglýsir eftir karlmönnum til þátttöku i dansverki Jolie og Pitt ættleiða aftur Leikkonan Angelina Jolie hyggst nú ættleiða annað barn, en fyrir á hún þrjú ættleidd börn og dóttur með eiginmanni sínum, Brad Pitt. Jolie vill nú bæta öðru barni frá Eþíópíu í barnahópinn og segja fjölmiðlar hana og Pitt ætla að leggja land undir fót og halda til Afríku von bráðar. Þrátt fyrir orð- róm um bresti í sambandi parsins virðist ekkert lát vera á ættleiðing- arplönum en leikkonan segist vilja ættleiða annað barn frá Eþíópíu svo að dóttir hennar, hin tveggja ára gamla Zahara sem á uppruna sinn að rekja þangað, upplifi sterkari tengsl við land og þjóð. Leikkonan telur að með þessu skapist einnig ákveðið jafnvægi innan fjölskyld- unnar þar sem synir hennar, Maddox og Pax, koma báðir frá Asíu. Leikkonan sem er velgjörða- sendiherra Sameinuðu þjóðanna hefur verið ötul í baráttu sinni fyrir bættum hag barna víðs vegar um heiminn en hún hefur sagst vilja ættleiða 13 börn og er óhætt að segja að hún verði komin langleið- ina áður en langt um líður. Angelina Jolie og sonur Leikkonan ætt- leiddi Maddox frá Víetnam áður en hún hóf samband við Brad Pitt og fjölskyldan fór að stækka. Fjölskyldan Jolie og Pitt eiga fjögur börn og hafa nú hug á að bæta því fimmta í hóþinn, en skammt er síðan þau ættleiddu hinn 4 ára gamla Pax frá Kambódíu. Winehouse í vímu Söngkonan Amy Winehouse hefur viðurkennt að hún gangi ekki heil til skógar og segist vera háð bæði kókaíni og heróíni. Stjarnan var lögð inn á spítala í alvarlegu ástandi ekki alls fyrir löngu, eftir að hafa tekið ban- væna blöndu af heróíni, helsælu, kókaíni, ketamíni og áfengi en lét ekki segjast og var nokkrum dögum seinna farin að neyta heróíns með eiginmanni sínum, þrátt fyrir að hafa verið við dauðans dyr. Winehouse og spúsi hennar héldu til á hóteli í London þar sem vinkona stjörnunnar kom að henni reykjandi heróín aðeins nokkrum dögum eftir að hún var vakin til lífsins. Ekki rétti tíminn fyrir barn McCartney og Brinkley saman Bítillinn Paul McCartney og ofurfyrirsætan Christie Brinkley hafa sést stinga saman nefjum undanfarið, en til þeirra sást í innilegum samræðum í The Hamptons fyrr í vikunni. Bítill- inn á sumarhús í Hamptons þar sem Brinkley býr og hafa þau verið ágætis vinir undanfarin ár en nú telja fjölmiðlar að eitthvað meira sé í spilunum. Moss fyrirgefur Doherty Ofurfyrirsætan Kate Moss vill nú fá Pete Doherty aftur, en hún sleit sambandi sínu við hann ekki alls fyrir löngu eftir að upp komst að hann hefði sængað hjá annarri stúlku. Skilnaður parsins vakti mikla athygli í fjölmiðlum ytra enda voru þau bæði ófeimin við að tjá sig opinberlega hvort um annað. Moss segist nú ætla að fyrirgefa Doherty en setur þó þau skilyrði að hann fari í meðferð og taki á fíkniefnaneyslu sinni ef sambandið á að ganga. Vinir stjörnunnar eru ekki hrifnir af þessu en þeir höfðu vonast til þess að fyrirsætan myndi nú loksins sjá að sér og gefa Doherty endanlega upp á bátinn. írski leikarinn Colin Farrell seg- ist ekki eiga von á barni með kær- ustu sinni, hinni 22 ára gömlu Muireann McDonnell. Farrell á fyrir þriggja ára gamlan son með fyrrverandi unnustu sinni, Kim Bordenave, en segir annað barn ekki vera á leiðinni. Núverandi unnusta hans er í læknanámi og segir leikarinn að nú sé ekki rétti tíminn til þess að stofna fjöl- skyldu þrátt fyrir að hann hafi lýst því yfir að hann hefði loksins fundið hina einu réttu. Danielson á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð Sufjan til íslands? Bandaríska hljómsveitin Dani- elson kemur fram á tónleikum í Fríkirkjunni þann 5. október næst- komandi, en tónleikarnir eru hluti af dagskrá Alþjóðlegrar kvikmynda- hátíðar í Reykjavík sem fer fram dagana 27. september til 7. október. Hljómsveitin er skipuð systk- inum og frændsystkinum og eru trúarleg stef áberandi í textum sveit- arinnar, en hópurinn hefur vakið mikla athygli víðs vegar um heim- inn og hefur meðal annars verið gerð heimildarmynd um bandið sem kallast Danielson: A Family Movie en myndin hefur farið sigur- för um heiminn síðastliðna mánuði. Tónlistarmaðurinn Sufjan Stevens er ásamt hljómsveitarmeðlimum áberandi í myndinni og hefur forsp- rakki sveitarinnar ýjað að því að hann verði með í íslandsförinni. Danielson hefur starfað í einni eða annarri mynd frá 1995 en árið 2006 kom út platan Ships sem fékk gríðarlega jákvæða dóma hjá tíma- ritum eins og Pitchfork, Rolling Stone, The Guardian og All Music, en á þeirri plötu spilaði Sufjan Ste- vens með systkinahópnum ásamt fleirum og þótti útkoman afar vel heppnuð.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.