blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 6
22 SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 blaðið Heimsferðir bjóða síðustu sætin í ágústsólina austan hafs og vest- an, á hreint ótrúlegu verði. Tryggðu þér sumarfrí á frábærum kjör- um! Nánari á www.heimsferdir.is. Rhodos - síðustu sætin UPPSELT örfá sæti örfá sæti Fuerteventura - síðustu sætin UPPSELT 19 sæti örfá sæti - 2 vikur Montreal - Kanada - síðustu sætin UPPSELT 19 sæti örfá sæti örfá sæti Mallorca - síðustu sætin UPPSELT örfá sæti nokkur sæti Costa del Sol - síðustu sætín UPPSELT örfá sæti nokkur sæti Króatía - síðustu sætín UPPSELT örfá sæti örfá sæti £7* Munið Mastercard '*j feröaávísunina Heimsferðir Frábær sértilboö - síöustu sætin Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Barcelona - síðustu sætín 3. ágúst UPPSELT 10. ágúst 6 sæti frákr. 19.990 17. ágúst 14 sæti - vikuferð ffá kr. 49.990 24. ágúst 16 sæti - vikuferð frá kr. 49.090 Alicante - Benidorm - síðustu sætín 9. ágúst 6 sæti lfákr. 14.990 16. ágúst 11 sæti frá kr. 34.990 23. ágúst örfá sæti frá kr. 34.990 30. ágúst nokkur sæti frá kr. 39.990 Waldorfleikskólinn Sólstafir Frjáls leikur og lífrænt fæði Sólstafir starfrækja tvo leikskóla og einn grunn- skóla undir merkjum Waldorfstefnunnar. Skólarnir byggja á stefnu Rudolfs Steiners, en hann skapaði hugmyndafræði sem nefnd hefur verið mannspeki. Eftir Sigrúnu Maríu Einarsdóttur sigrun@bladid.net „Eitt af meginmarkmiðum leik- skólans er að skapa kærleiksríkt and- rúmsloft þar sem barnið fær að vaxa og blómstra. Við reynum að skapa andrúmsloft sem er til eftirbreytni. Málshátturinn „Það læra börnin sem fyrir þeim er haft“ er mikil- vægur í því samhengi,“ segir Helga Óskarsdóttir sem er starfsmaður leikskólans Sólstafa. Börnin hjálpa til Helga segir að mikil áhersla sé lögð á að börnin fái að njóta sin í frjálsum leik þar sem þau fá að styrkja viljann og ímyndunaraflið. „Þetta er mjög góður grunnur fyrir komandi skólagöngu. Börnin á leik- skólanum fá að taka þátt i öllum heimilisstörfum. Við búum til leikföngin sjálf sem börnin leika sér síðan með og við vinnum bæði með við og ull. Börnin geta horft á starfsfólkið vinna og jafnvel fengið að taka þátt eftir því sem þau hafa getu og löngun til. Eftir að hafa horft á starfsfólkið vinna fara þau og taka verkefnið inn í frjálsa leik- inn. Til dæmis ef starfsmaður er að skera grænmeti þá fer barnið ef til vill og leikur sér á sama hátt og það sá starfsfólkið gera. Barnið speglar umhverfi sitt mjög sterkt í frjálsa leiknum. Þar sem við leggjum mikla áherslu á þennan frjálsa leik þurfum við að vera verðugir ein- staklingar til að vinna í kringum börnin.“ Helga segir að markmiðið með þessum frjálsa leik sé að börnin verði skapandi einstaklingar. Lífrænt ræktað grænmeti í Waldorfskólunum er mikið lagt upp úr hrynjandi en með því er átt við að ákveðinni stefnu er fylgt í gegnum daginn, vikuna og mán- uðinn. „Með þessu getur barnið gengið mjög öruggt inn leikskóla- starfið. Hver dagur hefst á morgun- söng þar sem við bjóðum fuglunum, blómunum, steinunum og okkur sjálfum góðan dag. Við bjóðum líka upp á lífrænt ræktaðan mat og þá eingöngu grænmetisfæði." Aðspurð hvort þau börn sem væru í Waldorfleikskólum lifðu einnig eftir svipaðri stefnu heima hjá sér sagði Helga að það væri mjög misjafnt. „Vissulega eru margir for- eldrar barnanna hallir undir lífrænt ræktaðan mat og grænmetisfæði en það er alls ekkert skilyrði. Yfirleitt verða foreldrarnir snortnir af því RUDOLF STEINER Var fæddur árið 1861 og lést árið 1925 Stofnaði fyrsta Waldorfskól- ann í Stuttgart árið 1919 Talið er að um 950 Waldorf- skólar og 1400 Waldorfleik- skólar séu starfræktir í heiminum. hvernig barnið leikur sér í leikskól- anum og fara yfir barnaherbergið og einfalda leikfangaflóru barnsins.“ Helga segir að mikill fjöldi starfs- fólks sem starfar við Waldorfskólana á íslandi sé með Waldorfkennara- eða leikskólakennarapróf erlendis frá. „Það eru til háskólar um allan heim þar sem hægt er að læra að verða Waldorfkennari. I kringum þá skóla eru líka oft bændaskólar sem kenna fólki lífræna ræktun. Starfs- fólk okkar hlýtur góða símenntun. Það koma kennarar erlendis frá til okkar og síðan förum við öll til útlanda til þess að bæta við okkur,“ segir Helga að lokum. Áhugavert nám 9 mánaða einkaþjálfaranám Íþróttaakademían og Sport- menntun standa fyrir 9 mánaða löngu einkaþjálfaranámi sem hægt er að taka með vinnu og/eða öðru námi. Markmiðið með náminu er að skapa framúrskarandi einkaþjálf- ara sem hafa yfirgripsmikla þekk- ingu á heilbrigði einstaklingsins og hæfni til að búa til einstaklings- miðaðar þjálfunaráætlanir á sviði styrktar- og þolþjálfunar. Þau atriði sem aðskilja í AK-einka- þjálfaranámið frá öðru einkaþjálf- aranámi eru: • Mikil áhersla er á verklega kennslu samhliða þeirri bóklegu þar sem starf einkaþjálfarans er fyrst og fremst verklegt starf. Farið verður sérstaklega vel í allar æfingar og teygjur og nemendum skipt niður í hópa til að læra þær sem best. • Þjálfunarfræðin miðast ekki við „eitt æfingakerfi fyrir alla” heldur verður nemendum í einkaþjálfun hér á landi í fyrsta skipti kennt að greina stoðkerfi einstaklinga út frá líkamsstöðu og hreyfingu. Styrktar- og teygjuþjálfun í kjölfarið byggir á þessum greiningum til að ná há- marksárangri og lágmarka meiðsl. • ÍAK-einkaþjálfaranámið er ein- stakt að því leytinu til að þar verður kennd meiðslafræði. Kennt verður hvernig er ákjósanlegast að setja upp æfingakerfi með meiðslafor- varnir í huga og hvernig er hægt að þjálfa einstaklinga með væg stoð- kerfismeiðsl. Kenndar verða fjöl- margar æfingar sem eru viðeigandi fyrir þjálfun á einstaklingum með bak-, axlar- eða hnémeiðsl. • Áhersla er á heilbrigði einstak- lingsins, meiðslaforvarnir og upp- byggingu eftir meiðsl. • Nemendur læra fjórar mismun- andi teygjuaðferðir til að teygja á vöðvum við mismunandi aðstæður í stað hinnar hefðbundnu aðferðar. Nemendum verður kennt hvenær mismunandi teygjuaðferðir eru við- eigandi, hvaða vöðva er viðeigandi að teygja og hverja er óviðeigandi að teygja í samræmi við greiningu á stoðkerfi einstaklingsins. • Auk styrktarþjálfunar verður einnig kennd snerpu- og „agility-þjálfun”. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.akademian.is. Bestur í stærðfræöi Adam Jens Jóelsson 12 ára „Ég held ég byrji 22. ágúst í skólanum og ég er orðinn frekar spenntur. Uppáhaldsfög mín eru stærðfræði og íþróttir. Mér finnst það skemmtilegast því ég er góður í því. Ég hlakka líka til að hitta vini mína og kennarana." SKÓLABYRJUN

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.