blaðið - 17.08.2007, Blaðsíða 1
Ómissandi
með gríllmatnum!
2000 fá ekki vistun
■ Fjöldi foreldra í óvissu um barnagæslu eftir skóla ■ Einungis hefur tekist að ráða í fjórð-
ung staðna á frístundaheimilum ■ Ástandið sérstaklega erfitt fyrir foreldra fatlaðra barna
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Einungis er búið að ráða 80 af þeim 307 starfs-
mönnum frístundaheimila iTR sem þarf til að
geta samþykkt þær umsóknir sem borist hafa
um vistun, nú þegar innan við vika er í að starf-
semin hefjist, segir Soffía Pálsdóttir, skrifstofu-
stjóri tómstundamála hjá ÍTR. 2.744 umsóknir
hafa borist um vistun á frístundaheimilunum.
Af þeim hafa einungis um 700 verið samþykktar,
en 2000 börn eru á biðlista.
Næst ekki fyrir skólabyrjun
„Þetta er mikið áhyggjuefni og við höfum sett
þessi mál í forgang. Það er alveg ljóst að við náum
ekki að ráða þá starfsmenn sem þarf til að finna
öllum þessum börnum pláss fyrir 22. ágúst þegar
skólar hefjast," segir Soffía.
Hún segir ástandið verra en í fyrra. „Líklega eru
það bæði lág laun og erfiður vinnutími sem valda
FRÍSTUNDAHEIMILIITR
► Frístundaheimilin bjóða upp á tóm-
stundastarf fyrir krakka á aldrinum 6
til 9 ára þegar hefðbundnum skóladegi
lýkur og til loka vinnudags.
V'„> Ófaglærðir starfsmenn frístundaheim-
~ ila fá um 150 þúsund krónur á mánuði
fyrir fullt starfshlutfall, en háskóla-
menntaðir um 200 þúsund.
W Flestir vinna hins vegar einungis 30 til
^ 40 prósenta starf - þar sem heimilin
eru einungis opin um 3 tíma á dag, og
fá greitt eftir því.
þessum erfiðleikum hjá okkur,“ segir Soffía.
Ástandið kemur sér sérstaklega illa fyrir for-
eldra barna í Öskjuhlíðarskóla, segir Katrín Þór-
dís Jacobsen, deildarstjóri í frítímastarfi fatlaðra
barna hjá ITR, en í skólann ganga börn sem eiga
erfitt með að ganga í venjulega skóla sökum fötl-
unar. Við frístundaheimili skólans vantar að
ráða 45 starfsmenn, sem er um tveir þriðju hlutar
alls starfsfólks.
„Þessi börn geta alls ekki verið ein heima en við
neyðumst til að neita krökkum um pláss þangað
til okkur tekst að manna allar stöður,“ segir
Þórdís.
Staðan er einnig slæm fyrir foreldra barna með
hegðunarvandamál. Anna Rós Jensdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Foreldrafélags barna með ofvirkni-
og athyglisbrest, segir börnunum iðulega neitað
um pláss á frístundaheimilum þegar mannekla
er, þar sem þau valda meira álagi á starfsfólkið
en önnur börn.
ÞEKKIRÞÚTIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða sendu
póst á bladid@bladid.net
40% starfsmanna
útlendingar
Yfir 40 prósent starfsmanna við
umönnun á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum eru af erlendum
uppruna. Svipaður fjöldi útlend-
inga starfar við umönnun á
hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Aflþynnan flýtir
virkjunaráformum
Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar
segir að bygging aflþynnuverk-
smiðju á Ákureyri muni auka
álagið á raforkukerfip. Það verði til
þess að flýta fyrir virkjunarfram-
kvæmdum annars staðar á
landinu. O
n
n
Hann er búinn að keppa á Trabant frá því að hann byrjaði.
Eina alþjóðlega rallkeppnin sem haldin er hérlendis ár hvert hófst í gær. Örn Reykdal Ingólfsson, á Trabantinum
Dala, var fremstur í flokki. Hjalti Hafsteinsson, tengiliður keppenda, segir hann kalla bílinn Dala af því að hann
hafi verið Dalabóndi, en búi nú á höfuðborgarsvæðinu. „Hann er búinn að keppa á Trabant frá því að Q
hann byrjaði að keppa í rallíinu á áttunda áratugnum,“ segir Hjalti. á fcO
26 áhafnir í alþjóðlegri rallkeppni
Geit étur
evrur
Þýskur bóndi lenti í miður
skemmtilegu atviki á dög-
unum. Geit sem bóndinn á át
10 þúsund evrur sem hann átti
og hafði óvart skilið eftir þar
sem geitin komst í þær.
Ákveðið var að framkvæma
uppskurð á geitinni til að ná
peningunum aftur. Það tókst
enda hafði geitin gleypt marga
seðlana í heilu lagi en bóndinn
þurfti að borga dýralækninum
fyrir aðgerðina og er hann því
300 evrum fátækari í dag. sme
NEYTENDAVAKTIN
Vextir verðtryggðra lána
Fyrirtækl
Lífeyrissjóðurinn Stapi
LSR
íbúðalánasjóður
Landsbankinn
Glitnir
Kaupþing
4,75%
4,85%
5,10%
5,2%
5,2%
5,95%
Vextir verðtryggðra lána
Upplýslngar frá Neytendasamtökunum ÍS5
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
wm USD 69,37 3,43 ▲
GBP 137,62 2,99 ▲
■■■ DKK 12,5 12,86 ▲
• - JPY 0,61 6,19 ▲
m EUR 93,06 2,88 ▲
GENGISVÍSITALA ÚRVALSVÍSITALA 126,66 3,06 A 7.571,94 -3,80 ▼
VEÐRIÐ I DAG
VEÐUR»2
SÓ FADAGAR!
Allir sófar á afslætti
STAD
OU'arcð
Reykjavík: Mórkin 4. s. 53
Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-15
00 Akureyri: Hofsbót 4, s. 462 3504 tgilsstaðir: Miðvangur 1, s: 471 2954