blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 4
SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007
4-
blaóiö
LAUGARDAGAR
510 3744 blaði6=
ORÐLAUSLÍFIÐ
Auglýsingasíminn er
Námskeið í tímastjómun
Forgangsröðun
er lykilatriði
Tíminn er af skornum
skammti og fæstir hafa
nægan tíma til að sinna
öllu sem þeir vildu. Með
tímastjórnun má koma
meiru í verk á styttri tíma.
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu Guðmundsd.
svanhvit@bladid.net
I haust býður Endurmenntun Há-
skóla íslands upp á námskeið í tíma-
stjórnun þar sem Thomas Möller
hagverkfræðingur er leiðbeinandi.
Thomas segir að tímastjórnun sé al-
gjört lykilatriði ætli fólk sér að njóta
velgengni í lífinu. „Velgengni er að
ná settu marki eða vera á réttri leið
að settu marki og tímastjórnun er
því grundvallaratriði. Allir stjórna
tíma sínum en ég hjálpa fólki að gera
það betur. Námskeiðið felst i því að
hjálpa fólki að stjórna tíma sínum
betur til að koma meiru í verk á
styttri tíma. Miðpunktur hjá okkur
öllum er tímastjórnun, hvernig við
stjórnum tíma okkar og hvernig við
notum timann. Allir kvarta undan
því að hafa ekki nægan tíma en
í rauninni hafa allir jafn mikinn
tíma en hins vegar eru sumir með
of mikið af verkefnum."
Verkefnastjórn
Thomas talar um að lykilatriði
í tímastjórnun sé forgangsröðun.
„Til að geta forgangsraðað þá er
nauðsynlegt að hafa skýr markmið.
Með því að vita markmiðin er auð-
veldara að forgangsraða. Það má því
segja að tímastjórnun fjalli bæði
um vinnuna, einkalífið og sam-
spilið þar á milli,“ segir Thomas og
tekur vinnuna sem dæmi. „1 vinn-
unni eru ákveðin verkefni sem þarf
að vinna. Tímastjórnun er því verk-
efnastjórnun, hvernig maður tekur
á móti 'verkefnum, kemur þeim á
sína dagskrá, forgangsraðar þeim,
fylgir þeim eftir og lýkur á réttum
tíma.“
Hugsun á blaði
Thomas segir að tímastjórnun
sé ekki síst mikilvæg í nútímasam-
félagi enda séu kröfurnar, sam-
keppnin og verkefnin að aukast.
Að sama skapi séu tækifærin fleiri.
„Nútímafólk verður að kunna grund-
vallaratriði tímastjórnunar til að ná
árangri. Tímaþjófar eru margir og
margvíslegir en sá stærsti þeirra er
skortur á markmiðum. Ef þú hefur
engin markmið þá skiptir engu
máli hvað þú gerir. Að fresta sífellt
verkefnum er líka mikill tímaþjófur
og það getur verið gagnlegt að setja
markmið á blað. Á námskeiðinu
kenni ég fólki að hugsa á blaði sem
er ótrúlega öflugt tæki. Ef þú hugsar
á blaði þá nærðu betri yfirsýn bæði
yfir markmið og verkefni. Auk þess
er það slakandi og þú færð ákveðna
hugarró með því að setja á blað það
sem þú ert að hugsa.“
Skráðu þig fyrir 20. ágúst
meira nam-meiri metnaður
www.akademian.is
íþrótta
akademían
Böm að leik Betra er
[4 ' 4M jt. aö klæða siq í mörq löq
1 M en eina þykka flík.
66°Norður
Hugað að klæðnaði barna
Einn af kostum þess að búa á
litla Islandi er að börnin okkar geta
leikið sér úti í tiltölulega ómenguðu
lofti. Hins vegar fylgir það því að
búa uppi við heimskautsbaug að hér
þarf að huga að útbúnaði og klæðn-
aði barnanna mun betur en víða
sunnar í álfunni. { leikskólanum
fara krakkarnir út að leika sér nán-
ast í hvaða veðri sem er, hvort sem
sumarsólin skin eða Vetur kon-
ungur blæs harkalega í fangið á
börnunum okkar. Því er nauðsyn-
legt að foreldrar hafi í huga nokkur
lykilatriði þegar keypt eru vetrarföt
á börnin.
Oft halda foreldrar að því þykkari
og þyngri sem vetrarflíkin sé því
hlýrri og betri. Þetta er ekki raunin
þar sem tækninni í framleiðslu fatn-
aðar hefur fleygt fram síðustu árin
og léttari og liprari efni hafa komið
fram á sjónarsviðið. I barnafatnað-
inum hjá 66°Norður er einungis
notað fyrsta flokks efni frá þekkt-
ustu efnaframleiðendum í heimi;
sömu efni og eru notuð í fullorðins-
línu fyrirtækisins því þar á bæ trúa
menn því að yngstu fjölskyldumeð-
limirnir eigi rétt á að fá sömu gæði í
fatnaði og foreldrarnir.
Meðal efna sem 66°Norður notar
í útifatnaði sínum eru mjög einangr-
andi efni sem halda inni hitanum,
bægja frá kulda og bleytu og gera
barninu kleift að athafna sig að
vild auk þess að hleypa út svita sem
myndast vegna hamagangsins. Um
leið og efnin hafa alla þessa kosti þá
eru þau létt og lipur sem gerir barn-
inu kleift að hreyfa sig óhindrað
og fá þannig miklu meira út úr
útiverunni.
Grundvallaratriði við val á fatn-
aði á börn er að kynna sér gæðin.
Góðar flíkur endast betur og eru
yfirleitt léttari og þægilegri fyrir
börnin að vera í. Það er því gott að
foreldrar hafi í huga mikilvægi þess
að börnin séu vel klædd fremur en
mikið klædd.
4