blaðið - 21.08.2007, Blaðsíða 1
f Kubrick er goðið mitt
„Goðið mitt er Stanley Ku-
brick," segir Hlynur Pálmason
kvikmyndagerðarmaður
> á Höfn í Hornafirði.
Tökur á stuttmynd
hans hefjast í
vikunni.
Vantar meðaiveginn
„Umræðan hefur aukist en
hún verður samt f Ijótt svo
svarthvít," segir Guja Dögg
Hauksdóttir sem stýrir
pallborðsumræðum
um arkitektúr í Nor-
ræna húsinu í dag.
Tilraunastarfsemi
Atriði Stuðmanna á tón-
leikum Kaupþings er
umdeilt. „Það var þarna
einhver tilraun ígangi ,
sem var reyndar ekki É
á mínum vegum," Æ
segir Egill Ólafsson. ,-Ws
FÓLK»38
ORÐL
FRJALST, OHAÐ &
Þriðjuda^tilbo^
Úr kjötborði
Kjötfars
421 kr.
kílóið
Opiö alla daga frá kl. 10.-20
SPT P
Bæjarlind 1 - Sími 544 4510
Konu haldið niðri
og þvagsýni tekið
■ Segir lögreglu hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi ■ Ríkissaksóknari vísaði kæru frá
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net
Ekki eru til starfsreglur hjá lögreglu um
hvernig fara skuli að þegar þvagsýni er tekið
gegn vilja fólks. Kona á fertugsaldri kærði
lögregluna á Selfossi til ríkissaksóknara í maí
fyrir kynferðislegt ofbeldi þegar þvagsýni var
tekið með þvaglegg án hennar samþykkis 4. mars
sl. Segir hún að gyrt hafi verið niður um sig og sér
haldið nauðugri af karlkyns lögregluþjónum.
Ríkissaksóknari vísaði kærunni frá og taldi
ekki grundvöll til að rannsaka málið. Ólafur Helgi
Kjartansson, lögreglustjóri á Selfossi, kannast
ÞVAGSÝNATAKA
Samkvæmt umferðarlögum getur
lögregla fært einstaklinga meðal ann-
ars til blóð- og þvagsýnarannsóknar ef
grunur er um ölvun við akstur.
ekki við að konan hafi verið beitt kynferðislegu
ofbeldi og segir að læknir og hjúkrunarfræðingur
hafi verið viðstaddir. „Sem betur fer er það
sjaldgæft að beita þurfi aðgerðum eins og að setja
upp þvaglegg til að fá þvagsýni. Hvað þetta mál
varðar vísa ég til niðurstöðu ríkissaksóknara um
að lögregla hafi staðið réttilega að verki.“
Konan hefur verið ákærð fyrir að hóta lög-
regluþjónum og sjúkraflutningamönnum og veit-
ast að lögreglumanni umrætt kvöld. Málið verður
tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands á morgun.
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir
að séu ekki til sérstakar starfsreglur hjá lögreglu
um töku þvagsýna gegn vilja einstaklinga
þurfi að bæta úr því. „Við ætlumst til þess af
heilbrigðisstéttum og lögreglu að mannréttindi
séu alltaf virt og að farið sé að fólki með fullri
virðingu og það haldi reisn sinni."
VALDBEITINGIN VARLEGA FRAMKVÆMD »2
Engin vitræn
skýring á sölunni
Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við
Háskóla íslands, furðar sig á 5,3
prósenta sölu í Straumi-Burðarási á
föstudag. Hann segir enga vitræna
skýringu á því að menn k «■ ^
semji á lægsta verði. I Æm
Svæf t í tíu daga
á St. Jósefsspítala
Skurðstofan á St. Jósefsspítala, þar
sem svæfa á vegna tannviðgerða
barna og fatlaðra, er aðeins laus í
tíu daga fram að áramótum. Hægt
verður að gera við tennur fjörutíu
barna þar, en um 100 börn , 4 'jm
eru á biðlista auk fatlaðra. //T1
Árbæjarlaug sem ný í september
rz iaV
'ffÍ
m. wp
„Það var kominn tími á endumýjun"
Árbæjarlaug er nú lokuð á meðan umfangsmikil viðgerð á lauginni fer fram. Stefnt er að því að opna laugina aftur
17. september. Steinþór Einarsson, yfirmaður íþróttasviðs hjá ITR, útilokar ekki að verkinu ljúki fyrr. „Það var
kominn tími á að endurnýja búningsklefana og er flísalögnin þar stærsti þátturinn í framkvæmdunum. Einnig á
að taka innilaugina í gegn.“ Þá nefnir hann viðgerðir á útisundlaug og að huga eigi að rennibrautum.
Húkkaði
kafara
Þrettán ára hollenskum strák
brá heldur betur í brún þegar
hann var á veiðum á strönd-
inni og kafari beit á. Wim van
Huffelen var að kafa undan
ströndum hollenska smábæjar-
ins Zierikzee þegar öngullinn
festist í vör hans. „Ég heyrði
eitthvert hljóð og fann svo
hvernig eitthvað kippti í vör-
ina á mér.“
Hollenska dagblaðið De
Telegraaf birti mynd af kaf-
aranum með öngulinn enn
fastan í neðri vörinni, en van
Huffelen tókst um síðir að
fjarlægja öngulinn með aðstoð
læknis. a
NEYTENDAVAKTIN
Ávöxtun lifeyrissjóða Fyrirtæki Gildi lifeyrissjóður 11,0%
Lsj. verzlunarmanna Stafir lifeyrissjóður 9,8% 8,6%
Lsj. starfsmanna ríkisins Sameinaði lífeyrissjóðurinn 8,6% 5,2%
Meðaltal allra sjóða landsins 8,3% Ávöxtun nokkurra líteyrissjóða landsins siðustu 5 árin Upplýsingar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA USD 67,64 % 0,12 A
GBP 134,28 -0,22 ▼
5S DKK 12,25 • JPY 0,58 -0,17 ▼ -0,17 ▼
■I EUR 91,19 -0,16 ▼
GENGISVÍSITALA 123,95 ÚRVALSVÍSITALA 8.039 -0,13 ▼ 3,13 A
VEÐRIÐ í DAG
SOFADAGAR!
OWarcó
Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-15
Reykjavik: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504 Egilsstaðir: Miðvangur 1, s: 471 2954