blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 30
38
MIÐVIKUDAGUR 15. AGUST 2007
blaöiö
FÓLK
folk@bladid.net
Nei, þeir fóru bara
hvertil annarsí
staðinn!
Gátu einstæðir Bolvíkingar ekki einu sinni hringt í Rauða torgið?
Bima Hjaltalín Pálmadóttir sér um Ástarvikuna
í Bolungarvik, sem fékk „hjálp" frá Símanum
aðfaranótt þriðjudags, þegar lokað var fyrir allt
símasamband í fimmtíu mínútur um nóttina.
Heimamenn voru því ekki truflaðir við iðju sina.
-i
HEYRST HEFUR
Kaupþing blæs til risatónleika
á Laugardalsvellinum á föstu-
daginn, daginn áður en Menn-
ingarnótt Reykjavíkurborgar
verður sett. Er þetta liður í 25
ára afmælisfögnuði fyrirtækis-
ins, sem
sumir
segja
skyggja
á sjálfa
Menning-
arnóttina.
Verður
ekkert til
sparað og er umgjörðin auglýst
sem hin vandaðasta og stærsta
í íslenskri tónlist. Orðrómur
er þó uppi um að Kaupþings-
menn séu farnir að ókyrrast
yfir mögulegri ónógri mætingu
og að Laugardalsvöllurinn
verði, líkt og á landsleikjum,
hálftómur...
Svo virðist sem landsliðs-
fyrirliðinn í fótbolta, Eiður
Smári Guðjohnsen, sé milli
steins og sleggju þessa dagana.
Orðrómur um að hann sé að
ganga til liðs við West Ham er í
hámarki en sjálfur segist hann
vilja vera áfram hjá Barcelona.
Hins vegar hafa katalónsku
risarnir sagt það glapræði af
hans hálfu að vera áfram,
þarsem hann
verði aftarlega
f goggunarröð-
inni á þessari
leiktíð. Þá
Jjk hafa hné-
.-3* i meiðsli
\ Eiðs
W] L gert
honum
lífið
leitt
lengur
en við var
búist, en fá eru þau lið sem taka
áhættuna að kaupa dýra leik-
menn meidda í upphafi móts...
Alcan-ál verið í Straumsvík
hefur ráðið Jón Hannes Stef-
ánsson sem upplýsingafulltrúa
innri mála
fyrirtæk-
isins. Þó
titillinn sé
nýr og áður
óþekktur
innan álversins, tekur Jón í raun
við af Hrannari Péturssyni sem
fór til Vodafone eftir að hafa
tapað kosningunni um stækkun
álversins í Hafnarfirði...
Alma Joensen ..Einnig fer ég með sömu herferð og við
vorum með á íslenska Gay Pride. Hún heitir All Different,
All Equal og er samevrópsk herferð gegn fordómum.
Blaölð/Sverrir
Á leiðinni á Gay Pride í Færeyjum
Öll ólík,
Alma Joensen er fram-
kvæmdastjóri Stúdenta-
ráðs HÍ. Hún er á leið til
Færeyja til að taka þátt
í Gay Pride, en þar eru
miklir fordómar gagnvart
samkynhneigð.
Eftir Lovísu Hilmarsdóttur
lovisa@bladid.net
Anso, norræn samtök samkyn-
hneigðra og tvíkynhneigðra stúd-
enta, standa fyrir fræðslu á Gay
Pride í Færeyjum. Stúdentahreyf-
ingar víðs vegar á Norðurlöndum
munu vera á svæðinu i boði Anso.
Alma Joensen fer fyrir hönd Stúd-
entaráðs Háskóla íslands. „Ég fer
bara ein núna því undirbúningur
hófst í seinna lagi. Anso stendur
fyrir þessu og ætla sér að gera
Gay Pride að árlegum viðburði í
Færeyjum eins og annars staðar á
Norðurlöndum.“
öll jöfn
KONAN
Alma stundar nám í stjórn-
málafræði við Háskóla
íslands.
Hún situr í jafnréttisnefnd
evrópska stúdentaráðsins.
Alma er femínisti.
Færeyingar gamaldags
Alma segir að Færeyingar séu
mjög gamaldags þegar kemur að rétt-
indumsamkynhneigðra.„Lögumfær-
eysku heimastjórnarinnar var breytt
15 desember 2006 þar sem kemur
fram að það megi ekki mismuna sam-
kynhneigðum. Breytingarnar voru
gerðar vegna þess að það var gerð
alvarleg líkamsárás á ungan samkyn-
hneigðan strák. Sökum þess hversu
stutt síðan er að þessi lög tóku gildi,
er ennþá mikið um fordóma. Með
þáttöku okkar í Gay Pride ætlum
við að vekja athygli á því hvað stúd-
entar geta gert til þess að sporna
við þessum fordómum," segir Alma
og bætir við að á næsta ári ætli þau
að reyna að mæta með stóran hóp
til Færeyja og taka þátt í Gay Pride.
„Við hjá Stúdentaráði höfum hugsað
okkur að safna styrkjum og mæta
með öflugan hóp á næsta ári til þess
að taka þátt í þessu. Þetta er svo allt
öðruvísi en hérna heima. Það koma
ekki gagnkynhneigðir og gleðjast
þennan dag yfir því sem hefur áunn-
ist í baráttunni. Það er litið á þetta
sem einhverja prívatsamkomu sam-
kynhneigðra. Þeir fá ekki einu sinni
leyfi fyrir gleðigöngu vegna þess að
löggan neitar að veita gæslu og loka
götum.“
Ein úti á götu
Samkvæmt Ölmu verður stíft
prógramm allan tímann. „Ég tek
þátt í öllu prógramminu þarna. Á
föstudeginum verða til dæmis pall-
borðsumræður um hvernig hægt er
að vinna gegn fordómum. Einnig
fer ég með sömu herferð og við
vorum með á íslenska Gay Pride, en
hún heitir All Different, All Equal
og er samevrópsk herferð gegn for-
dómum. Ég mun standa ein úti á
götu og dreifa miðum og merkjum
með þessu slagorði. Einnig mun
ég reyna að spjalla við Færeying-
ana um þessi mál, en ég er færeysk
sjálf. Færeyingar eru mjög kristnir
og telja samkynhneigð vera synd.
Þegar verið er að gagnrýna þá á
danska þinginu þá mæta færeysku
þingmennirnir upp í pontu með
Biblíuna og vitna í hana til að færa
rök fyrir máli sínu.“
Sjálfsögð mannréttindi Aðspurð
hvort hún búist við einhverju mótlæti
segir Alma að hún búist eingöngu
við því frá eldra fólki. „Ungt fólk í
Færeyjum er aðeins opnara fyrir
þessu, en flestir styðja samt ekki bar-
áttuna. Þess vegna er svo mikilvægt
að utanaðkomandi samtök komi og
styðji við bakið á samkynhneigðum
í Færeyjum til þess að sýna fram á að
réttindi samkynhneigðra eru ekki
þeirra prívatmál heldur sjálfsögð
mannréttindi sem snerta alla.“
SMÁAUGLÝSINGAR
blaðiðs
SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET
Su doku
2 4 1 5 7
5 6 9
8 9 4 5
6 7
3 2 5
4 7 2 8 9 1
9 3 6
6 2 4 3
1
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
HERHIAN
eftir Jim Unger
Nuddaðu þessu á tærnar á þér
þrisvar á dag, meðan þú borðar.