blaðið - 24.08.2007, Síða 6
6
FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2007
blaðió
Þykjustu-
par dæmt
Hann fékk sextán
mánuði en hún
fjórtán í fangelsi
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi
27 ára gamlan karlmann og nítján
ára konu í sextán og fjórtán mánaða
fangelsi í gær fyrir að hafa staðið
saman að innflutningi á tæplega 1,1
kilói af kókaíni til fslands.
Voru burðardýr
Stúlkan sagðist fyrir dómi hafa
verið beðin um að fara í ferðina af
konu að nafni Yvette. Hún hefði
komið á heimili hennar kvöldið
áður en hún flaug til fslands og þá
komist að því að maðurinn myndi
ferðast með henni. Áttu þau að lát-
ast vera kærustupar.
Maðurinn staðfesti þetta og sagði
mann að nafni Mario hafa boðið sér
7400 evrur fyrir að flytja fíkniefnin
til fslands. Hann hefði séð með-
ákærðu á heimili Marios kvöldið
áður en þau héldu til íslands.
Dómurinn taldi óumdeilt að
fólkið hefði verið burðardýr og ekki
átt frumkvæði að innflutningnum.
Þau hefðu hins vegar sýnt af sér sam-
verknað og því hafi ofangreind refs-
ing þótt hæfileg. Frá henni dregst
gæsluvarðhaldsvist frá 7. apríl síðast-
liðnum. þsj
Ferjan fokdýr lexía
■ Formaður fjárlaganefndar vonar að Grímseyjarferjumálið leiði af sér jákvæðar breyting-
ar á fjárlagagerð ■ Einar Hermannsson mun koma fyrir nefndina á næsta fundi hennar
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
Gunnar Svavarsson, formaður
fjárlaganefndar, segir að ef hægt sé
að nýta Grímseyjarferjumálið til
jákvæðra breytinga á fjárlagagerð
gæti það verið plús í málinu.
Hann segir nefndina ekki ætla að
grípa til neinna annarra aðgerða í
málinu en að læra af reynslunni.
„Við munum auðvitað nota þetta
verkefni sem slíkt til að styrkja
okkur enn frekar í fjárlaganefnd-
inni og við framkvæmd fjárlaga. Við
höfum sagt það að fjárlaganefndin
vill breyta ýmsu og ef þetta verkefni
verður til þess að jákvæðar breyt-
ingar verði þá held ég að það gæti
verið plús í málinu," segir Gunnar.
Fjárlaganefnd fundaði um málið í
gær í kjölfar þess að ríkisendurskoð-
andi sagði fjármögnun kaupa og
endurbóta á skipinu varla standast
fjárreiðulög og að kostnaður vegna
þessa yrði að minnsta kosti 500
milljónir króna.
Fulltrúar Vegagerðarinnar og
fjármálaráðuneytisins komu fyrir
nefndina í gær til að gera grein fyrir
sinni aðkomu að málinu. Gunnar
segir þá hafa farið yfir þær heim-
ildir í fjárlögum sem þeir töldu sig
hafa og hvernig þeir hafi unnið verk-
efnið í anda þeirra heimilda.
Einar mun koma fyrir nefndina
Fjárlaganefnd mun hittast á ný
3. september til að klára umfjöllun
sína um málið. Fulltrúar samgöngu-
ráðuneytis og Ríkiskaupa munu
Fjárlaganefnd Alþingis fundaði um
Grímseyjarferju Fulltrúi Vinstri grænna í
nefndinni segir Árna Mathiesen upplifa sig
þannig „hann ráði og þingið sé einungis til
að staðfesta gjörðir hans“.
koma fyrir hana á þeim fundi og
skýra sína aðkomu að Grímseyjar-
ferjumálinu. Þá hefur verið ákveðið
að bjóða Einari Hermannssyni
skipaverkfræðingi á fundinn, en
hann skrifaði nefndarmönnum
bréf í vikunni. Þar sagðist hann
sitja undir ærusviptingu Kristjáns
L. Möller samgönguráðherra í fjöl-
miðlum vegna málsins og að hann
hefði verið hafður að blóraböggli
fyrir meint mistök embættis- og
stjórnmálamanna í aðdraganda
kaupanna á ferjunni.
Ráðherrarnir bera ábyrgðina
Jón Bjarnason, fulltrúi Vinstri
grænna í fjárlaganefnd, segir þá
aðila sem komu fyrir nefndina ein-
ungis hafa staðfest það enn frekar
GRÍMSEYJARFERJAN
► Ríkisendurskoðun hefur
sagt að þær heimildir sem
vitnað hefur verið til við fjár-
mögnun Grímseyjarferjunn-
ar standist ekki fjárreiðulög.
► Stofnunin áætlar að kostn-
aður vegna ferjunnar verði
að minnsta kosti 500 milljón-
ir króna.
► Þegar ríkisstjórnin sam-
þykkti kaupin var sagt að
heildarkostnaður yrði 150
milljónir króna.
að Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra og Sturla Böðvarsson, fyrrum
samgönguráðherra, beri alla ábyrgð
á Grímseyjarferjumálinu. „Embætt-
ismenn og Vegagerðin framkvæma
skipanir ráðherra og þeir verða að
svara fyrir það gagnvart nefndum
þingsins og inni á Alþingi. Ég á von
á því að þetta verði eitt fyrsta málið
sem tekið verður fyrir þegar Alþingi
kemur aftur saman. Þar verða þeir
kallaðir til svara.“
Jón gagnrýnir orð og aðferðir
fjármálaráðherra harðlega. „Ég
held að fjármálaráðherra upplifi sig
þannig að hann ráði og þingið sé
einungis til þess að staðfesta gjörðir
hans. Það verður að stöðva þessa
valdafíkn og yfirgang ráðherranna
gagnvart Alþingi. Þessu máli er því
ekki lokið og við breytum ekki til
batnaðar nema með því að gera upp
svona alvarleg mál.“
Tjöldin fundust á Svínafellsjökli
Umfangsmikil leit
að Þjóðverjunum
Leitarmenn fundu í gær tjöld
þýsku ferðamannanna ofarlega á
Svínafellsjökli. Leit að mönnunum
tveimur stendur enn yfir, en slæmt
skyggni hefur hamlað leit síðustu
tvo daga. Hátt í 90 manns leituðu
og fór Fokker-vél Landhelgisgæsl-
unnar frá Reykjavík í gær með
sérþjálfað björgunarsveitarfólk og
sporhund af höfuðborgarsvæðinu.
Þá annast sérsveitarmaður frá lög-
reglunni vettvangsrannsókn á svæð-
inu. Unnið er að skipulagningu um-
fangsmikillar leitar um helgina hafi
mennirnir ekki fundist fyrir þann
tíma.
Að sögn Friðfinns Freys Guð-
mundssonar hjá Landsstjórn
björgunarsveita, hefur veður sett
nokkurt strik í reikninginn. „Við
reyndum að senda menn eins langt
upp og hægt var. Þeir hafa væntan-
lega stoppað í 1600 metra hæð þar
sem skyggni er slæmt og veður er
að versna á leitarsvæðinu."
Leitinni er nú einkum beint að
svæðinu þar sem tjöldin fundust og
í áttina upp að Hvannadalshnjúk.
Friðfinnur segir aðstæður þar erf-
iðar og svæðið hættulegt yfirferðar.
,Þar sem tjöldin eru er bara jökulurð
sem fellur niður í sjálfan jökulinn.
Þar eru djúpar sprungur og svelgir
sem myndast oft í jöklum á þessum
árstíma vegna leysingavatns. Það
leynast þarna hættur um allt.“
Friðfinnur segir að búnaður í
tjaldinu gefi til kynna að þarna séu
vanir menn á ferð. „Okkar tilfinning
er sú að þeir hafi stefnt á hnjúkinn
en leiðin er óvenjuleg á þessum árs-
tíma. Við höfum upplýsingar um að
þetta séu menn sem vilja krefjandi
verkefni og því er ekki ósennilegt
að þeir hafi valið þessa leið vegna
þess.“
Við leitina eru notaðir víðavangs-
hundar sem og einn sporhundur.
Friðfinnur segir þó að ekki séu
gerðar miklar væntingar til þeirra í
leit sem þessari. „Það er líklegt að
langt sé um liðið síðan þeir voru í
tjaldinu.“
magnus@bladid.net