blaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 1
Syngur fyrir Bergmál
Halla Margrét Árna-
dóttir lætur um helgina
gottafsér leiða og
syngurtil styrktar
Bergmáli, líknar-
og vinafélagi
langveikra.
LK»46
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKtYPlS!
Mats í 70 ár
Augnagaman ertitill Ijós-
myndasýningar Mats Wibe
Lund sem opnuð verður í
húsnæði Orkuveitunnar á
morgun. Ljósmyndarinn
lítur um öxl í tilefni sjö-
tugsafmælis síns.
MENNING»32
-■
Fyrsta skólaminningin
„Á fyrstu árunum í skól-
anum eignaðist ég mína
allra bestu vini," segir Þor-
björg Helga Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi. Grunn-
skólar landsins verða
settir í næstu viku.
SPJALLIл3
Ég var tilbúin að berjast
"rf-‘ i ■ jH l ■ í 1
MYNO/G.RÚNAR ; i ‘iiz&W
//
n
Þetta var næstum því fáránlegt ástand.
„Það þótti óttalegt bull að kenna konum að slaka á og fræða þær um fæðing-
una. Þeir sem hæst létu sögðu að konur hefðu fætt börn frá örófi alda án
þess að fá fræðslu. Ég krafðist þess líka að móðirin fengi barnið í fangið
um leið og það fæddist, sem hafði ekki verið til siðs,“
segir Hulda Jensdóttir íjósmóðir. JV'JO
Þegja yfir
mistökum
í apótekum
■ Ekki öll afgreiðslumistök tilkynnt til Lyfja-
stofnunar ■ Fáir lyfjafræðingar í apótekum
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
Þrenn mistök við afgreiðslu lyfja
hafa verið tilkynnt til Lyfjastofn-
unar það sem af er árinu en sextán
árið 2005 og sjö árið 2006. Telur
Lyfjastofnun að lyfsalar láti stofn-
unina ekki vita af öllum þeim mis-
tökum sem þeim ber að tilkynna.
Regína Hallgrimsdóttir, sviðs-
stjóri eftirlitssviðs Lyfjastofnunar,
segist ekki hissa á því ef fáliðun
faglærðs starfsfólks í apótekum á
íslandi skýri að hluta til mistökin
sem verða.
„Þar sem eru margir ófaglærðir er
álagið gífurlegt á þá faglærðu. Það
eru náttúrlega ákveðnir hlutir sem
lyfjafræðingar eiga að skoða þegar
þeir taka við lyfseðlum, en þær að-
stæður sem myndast þegar of fáir
lyfjafræðingar eru á vakt bjóða hætt-
unni heim.“
í lyfjalögum segir að í apótekum
eigi að vera minnst tveir lyfjafræð-
ingar að störfum, nema veitt hafi
verið undanþága frá því. „Það er
hins vegar okkar tilfinning að ekki
séu alltaf tveir lyfjafræðingar að
störfum í þeim apótekum þar sem
ættu að lágmarki að vera tveir,“
segir Regína. Blaðið hefur heimildir
fyrir því að í sumum apótekum sé
aðeins einn lyfjafræðingur á vakt.
Einstaklingar tilkynni mistök
Lyfsalar eiga að tilkynna Lyfja-
stofnun þegar einstaklingar fá
afgreidd röng lyf eða rangan styrk-
leika lyfja, þar sem mistökin flokk-
ast sem alvarleg. „Við hvetjum því
einstaklinga sem hafa fengið röng
lyf afgreidd í lyfjabúðum að til-
kynna það til Lyfjastofnunar," segir
Regína. „Við höfum beðið apótek að
vera duglegri að tilkynna okkur en
það eru líklega ekki allir sem hafa
sinnt þeim tilmælum."
ÞEKKIRÞÚTIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
MÖNNUN LYFJABÚÐA Á OPNUNARTÍMA
Lyfjafræðingar í apótekum ísland 1,3 Danmörk 2,6 Noregur 3,3 Svtþjóð 9,4 Finnland 8,4
Lyfjatæknar í apótekum 0,7 7,9 4,2 2,8 5,4
Annað starfsfólk í apótekum 2,2 25 1,6 0 0
Starfsfólk samtals 4,2 13,0 9,1 12,2 13,8
Ávísanir á faglærðan starfsmann 18.000 12.000 6.200 6.500 4.400
'Samkvæmt upplýsingum frá Lyfjastofnun
Vissu að ferjan
kostaði meira
Fulltrúar samgönguráðuneytis,
fjármálaráðuneytis og Vegagerðar-
innar vissu að ný Grímseyjarferja
kostaði mun meira en heimild var
til áður en skipið var keypt. VV^
Þetta var skráð í fundargerð./#
Verðlag hækkar
strax um helgina
Skúli J. Björnsson, formaður
Félags íslenskra stórkaupmanna,
spáir því að neytendur finni fyrir
almennum verðlagshækkunum á
innfluttum vörum jafnvel iy*
strax um eða eftir helgina. /#U
Fyrsta
geimhótelið
Til stendur að opna fyrsta
geimhótelið árið 2012 og þar
mun gestum gefast kostur á að
ferðast í kringum hnöttinn á
80 mínútum.
Hótelið verður dýrasta hótel
sögunnar því þriggja daga
dvöl mun kosta 280 milljónir
króna. Búið er að reikna út að
um 40 þúsund einstaklingar i
heiminum hafi efni á að dvelja
á hótelinu.
sme
NEYTENDAVAKTIN
Vextir án lágmarksinnistæðu
Fyrirtæki
Byr: Netreikn. grunnþrep 12,50%
Spron: Vaxtabót 12,40 %*
KÞ: Kostabók, Markaðsreikn. 9,45%**
Glitnir: Uppleið 9,25%
Ll: Vörðureikn. 1. þrep 8,55%***
'Úttektargjald hjá gjaldkera ekki á Netinu** Bundið í 10
daga***Eitthvað at öðrum viðskiptum
Vextir án lágmarksinnist. og aðeins bundið í fáeina daga
Upplýsingar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
n USD 67,56 -2,62 ▼
íSJ5( GBP 134,57 -2,21 ▼
■ 1 II DKK 12,28 -1,83 ▼
• JPY 0,59 -2,78 ▼
B EUR 91,34 -1,85 ▼
GENGISVlSITALA ÚRVALSVÍSITALA 124,11 -2,02 ▼ 7.794,91 2,9 ▲
VEÐRIÐ í DAG
VEÐUR»2
VEXTIR FRÁ ... að það er hægt að létta ■ 1
AÐEINS Þannia er mál a l7
Miðað við myntkörfu 4, Líbor-vextir 24.7.2007. meö vexti ... v—/ greiðslubyrðina. FRJÁLSI