blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007
blaöiö
Kaupmannahöfn
Tekin með
tvö kíló
TVeir íslendingar, stúlka um
tvítugt og 36 ára gamall karl-
maður, sitja í gæsluvarðhaldi í
Kaupmannahöfn eftir að hafa
verið tekin með um tvö kíló
af kókaíni í borginni þann n.
ágúst síðastliðinn.
Stúlkan er talin vera svokallað
burðardýr en maðurinn hefur
áður komið við sögu lögreglu
vegna fíkniefnabrota. Grunur
leikur á að smygla hafi átt efn-
unum til íslands. þsj
Þrjátíu reynslumiklir lögreglumenn hafa sagt upp á einu ári
Megn óánægja með fjölda ófaglærðra
Dæmi eru um að allt að helmingur lögregluþjóna
á vakt hverju sinni í Reykjavík séu ófaglærðir og
reynslulitlir og hefur vaxandi fjöldi þeirra vakið
mikla óánægju meðal reyndra lögreglumanna.
Hafa rúmlega 30 reynslumiklir lögregluþjónar
hætt á síðustu tólf mánuðum af ástæðum öðrum
en þeim er eðlilegar geta talist og herma heimildir
Blaðsins að allnokkrir til viðbótar hugsi sér til
hreyfings.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur
síðustu ár ráðið ófaglærða til lögreglustarfa
enda hefur sá fjöldi sem útskrifaður hefur verið
frá Lögregluskólanum engan veginn dugað til að
manna lágmarksvaktir. Þess utan eru dæmi um
að þeir sem þaðan útskrifast staldri stutt við hjá
lögreglunni eða sæki alls ekki um slík störf þrátt
fyrir menntun sína. Þeim þyki launakjörin rýr.
Að sögn Steinars Adolfssonar, framkvæmda-
stjóra Landssambands lögreglumanna, er útlit
fyrir að jafnvel þótt tvöfalt fleiri útskrifist frá
Lögregluskólanum nú en áður dugi það skammt
til að manna stöður lögreglumanna næstu árin
með sama framhaldi.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra veit af
vandanum og hefur af honum áhyggjur en segir
málið erfitt viðfangs. „Ekkert eitt ráð dugar í
þessu efni enda ekki nein ein skýring á því ef
lögreglumönnum fækkar. Hugað verður að lausn
með hliðsjón af þeim úrræðum sem tiltæk eru.
Þegar hefur verið gripið til þeirra ráða að fjölga
í Lögregluskólanum, herða refsingar við ofbeldi
gegn lögreglu og brugðist við óskum um öflugri
streitu- og áfallahjálp."
albert@bladid.net
ísland vann í lottóinu
¥0«m
Eltak sérhæfír sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafdu samband
Sfðumúla 13, sfmi 588 2122
www.eltak.is
■ Kevin O'Brien sem seldi íslenska ríkinu Grímseyjarferjuna segir að hann hafi vitað að
endurbætur yrðu kostnaðarsamar 9 Hann segir skipið ódýrt og stjómvöld því unnið í lottói
OLIEAN ARANN
Oilean Arann Seljandi skipsins segist
hafa vitað að það yrði dýrt að gera skipið
upp enda hefði því verið siglt á hverjum
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
„Þegar þú kaupir notað skip þá
þarftu að eyða í viðgerðir og ég vissi
að íslendingarnir þyrftu að eyða
miklum fjármunum í þær,“ segir Ke-
vin O’Brien, fyrrum eigandi Oilean
Arann, hinnar nýju Grímseyjarferju.
Fyrirtæki hans, O’Brien Shipping
ltd, seldi Vegagerðinni skipið í nóv-
emberlok árið 2005 á 925 þúsund
pund, eða tæplega 104 milljónir
króna á þávirði. Síðan hafa verið
greiddar rúmlega 280 milljónir
Itróna í viðgerðir og endurbætur á
[iví og Ríkisendurskoðun telur að
heildarkostnaður vegna þess verði að
minnsta kosti 500 milljónir króna.
Hafði ekki verið haldið mikið við
Það kemur O’Brien alls ekki á
óvart að kostnaðurinn við endur-
bætur á skipinu hafi verið svona
hár. „Þú þarft stórt tékkhefti þegar
þú kaupir notað skip því þau éta
upp peninga. Skipið hafði verið í
siglingum á hverjum einasta degi árs-
ins frá því að við keyptum það. Það
hafði ekki tíma til að fara í slipp eða
neitt þannig. Það var því ekki fallegt
skip og líklega ekki málað jafn oft og
íslensk stjórnvöld myndu mála það,
en þetta var sterkt skip sem hafði
gengið í tíu ár milli eyjanna hérna og
hafði því sannað sig.“
O’Brien segir ástæðuþess að eigend-
urnir hafi ákveðið að selja skipið vera
þá að þeir feðgar ætluðu að hætta í
ferjubransanum. „Við vildum losna
við skipið hratt og teljum okkur því
hafa selt það ódýrt. íslensk stjórn-
völd hefðu átt að greiða helmingi
meira fyrir það og má því segja að
þau hafi unnið í lottóinu hvað varðar
kaupverðið."
Man vel eftir Einari
Þegar hann var spurður um hvort
einhverjir íslenskir miðlarar hefðu
komið að kaupunum þá hélt hann
ekki. Eini maðurinn sem hann
mundi vel eftir var Einar Hermanns-
son skipaverkfræðingur sem hafði
komið og skoðað skipið að beiðni
Vegagerðarinnar.
„Einar var með mjög góðar hug-
myndir um breytingar á skipinu. Ég
hitti hann reyndar bara einu sinni
eða tvisvar en hann vissi mikið
um skip og var með mjög skýrar
hugmyndir um hvað það væri sem
► Var keypt nýtt árið 1992 á
um þrjár og hálfa milljón
pund á þávirði af O’Brien
Shipping Itd.
W, Vegagerðin keypti skipið á
“ 925 þúsund pund, eða um
104 milljónir króna, þrettán
árum síðar.
280 milljónir og talið er að
heildarkostnaður fari yfir
500 milljónir króna.
hann vildi.“
í skýrslu Einars Hermannssonar
var gert ráð fyrir því að hægt væri
að kaupa skipið og gera það upp
fyrir um 150 milljónir króna. Á
síðari stigum málsins ákvað sam-
gönguráðuneytið hins vegar að
fara út í fjölmargar kostnaðar-
samar breytingar á skipinu sem
fjármálaráðuneytið heimilaði með
því að nýta ónotaðar fjárheimildir
Vegagerðarinnar. Við það margfald-
aðist kostnaður við endurbætur.
íslensk vísindi
Umhverfi Nesjavallavirkiunar og Hengilssvæðið er með
vinsælustu útivistarsvæðum á landinu, tilvalin til
náttúruskoðunar og gönguferða. Það er einnig skemmti-
* leg upplifun að fræðast um hið tæknilega stórvirki, Nesjavallavirkjun.
I Um svæðið liggja merktar gönguleiðir og fræðslustígar í boði eru skoðunar-
ferðír um virkjunina fyrir einstaklinga og hópa. Gestamóttaka er opin
L_ __ | __ _ I ^ sumah mánudaga til laugardaga kl. 9:00 - 17:00 og sunnudag
neimsoKn ^^o moo
- vistvæn orka
Orkuveita
Rcykjavíkur
Nauðgunariyf Fjölmennur hópur
netverja krefst þess nú að lyfið Flunitraz-
epam verði bannað. Það er samheitalyf
hins þekkta nauðgunarlyfs Rohypnol.
Rohypnol
Flunitr.ir<'(W|n
1 mg
i x5r:-
30 tðtiiew
m;
m
Barist gegn Hunitrazepam
Nauðgunarlyf
enn á markaði
Móðir hefur síðustu mánuði bar-
ist hart fyrir því að svefnlyfið Flun-
itrazepam verði bannað. Til þess
að vekja athygli landlæknisembætt-
isins og Lyfjanefndar hefur hún
virkjað fjölmennan hóp netverja
til að taka þátt í að vekja athygli á
málinu. Yfirvöldum hefur þó enn
ekki þótt ástæða til að taka lyfið af
markaði.
Blaðið sagði frá því í mars síð-
astliðnum að Flunitrazepam hefði
nákvæmlega sömu verkanir og hið
þekkta nauðgunarlyf Rohypnol,
enda um samheitalyf að ræða. Ro-
hypnol var skráð af markaði fyrir
nokkrum árum.
Matthías Halldórsson landlæknir
varaði af þvi tilefni við lyfinu en neit-
aði þá að segja hvað það héti til að
„menn fari ekki að fá hugmyndir".
Rúmlega 500 einstaklingar í ald-
urshópnum 5-34 ára og um 3600 á
aldrinum 35-60 ára leystu lyfið út
að minnsta kosti einu sinni á ári frá
2003 til 2006. þsj