blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 1
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST
Framsækinn mennta-
skóli í Borgarnesi
írskur námsmaö-
ur berar sig
Lífrænt fæöi í leikskóla
20
Tímastjómun
er lykilatriöi
22
Glatt á hjalla hjá Námsgagnastofnun
Fyrstir með háskerpusjónvarp á íslandi
Sjónvarp Simans - kiktu í næstu verslun Simans og sjáóu muninn
(•|
Það er Síminnv
i SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 AUGLYSINGAR@BLADID.NET
Finnst gaman að
læra stærðfræði
22
Menntun fyrir norn-
ir og sirkusfólk
23
Árleg haustsýning
Mánudaginn 20. ágúst heldur Námsgagnastofnun árlega haustsýningu á
námsefni í öllum greinum og fyrir alla aldurshópa grunnskólans. Sýningin
er haldin í Árbæjarskóla og er opin frá 09.00-16.00 og eru allir velkomnir.
„Þetta er í fjórða skipti sem við höldum slíka sýningu," segir Hrafnhildur
Hafsteinsdóttir, kynningarstjóri Námsgagnastofnunar. „Aðsókn hefur auk-
ist ár frá ári en bæði kennarar og foreldrar eru velkomnir á sýninguna til
að kynna sér námsefni sem í boði er hjá okkur. Mikið hefur verið gefið út
af rafrænu efni á undanförnum árum og er vefurinn okkar www.nams.is í
mikilli sókn. Hann er nú mikið notaður bæði afkennurum og foreldrum og
börnum en inni á honum er mikið námsefni og skemmtilegir og fræðandi
námsleikir. Foreldrar geta einnig sótt foreldraefni, kennsluleiðbeiningar og
lausnir sem allt er vistað á www.nams.is. Með því að nýta sér vefinn okkar
geta foreldrar styrkt og stutt við heimanám barnsins.“
Hrafnhildur segir að Námsgagnastofnun hafi hannað krakka- og ung-
lingasíður sérstaklega fyrir foreldra og börn en þar er auðvelt að finna alla
gagnvirka leiki stofnunarinnar sem og námsvefina. Inni á krakka- og ung-
lingasíðunum eru t.d. vefir sem kenna krökkum á stafina, hljóð þeirra, staf-
setningaræfingar, mikið magn af alls kyns stærðfræðivefjum fyrir allan
aldur, hægt er að læra á klukku og svo má lengi telja.
Oft eru foreldrar í vandræðum með tölvunotkun barna sinna - en inni á
www.nams.is geta foreldrar verið fullvissir um að börnin læri á meðan þau
eru að leika sér.
Á www.nams.is
má finna ýmislegt fróðlegt
og skemmtilegt fyrir krakka á
öllum aldri. Vefurinn er opinn
fyrir alla.
KRAKKASÍDUR
UNGUNCASÍÐUR
NÁMSGAGNASTOFNUN
CAGNVIRKT EFNI OG LEIKIR - HEIMA OG í SKÓLANUM