blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 blaðið Fyrsti brunnurinn í Malaví Fyrsti brunnurinn í umfangs- miklu vatns- og hreinlætisverk- efni sem Þróunarsamvinnu- stofnun íslands vinnur að í Malaví er tilbúinn. 450 vatnsból, þar af 300 handgrafnir brunnar og 100 borholur, verða byggð á Monkey Bay-svæðinu á næstu fjórum árum. Nýi brunnurinn er i þorpinu Malembo og það tók þrjár vikur að grafa hann. Er framkvæmdin liður i þjálfun heimamanna í brunngerð. 400 manns, eða fjöru- tíu fjölskyldur, koma til með að nota brunninn en í þorpinu hefur verið mikið um vatnstengda sjúk- dóma eins og kóleru. Á svæðinu eru íbúar 110 þúsund og er talið að 40 prósent þeirra séu án salernis. Markmið verkefnisins er að lækka þetta hlutfall niður í5 prósent en það felur í sér að koma þarf upp 8800 salernum. hbv HR í Öskiuhlíðina haustið 2010 Borgarstjóri tók fyrstu skóflu- stungu fyrir nýbyggingu Há- skólans í Reykjavík við rætur Öskjuhlíðar í gærmorgun. Húsið verður um 35 þúsund fermetrar og því ein stærsta bygging höfuðborgarinnar. Gert er ráð fyrir að fyrsta hluta byggingarframkvæmda verði lokið í upphafi skólaárs í ágúst 2009 og að þá verði tilbúin til notkunar aðstaða í um 20.000 fermetrum fyrir tækni- og verk- fræðideild, tölvunarfræðideild og Þrír teknir fyrir lyfjaakstur Þrír karlmenn á þrítugsaldri voru teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna á höfuðborgar- svæðinu. Sá fyrsti var stöðvaður í Kópavogi rétt eftir að hann hafði ekið börnum sínurn í leikskóla. Hann átti í erfiðleikum með að halda bifreiðinni á veginum. Annar náðist á hlaupum í Kópa- vogi um hádegisbilið sama dag. Sá þriðji, ökuréttindalaus, náðist í Breiðholti og fundust fíkniefni í bílnum. viðskiptadeild. Stefnt er að því að öll starfsemi Háskólans í Reykja- vík verði svo komin niður að Öskjuhlíðarrótum haustið 2010. mbl.is Olíubíl bjargaö úr hremmingum Bílstjóri olíubíls frá Olíudreif- ingu, sem ákvað að stytta sér Ieið í stað þess að aka vegarslóða við stíflu Andakílsárvirkjunar, Ienti í hremmingum. Hann festi bílinn í Iausum jarðvegi. Dæla varð olíu úr bílum í annan bíl og var einn af stærstu krönum landsins feng- inn til að hífa hann lóðrétt upp og á öruggari stað. Bíllinn skemmd- ist ekki. Skessuhorn greindi frá. Á stolnum bíl í Súðarvogi Tveir karlar á stolnum bíl voru handteknir í Súðarvogi í fyrra- kvöld. Ökumaðurinn, sem er um tvítugt, hefur aldrei haft ökuréttindi. Þetta var ekki fyrsta umferðarlagabrot mannsins því fyrr í sumar bakkaði hann bíl á lögreglubíl og skemmdi hann. Meirihlutinn í skólabúningum ■ Mikil búbót og engin samkeppni um tískufatnað ■ Foreldrar og nemendur í Sæmundarskóla ánægðir með fyrirkomulagið Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Við skólasetningu í Sæmundar- skóla í Grafarholti nú í vikunni keyptu foreldrar 85 prósenta barn- anna 198 sem í skólann ganga sér- staka skólabúninga sem foreldra- ráð og foreldrafélag skólans höfðu ákveðið að bjóða upp á í samstarfi við skólastjórnendur. Líta foreldr- arnir á skólabúningana sem mikla búbót. Kostar níu þúsund krónur Skólabúningurinn, sem kostar 9 þúsund krónur, samanstendur af íþróttabuxum og renndri treyju frá Henson, flíspeysu og húfu og er hluti fatnaðarins framleiddur hér á landi. „Við skólasetninguna keypti þriggja barna faðir skólabúninga á öll börnin þrjú sem kostuðu sam- tals 27 þúsund krónur. Hann sagði okkur að hann hefði verið nýbú- inn að kaupa einar gallabuxur á 22 þúsund krónur," greinir Óttar Guð- laugsson, formaður foreldraráðs í Sæmundarskóla, frá. Hann segir áhuga foreldra miklu meiri en gert hafi verið ráð fyrir. „Við héldum á skólasetningardag- inn að pantað yrði fyrir um 20 pró- sent nemendanna og að um áramót yrðu um 50 prósent þeirra komin í skólabúning.“ Töff íbúningnum Að sögn Óttars óttuðust sumir foreldrar að börnunum yrði kalt þar sem iþróttagallinn er úr gerviefni. „Þau geta þá bara verið í gammo- síum undir eða kuldagöllum yfir alveg eins og þegar þau eru í galla- buxunum sínum,“ bendir hann á. „Fatnaðurinn þarf að vera þægilegur en hann má samt ekki vera púkó og krökkunum finnst þeir vera töff í búningnum,“ segir formaður foreldraráðsins. SKÓLABÚNINGAR ► Einstaka skólar og leikskól- ar hafa verið með vísi að skólabúningum í nokkur ár. í skýrslu um fátaek börn á ^ íslandi kemur fram að nokk- ur börn lendi upp á kant við jafnaldra sína vegna innbyrðis samkeppni um tískufatnað og klæðnað. ► Talsmenn skóiafatnaðar segja hann sporna við ein- elti á grundvelli efnahags. I Áslandsskóla í Hafnarfirði hafa 98 prósent yngri nemendanna gengið í sérstökum skólafatnaði frá árinu 2003. „Þeir hafa gengið 1 buxum og bol frá Henson og Cinta- mani-flíspeysu,“ segir Leifur Garð- arsson skólastjóri sem reyndar vill alls ekki nota orðið skólabún- ingur. „Ég kalla þetta skólafatnað. Skólabúningur er eitthvað sem við þekkjum frá Bretlandseyjum, það er að segja plíserað pils, skyrta og bindi,“ segir hann. Leifur kveðst mjög ánægður með fyrirkomulagið. „Það skapast ákveðinn liðsandi og samheldni eins og við þekkjum úr íþróttunum. Svo eru skólafötin bara tilbúin á morgnana. Það þarf einungis að hugsa um að flétta hárið eða setja í tíkó.“ Sjöunda árið í skólapeysum 1 Ártúnsskóla í Árbæjarhverfi hafa börnin getað valið á milli nokk- urra gerða af skólapeysum. „Þetta er sjöunda árið sem við bjóðum upp á slíkt. Ég held að ég geti sagt að allir nemendur skólans eigi peysu. Þeir eldri eru ekki í skólapeysu alla daga en á föstudögum er hefð fyrir því að allir mæti í skólapeysu og allflestir gera það. Yngri nemendurnir eru í skólapeysu nær alla daga og flestir nemendanna eiga skólapeysu til skiptanna. Með þessu fyrirkomu- lagi þarf ekki að vera að hugsa um að kaupa einhver tískumerki úti í bæ,“ segir Rannveig Andrésdóttir skólastjóri. Stott Pilates kerfið þjálfar flata og sterka kviðvöðva. Jafnvægi á milli styrk- og teygjuæfinga framkallar langa, granna vöðva og audveldar hreyfingar. Stöðug áhersla á öndun bætir súrefnisflæði í blóði, bætir blóðflæði til heilans sem eykur einbeitingu og vellíðan. 8 vikna námskeið hefst 3. september Byrjenda- og framhaldshópar DID0A KARLSDÓTTIR íþróttakennari og Stott-Pilates réttindi IMP. SHIRLEY LAVY Stott-Pilates réttindi, IMP og IR. Sérsvið Shirley er styrking og endurhæfing grindar-botnssvæðis barnshafandi kvenna og að fæðingu lokinni. Frábært æfingakerfi sem hefur slegið rækilega i gegn um allan heim. Láttu skrá þig strax í síma 414-4000 eða með tölvupósti afgreidsla@hreyfing.is Ath. Einnig boðið upp á einkatíma á Reformer. HReyrmG Faxafeni 14 414 4000 www.hreyfing.is Hreínuveiðimaðnr ósáttur Konráð Eggertsson Hrefnuveiðimaður segir að oft hafi komið sölutregða í öðrum atvinnugreinum án þess að útgerðarmönn- um væri skipað að hætta að stunda þær. Engar hvalveiðar í atvinnuskyni Einar K. Guðfinnsson sjávarút- vegsráðherra mun ekki útdeila nýjum kvóta til hvalveiða í atvinnu- skyni. Hann segist ekki telja neina sérstaka ástæðu til að fjalla um út- hlutanir hvalveiðikvóta fyrr en skýr- ari markaðsaðstæður fyrir hvalkjöt liggi fyrir og mál skýrist gagnvart útflutningi, en ekki hafa fengist leyfi til að flytja hvalaafurðir til Japans. „I þessu felst engin stefnubreyting af minni hálfu. En ég sé engar sér- stakar forsendur til þess að úthluta meiri kvóta á meðan þessi óvissa grúfir yfir. Ég hef hins vegar trú á því að ef það tekst að selja kjötið þá verði tekið til við þetta verkefni aftur.“ Konráð Eggertsson, hvalveiði- maður á Vestfjörðum, segir ákvörð- unina fáránlega. „Ég hef aldrei vitað til þess í íslandssögunni að stjórn- völd hafi tekið það að sér að ákveða hvort einhver vill stunda ákveðinn atvinnuveg. Það hefur komið sölu- tregða í öðrum greinum án þess að mönnum hafi verið skipað að hætta. Stjórnvöld eiga að gefa leyfi til veiða og svo á það að vera okkar að sjá hvort við getum selt kjötið. Ef það selst ekki þá segir það sig sjálft að við munum ekkert veiða." þs|

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.