blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 1
ORÐLAUS ] 59. tölublnð 3. árgangur Laugardagur 25. ágúst 2007 Borðaði silkiorma Það er mismunandi hvað fólk er duglegt við að smakka framandi rétti á ferðalögum. Sumir hafa smakkað silkiorma og krókó díla en aðrir halda sig við þekkta rétti. SPJALLIл38 FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓK Ekkert kynslóðabil Davíð Smári Harðarson, sem vakti athygli í Idol-Stjörnuleit, er aðvinna að nýju lagi með reynslu- boltanum Magnúsi Kjartanssyni. Fersk úr bleiuskiptum Svanhildur Hólm hefur tekið við sem ritstjóri þáttarins ísland í dag á Stöð 2 og segir að það verði viðbrigði f rá bleiuskiptum og heimilisstörfum. ÓLK»46 r 1 Betri heilsa fyrir um 120 KR. Á DAG Fitness ort Tilbodsverð 17.900 Gildir út 31.12.07 I C ELAN I) S P A & F I T N E ~S S S. 561 5100 WWW.ISF.IS Munar xim hvem mann ,Fannst að það væri svo margt sem ég gæti gert" „Það er svo skrýtið að þegar ég flutti frá Reykjavík til Egilsstaða þá fann ég mjög sterkt fyrir þeirri tilfinningu að úti á landi munar um hvern mann. Mér fannst að það væri svo margt sem ég gæti gert. Þetta var afskaplega góð tilfinning og ég er ekki viss um að ég hafi nokkurn tíma fundið fyrir henni áður. Mér fannst að ég þyrfti að skipta mér af landsmálumsegir Ólöf Nordal, nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í viðtali við Blaðið. Flestir vilja vera í skóía- búningi ■ Foreldrar 85% nemenda í Sæmundar- skóla keyptu skólabúninga ■ Áhuginn kem- ur ekki á óvart, segir formaður borgarráðs Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net ÁRANGUR Áhugi foreldra barna í Sæmundar- skóla í Grafarholti á skólabúningum var miklu meiri en foreldrafélagið gerði ráð fyrir. Við skólasetningu nú í vikunni keyptu foreldrar 85 prósenta barnanna skólabúninga sem foreldrafélagið og foreldra- ráðið buðu upp á í samráði við skólastjórnendur. Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, segir þetta ekki koma sér á óvart. „Þar sem þetta hefur verið reynt hefur ríkt mikil ánægja. Skólabúningar auka samheldni og hafa að margra mati komið í veg fyrir einelti út af efnamun eða ein- hverju slíku. Frumkvæðið hefur hins vegar alltaf komið frá for- eldrum eða skólastjórnendum." Björn, sem í mörg ár hefur bar- ist fyrir því að skólabúningar verði teknir upp, segir meirihluta borgarstjórnar leggja áherslu á að þeir sem vilja taka upp skólabúninga verði aðstoðaðir með einhverjum hætti. „Það er í höndum menntaráðs að útfæra það,“ segir hann. I Áslandsskóla í Hafnarfirði hafa 98 prósent yngri nemendanna gengið í sérstökum skólafatnaði frá árinu 2003. Skólastjórinn, Leifur ► í Áslandsskóla telur starfsfólk meðal annars að skólafatnaður hafi aukið sjálfstraust margra nemenda, skapað liðsheild, betri bekkjaranda og bætt námsárangur auk þess sem áreiti hafi minnkað. ► í Ártúnsskóla er það meðal annars mat starfsfólks að skólafatnaður hafi aukið samkennd, aukið öryggi í vettvangsferðum og aðstoð að foreldra og nemendur við að takast á við kostnað- arsama og krefjandi tísku- strauma. Garðarsson, kveðst mjög ánægður með fyrirkomulagið. „Það skapast ákveðinn liðsandi og samheldni eins og við þekkjum úr íþróttunum. Svo eru skólafötin bara tilbúin á morgnana. Það þarf einungis að hugsa um að flétta hárið eða setja í tíkó.“ í Ártúnsskóla í Árbæjarhverfi hafa börnin getað valið á milli nokk- urra gerða af skólapeysum. Yngri nemendurnir eru í skólapeysu nær alla daga. FLESTIR f SKÓLABÚNINGUM»10 Lúxusvatn Jóns Ól- afssonar til Japans Lúxusvatni Jóns Ólafssonar verður að öllum líkindum dreift í Japan. Þegar hefur verið samið um dreif- ingu í Bandaríkjunum og Kanada. Til stendur að vatnsframleiðslan verði komin á fullt í \\*| O ágúst á næsta ári. I O ísland sækist ef tir stærra landgrunni Frestur fimmtíu strandríkja til að gera tilkall til landgrunns utan 200 sjómílna rennur út 13. maí 2009. ísland gerir tilkall til landgrunns á Reykjaneshrygg, á Hatton Rockall- svæðinu og í suðurhluta \\«| Síldarsmugunnar. ÆÆ Reykir ei meir í garði sínum Umhverfisdómstóllinn í Vaxjö í Svíþjóð hefur bannað konu í Ákarp á Skáni að reykja i stórum hluta síns eigin garðs. Nágranni konunnar, sem er lögfræðingur og sérstaklega viðkvæmur fyrir tóbaksreyk, leitaði til dómstólsins þar sem hann þurfti að bera andlitsgrimu vegna reykinga konunnar þegar hann gekk frá útidyrum sínum og út á bílastæði. Deila nágrannanna hefur staðið í rúmt ár. Reykinga- konan segist ekki sátt við nið- urstöðu dómstólsins, en ætlar að una dómnum. aí VEÐRIÐ í DAG VEÐUR»2 Eldri seríi m og senum byggt búió _ , . Kringlunni Smaralind 568 9400 Ein< Ijós á kostnaðarverði 554 7760

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.