blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 31
blaóiö
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007
39
Hljómsveitin Rhondda & the Runestones:
Eina kabarett-pönkbandið á landinu
Rhondda and the Runestones er
ný hljómsveit sem hefur verið á ferð
og flugi síðustu misserin um Island.
Einar Johnson er gítarleikari sveit-
arinnar, sem verður með tónleika á
föstudagskvöldið næstkomandi.
„Við verðum ásamt Steina, eins og
hann kallar sig, að spila á Bar n á
föstudagskvöldið klukkan 22:30.
Þetta er líflegt og pönkað rokk en
okkur hefur einmitt verið lýst sem
kabarett-pönkhljómsveit, sem mér
skilst að séu áður óþekkt lýsingarorð
i tónlistarbransanum, sem er bara
gott mál!“ segir Einar sem þekkir
vel til söngkonu sveitarinnar.
Fiona Cribben, eða Rhondda eins
og hún kallar sig, er kærastan mín.
BLOGGARINN.
ísland í AA
Ég kynntist henni í London þar
sem ég var í sjö ár. Þar spiluðum
við saman á börum og götum úti
og stofnuðum síðan hljómsveitina
þegar við komum heim til íslands.
Hún er írsk og syngur á ensku. Hún
hefur afskaplega líflega sviðsfram-
komu og er vel þess virði að sjá og
heyra.“
Samkvœmt Einari hefur verið í
nógu að snúast undanfarið.
„Já, við höfum verið að spila tölu-
vert í Reykjavík, svo vorum við á
Neistaflugi fyrir austan um verslun-
armannahelgina sem var alveg frá-
bært. ÞáverðumviðíHellusundinu
á Menningarnótt að spila fyrir JCI-
ungmennasamtökin. Einnig vorum
við að taka upp plötu í Greenhouse
Studios fyrr í sumar. Við tókum upp
átta lög á einum degi, sem þykir nú
býsna gott í bransanum. Síðan erum
við bara að selja plötuna sjálf, aðal-
lega á tónleikum. Reyndar fengu 12
tónar einhver eintök sem þeir eru
að selja fyrir okkur, en annars erum
við mest að harka í þessu sjálf.“
Einar segist ekki alveg klár á
hvaðan hljómsveitarnafnið er
komið.
„Sko, Fiona bjó við götu sem hét
Rhondda Grove í London. Hún hefur
löngum notað þetta listamannsnafn
síðan. En þetta Runestones-nafn
kom sennilega úr einhverju fylliríi
í partíi einhvers staðar líkt og svo
mörg önnur hljómsveitarnöfn. Ég
hreinlega man þetta ekki svo gjörla
í svipinn ef ég á að segja alveg eins
og er. En nafnið er flott, það er nú
það sem skiptir máli,“ sagði Einar
að lokum. Forvitnast má nánar um
hljómsveitina á slóðinni myspace.
com/rhonddarunestones.
„Það er sagt að fyrsta skref alkóhólista i
átt að bata sé að viðurkenna að hann eigi
við vandamál að striða. Það má segja að
islenska þjóðin minni um margt á alkóhól-
ista þegar hún ræðir um varnarmál. Hún
hefurþróað með sérákveðna fikn og held-
ur fast í veruleikaflótta og ranghugmyndir
til að þurfa ekki að fást við hana. Líkt og
alkóhólisti, þarfhun að fást við veruleik-
ann fyrr eða siðar. Fyrr frekar en síðar. “
Hans Haraldsson
polites.blog.is
Golf fyrir
gamalmenni
„Golf er stundum eyðilegging á góðum
göngutúr. Ég er hættur i fótbolta og farinn
aö spila gotf. Eftirþvívið hvern þú talar
þá er þetta ýmist elli- eða þroskamerki.
Sannast sagna fannst mér að ég væri
orðinn ofgamall og vitur til að nenna
lengur að eiga í fótþoltameiðslum stund-
um mánuðum saman og það væri bara
kominn tími á þetta enda þá kominn um
fimmtugt. “
Haukur Nikulásson
haukurn.blog.is
Jæja vinan
„Ég heimsótti þjónustufulltmann íbankan-
um mínum um daginn. Hún lítur út fyrir
að vera jafngömul mér og hún kallaði mig
„vinu". Að viðskiþtum okkarloknum sagði
ég henni frá þvíað ég kynni illa við að
vera kölluð „vina" af ókunnugri manneskju,
konu sem væri jafngömul mér. Mér fynd-
ist nánast vera talað niður til mín, ekki síst
þar sem samtalið ætti sér stað í banka.
Þjónustufulltrúinn tók athugasemd minni
ágætlega, sagði að þetta væri bandarískt
þjónustuviðmót sem starfsmönnum bank-
ans væri kennt."
Guðrún Helga
blogg.visir.is/gudrun
ÚTSALA
Faxafeni 10
Verðhrun!
Nú 2 fyrir 1
af öllu
útsölu líkur
föstudaginn 17.ágúst.
Nú er hægt að gera
hlægilega
skemmtileg kaup
Faxafeni 10
www.friendtex.is Sími 568 2870
Opið: mánudaga - föstudaga 10.00- 18.00
Lokað á laugardögum