blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 2
FRETTIR LAUGARDAGUR25. AGUST2007 blaöið Meint ofbeldi við þvagsýnatöku á Selfossi Væntanlega vísað til Strassborgar fón Egilsson, lögmaður konunnar sem lögreglan hélt og tók úr þvag- prufu án hennar samþykkis á lög- reglustöðinni á Selfossi, útilokar ekki að farið verði með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Segir hann að fyrst verði þó leiðir hér heima reyndar, það er ef konan ákveður að fara lengra með málið. „Það verður fyrst að sjá hvernig konunni reiðir af sjálfri og hvort henni tekst að jafna sig á þessu,“ segir Jón. „Hún þarf tíma til að átta sig á því hvaða skref hún vill taka.“ Jón segir að fyrsti möguleikinn í stöðunni sé að bera ákvörðun rík- issaksóknara undir dómsmálaráðu- neytið og síðan hugsanlega að fara í skaðabótamál. „Þetta er mjög alvarlegur hlutur sem gerðist. Það er mikill dóm- greindarskortur að menn telji að vald veiti heimild til að slíks verkn- aðar. Það er ekkert í lögum eða neitt sem heimilar slíkt. Valdbeiting á að vera með meinlausum hætti og í þessu tilviki var hún það svo sann- arlega ekki.“ heida@bladid.net Skilnaðarböm ganga í tvo skóla Gáttaður þegar beiðnin barst Eyjólfur Sturlaugsson, skólastjóri Vallaskóla á Selfossi, kveðst í raun hafa verið alveg gáttaður þegar honum barst fyrst beiðni um að í hans skóla kæmi nemandi sem einnig stundaði nám í öðrum skóla. Greint var frá því í Blaðinu í gær að þess væru dæmi að skilnaðarbörn gengju í skóla í tveimur sveitarfé- lögum og jafnvel tveimur löndum þegar foreldrarnir hefðu sameigin- legt forræði. Skólastjóri Vallaskóla hefur reynslu af hvoru tveggja. „Ég hef ekki séð slík tilfelli ganga upp til lengri tíma en ég get svo sem heldur ekki ímyndað mér að fólk sé að hugsa um slíkt nema til skemmri tíma,“ segir Eyjólfur sem fyrst fékk beiðni um þess háttar fyrirkomu- lag fyrir fjórum árum. Beiðnunum hefur síðan fjölgað þótt þær séu enn ekki orðnar margar. Eyjólfur segir skólagöngu í tveimur skólum geta verið flókna þótt í sama landi sé. Ekki sé alls staðar sama námsefni. „Oftast er verið að reyna að bjarga einhverju og það er alveg hægt að réttlæta í sumum tilfellum að slíkt sé gert. Aðstæður geta bara verið þannig," segir skólastjórinn. ingib]org@bladid.net Hraðleiö Reykjanesbraut Reykjanes Express, hraðleið um Reykjanesbraut á milli Reykjanes- bæjar og miðborgar Reykjavíkur, var formlega tekin í notkun í gær. Er tilkoma háskólanema á Keilissvæðinu á Keflavíkurflug- velli einn grundvöllurinn á bak við verkefnið. Þetta kemur fram á fréttavef Víkurfrétta. Afsláttarverð fyrir hvern einstak- ling er 350 krónur en það verð er innifalið í leigugjaldi þeirra sem búa á Keilissvæðinu en þessi lækkun verður endurskoðuð um áramótin. Áætlunin hefst Þjóðverjanna enn leitað Leitin að þýsku ferðamönnunum tveimur sem saknað er heldur áfram um helgina. Sérhæfðir björgunarsveitarmenn héldu austur í Skaftafell í gær og taka um 70 manns þátt í leitinni. Leitin beinist einkum að svæðinu í kringum tjöld mannanna sem fundust í fyrradag ofarlega í Svínafellsjökli, sem og göngu- leiðum í átt að Hvannadalshnjúk og Hrútafellstindum. Leitarskilyrði hafa batnað en svæðið er sem áður erfitt yfir- ferðar og hættur leynast víða. Leitarmenn fundu slóð nærri tjöldunum og var hún rakin um nokkurn tíma uns hún hvarf. Þetta eru þetta einu vísbending- arnar sem fundist hafa. mge að fullu mánudaginn 27. ágúst. Reykjanes Express er samstarfs- verkefni Reykjanesbæjar, SBK, Keilis og Þróunarfélags Keflavík- urflugvallar. hbv Fleiri í leikskóla kennaranám Helmingi fleiri hefja nám í leikskólakennarafræði við Kenn- araháskólann nú en í fyrra, eða 109 á móti 53 í fyrra. Alls bárust tæplega 1500 umsóknir um nám við Kennaraháskóla íslands þetta árið. Um grunnnám bárust 995 umsóknir og um framhaldsnám 495 umsóknir. Nýnemar við háskól- ann verða 932 nú í haust. gag Ert bú í bvgqinqarhuqleiðinqum? www.ebk.dk Danskir gæðasumarbústaðir (heilsársbústaðir) Hafðu samband við okkur fyrir frekari upplýsingar: Trine Lundgaard Olsen farsími nr. +45 61 62 05 25 netfang: tlo@ebk.dk EBK HUSE HVOR FAMILIER TRIVES MS drykkjarvörur iferðalagið MS mjólkurdrykkimir eru firótein- og kaikríkir og stútfullir af næringarefnum. Veldu þér ískaldan mjólkurdrykk í handhægum umbúðum i næstu verslun. Kapphlaup um Opin Kerfi ■ Opin Kerfi Group er til sölu og fjórir aðilar eru sagðir hafa áhuga Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Norska fyrirtækið Ementor er sagt leiða kapphlaup nokkurra fyr- irtækja sem hafa áhuga á að kaupa Opin Kerfi Group hf. Auk Ementor eru EDB Gruppen frá Danmörku og Computacenter frá Englandi sögð fylgjast með gangi mála, auk þess sem Frosti Bergsson, sem stofnaði Opin Kerfi á sínum tíma, er sagður hafa áhuga á að kaupa félagið. Frosti vildi ekki tjá sig um málið þegar Blaðið hafði samband við hann í gær. Fellur vel að stefnu Ementor Fjölmiðlar í Noregi og Danmörku fullyrða að Opin Kerfi Group sé til sölu og að kaupverðið nemi 450 milljónum norskra króna, eða tæp- lega 5 milljörðum króna. Miklar hræringar hafa verið í félaginu á undanförnum árum, en félagið er nú í eigu Hands Holding. I samtali við Computerworld.no segir Claus Hougesen, sem tekur við stöðu framkvæmdastjóra Em- entor í byrjun næsta mánaðar, að Opin Kerfi Group væri áhugavert félag sem félli vel að stefnu Ementor. Hann játaði því hvorki né neitaði að viðræður um kaupin hefðu átt sér stað. „Við erum í þeirri ákjós- anlegu stöðu að fá upp í hendurnar fjöldann allan af fjárfestingartæki- Hræringar Enn eru hræringar hjá Opnum kerfum og er fyrrum eigandi sagður meðal áhugasamra kaupenda. færum í hverri viku. Ementor hefur áhuga á öllum sem hafa bolmagn og uppfylla landfræði- og samkeppnis- legar kröfur okkar. Opin Kerfi er fé- lag sem við höfum áhuga á að skoða nánar,“ segir Hougesen. Opin Kerfi Group er fjárfestingar- félag á sviði upplýsingatækni og á rætur að rekja til stofnunar Hewlett Packard á íslandi árið 1985. Frosti Bergsson stýrði fyrirtækinu allt til ársins 2004 þegar Kögun hf. yfirtók það. Eftir að Kögun var skipt upp í fyrra varð Opin Kerfi Holding að fullu í eigu Hands Holding. Velta fé- lagsins í fyrra var 13 milljarðar króna OPIN KERF! jROUP ► Er fjárfestingarfélag á sviði upplýsingatækni. Markmið þess er að eiga að ► fullu og reka starfsemi sína í dótturfélögum á Norður- löndum. ► Framkvæmdastjóri er Gylfi Árnason. og voru starfsmenn þess um 500. Ekki náðist í neinn hjá Opnum Kerfum Holding við vinnslu fréttarinnar. VEÐRIÐ í DAG Léttir víða til Norðvestan 5-10 og léttír víða til en skúrir verða við norður- og austurströndina. Hiti 8-16 stig en kólnar heldur norðantil. ÁMORGUN Viða skúrir Breytileg eða vestlæg átt, 3-8 m/s og víða skúrir. Hiti 10 til 15 stig. Á mánudag verður suðvestlæg átt og yfirleitt bjart veður, en smá skúrir vestantil. Hlýnar í veðri. Dópsali fyrir dómi Átti 37 grömm af amfetamíni Mál á hendur nítján ára gömlum karlmanni sem er ákærður fyrir fíknicfnasölu var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Maðurinn var handtekinn í mars á þessu ári með tæplega fimm grömm af amfetamíni í fórum sínum. Við leit í bifreið mannsins fundust rúmlega 32 grömm af fíkniefninu til viðbótar. Hann var svo handtekinn að nýju um mánuði síðar með litilræði af amfetamíni í vörslu sinni. þsj Leiðrétt Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt I blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. VÍÐA UM HEIIVI Algarve 24 Halifax 19 New York 21 Amsterdam 23 Hamborg / 23 Nuuk 7 Ankara 31 Helsinki 20 Orlando 27 Barcelona 24 Kaupmannahöfn 21 Osló 24 Berlín 23 London 17 Palma 25 Chicago 2d Madrid 24 Parls 20 Dubiln 19 Milanó 33 Prag 28 Frankfurt 25 Montreal 21 Stokkhólmur 25 Glasgow 17 Miinchen 26 Þórshöfn 13

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.