blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 2
18
SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007
blaöiö
Aukin ökuréttindi - Meirapróf
Nýlegir kennslubflar
ÖKU
SKOLINN
IMJODD
Næsta námskeið byrjar 22. ágúst
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300
■ Haust 2007
FÖSTUDAGAR
510 3744 blaðiö=
LÍFSSTÍLLBÍLAR
Auglýsingasíminn er
Menntaskóli Borgarfjarðar
Viljum byggja á
þekkingu nemenda
fslenskum mennta-
skólum fjölgar um einn
í lok mánaðarins þegar
nýr menntaskóli tekur til
starfa í Borgarnesi. Skól-
inn verður kærkomin
viðbót í menntunarflóru
landsmanna en hann
mun brydda upp á
mörgum nýjungum.
Eftir Viggó Ingimar Jónasson
viggo@bladid.net
Nú í lok ágúst verður Menntaskóli
Borgarfjarðar settur í fyrsta sinn.
Þessi nýi framhaldsskóli mun þó ekki
hefja starfsemi sina á sínum ætlaða
stað þar sem bygging skólahúss hefur
tafist nokkuð. Aðstandendur skólans
eru þó hvergi bangnir og hefja þess í
stað kennslu í Safnahúsi Borgarness
sem breytt hefur verið í fyrirtaks
kennsluhúsnæði. Það mun geta tekið
á móti þeim fjölda nemenda sem
búnir eru að skrá sig í skólann.
„Við reiknuðum með 47 nemendum
í upphafi og nú eru þeir orðnir rúm-
lega 60. Þetta eru mest nemendur úr
Borgarnesi og héraðinu en annars
koma nemendur víða að og eru á
öllum aldri. Við erum líka að taka inn
nemendur á öðru ári og það eru yfir
tuttugu nemendur sem eru að koma á
annað ár,“ segirÁrsæll Guðmundsson,
skólastjóri hins nýja menntaskóla.
Skólasetning í Skallagrímsgarði
Skólinn verður settur utandyra
miðvikudaginn 22. ágúst í Skalla-
grímsgarði í Borgarnesi. Ársæll segir
nokkrar ástæður liggja þar á bak við.
„Okkur finnst ágætt að vera undir
beru lofti í fallegri umgjörð í Skalla-
grímsgarði. Svo höfum við náttúrlega
ekki ennþá fengið skólahúsið okkar,
það verður ekki fyrr en í lok ársins
sem við flytjum þangað inn. Því
fannst okkur allar aðstæður benda
á Skallagrímsgarð og ég vona að það
verði bara hefð að skólahaldið hefjist
þar. Þangað eru allir velkomnir og
svo bjóðum við fólki að ganga með
okkur í Safnahúsið, þar sem skólinn
mun hefja starfsemi, og þiggja veit-
ingar hjá okkur.“
í samstarfi við Apple
Menntaskólinn mun í starfi sínu
bjóða upp á margar nýjungar sem tiðk-
ast ekki í öðrum framhaldsskólum.
Biaðið/RAX
Ársæll Guðmundsson
Er bjartsýnn á gengi hins
nýja menntaskóla.
Til dæmis munu þeir sem skrá sig í
skólann fá Apple-fartölvu að láni á
námstímanum en skólinn er i nánu
samstarfi við Apple.
„Nemendur sem koma í nánast fullt
nám fá fartölvu en þeir sem eru í ein-
stökum áföngum fá ekki fartölvu. Við
munum leggja mikla áherslu á að þróa
með Apple bæði hugbúnað og tækja-
búnað, iPoda og síma þess vegna, til
að nota i námi og kennslu. Þetta er
gagnkvæmt samstarfsverkefni.“
Ársæll segir að skólinn vilji byggja
á þekkingu nemenda til að þróast.
„Otgangspunkturinn er þessi að skoða
hvað nemendurnir, þessi margmiðl-
unarkynslóð, eru að gera, hvaða tæki
þeir eru að nota. Þeir eru á kafi í því
að nota tæki eins og iPoda, fartölvur,
SMS, MSN og hvaðeina. Við ætlum
ekki að banna þetta, eins og skólar
gera stundum, heldur ætlum við að
virkja og byggja á þekkingu nemenda
í upplýsingatækni.“
Þarf ekki dýran hugbúnað
í menntaskólanum hyggjast
menn taka Netinu og öllu því sem
leynist þar opnum örmum. „Við
hyggjumst útfæra hugtakið opinn
skóli yfir í að kenna nemendum að
nota open source, það er að segja
MENNTASKÓLINN
Áætlað er að nemendagarð-
ar við skólann verði teknir í
notkun haustið 2008.
Skólinn mun ekki hafa hefð-
bundin próf heldur verða
nemendur metnir yfir alla
önnina.
í Borgarbyggð búa um það
bil 3700 manns og er sveitar-
félagið í vexti.
Fullkláraður mun skólinn
geta tekið á móti um 200
nemendum.
ókeypis hugbúnað sem er á Netinu,
ekki kenna þeim að nota rándýran
hugbúnað eins og Windows Office
heldur að gera þau algjörlega sjálf-
bjarga með open source-pakkana.
Við, skólinn, munum væntanlega
líka keyra mjög mikið á því líka
og sýna fram á að það þarf ekki
að vera háður einhverjum fyrir-
tækjum eða framleiðendum.“ Það
er ljóst að það er mjög metnaðar-
fullt starf sem er að hefjast í Borg-
arnesi og er því við hæfi að óska
Borgfirðingum til hamingju og
góðs gengis.
Gyrti niöur um sig í Senegal
Það borgar sig að hegða sér vel
í útlöndum sem og annars staðar
því að annars gæti illa farið. Því
fékk ungur nemandi frá Belfast að
kynnast nýlega og sér ekki enn fyrir
endann á því máli. Patrick Devine
sem er 19 ára nemandi frá Belfast
var handtekinn 27. júlí síðastliðinn
fyrir að ögra fólki með því að gyrða
niður um sig við heimili ríkisstjóra
í Senegal.
Hann situr nú í fangelsi fyrir at-
hæfið og er talið að hann sé í klefa
ásamt 40 öðrum föngum. Patrick er
nemendi í Queen's-háskólanum og
var hann staddur í Senegal á skóla-
námskeiði. Þegar Patrick var hand-
tekinn hafði hann þá þegar upplifað
mjög erfiða viku því hann hafði
smitast af hlaupabólu og hluta af tá
á fæti hans þurfti að fjarlægja vegna
sýkingar sem hann hafði hlotið.
Þegar breskir fjölmiðlar höfðu
samband við fjölskyldu Patricks
vildi hún lítið tjá sig um málið en
hún vildi koma því á framfæri við
fjölmiðla að þau myndu ekki ræða
þetta mál vegna þess hve erfitt og
viðkvæmt það er.
En náinn fjölskylduvinur sagði
að Patrick yrði líklega í varðhaldi
þar til í lok ágúst.
írska utanríkisráðuneytið stað-
festi að starfsmaður Irlands í sendi-
ráðinu í Nígeriu væri að vinna að
málinu og reyndi hvað hann gæti að
fá Patrick sleppt úr fangelsinu.
Það eina sem talsmaður nám-
skeiðsins sem Patrick sótti vildi
segja um málið var að allt kapp
væri lagt á að Patrick losnaði sem
fyrst.